Brynjar Níelsson: stjórnmálamenn hætti að blekkja almenning

Stjórnmálamenn sem halda því fram að hægt sé að ,,kíkja í pakkann" blekkja almenning, segir Brynjar Níelsson lögmaður og þingmaður. Gefum Brynjari orðið

Það virðast margir trúa því enn að aðildarviðræður snúist um að „kíkja í pakkann“. Þessi „pakki“ er regluverk ESB. Hann er þekktur og undan honum semur sig enginn. Aðildarviðræður, sem sumir kalla samningaviðræður, snúast í öllum meginatriðum um það hvernig regluverk ESB kemur til framkvæmda og á hvað löngum tíma. Stjórnmálamenn eiga því að hætta að blekkja almenning í þessu efni. Það eru engar vöruhillur í stórmarkaði ESB, sem Íslendingar velja úr af handahófi, eftir smekk og þörf. Við vitum hverjir eru kostir og gallar við aðild að ESB. Umræðan á að vera um hvort vegur þyngra, kostirnir eða gallarnir. Og hvort það prinsipp um að vera fullvalda þjóð í eigin landi skipti einhverju máli í því hagsmunamati.

Brynjar tekur af öll tvímæli um eigin afstöðu:

Sjálfum hugnast mér ekki aðild að ESB, enda tel ég hagsmunum okkar best borgið utan þess til lengri tíma litið. Það er í samræmi við landsfundarsamþykktir Sjálfstæðisflokksins. Fyrir þessu sjónarmiði eru ýmsar ástæður og skynsamleg rök. Mér þykir mikilvægt að tilheyra frjálsri þjóð í eigin landi og geri ráð fyrir því að flestir Íslendingar deili þeirri skoðun með mér. Menn mega kalla það þjóðrembu mín vegna.


mbl.is Engar varanlegar undanþágur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Afskaplega er þetta vel orðað hjá Brynjari, enda hljóta allir þjóhollir Íslendingar að vera honum sammála.  Ég er það alla vega.

Tómas Ibsen Halldórsson, 18.2.2014 kl. 13:14

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er allt gott og blessað - nema að því leiti að það er ekki í tengslum við neinn raunveruleika.

Einhverjar fabúleringar andsinna uppúr öðrum fabúleringum andsinna - og svo koll af kolli.

Að öðru leiti er hneykslanlegt að sjá framferði hægr-aflanna og andsinna núna gagnvart sinni eigin þjóð. Hneykslanlegt.

Ofbeldis-própaganda og svo barið á aumingjans innbyggjum hérna með hálfvitabulli úr ranni andsinna.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.2.2014 kl. 13:25

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Erum við nú ekki þegar búin að afsala okkur frelsi að einhverju leyti með EES?

Þannig að spurningin ætti að vera hvort við ættum ekki að halda áfram inn í ESB og tengjast stærri hagkerfi með þeim kostum sem því gæti fylgt

(lægri verðbólga).

EÐA

Að bakka að öllu út úr EES og slíta öllu viðskiptasamstarfi á þessum vettvangi?

Væri ekki best að halda einhverskonar þjóðaratkvæðagreiðslu þessu tengdu?

Jón Þórhallsson, 18.2.2014 kl. 13:47

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Einu sinni enn þessi mýta með skert frelsi við EES-samninga. Þegar þingmenn taka við sér og skrifa um það sem er margbúið að skrifa á hinum ýmsu bloggum,fer þetta að vera léttara. Almenningur á það inni að fara nú að losna við þessa fj.umsókn,hangandi yfir sér.!

Helga Kristjánsdóttir, 18.2.2014 kl. 16:29

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Heyr heyr !

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 18.2.2014 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband