Tilraunir í heimshagkerfinu og Ísland

Eftir alþjóðakreppuna 2008 gerðu Bandaríkin, Bretland og Japan tilraunir til að knýja fram hagvöxt með  því að seðlabankar þessara ríkja buðu ótakmarkað lánsfé á litlum sem engum vöxtum. Seðlabankinn í Evrópu stöðvaði áhlaup á fjármálakerfi Suður-Evrópu með loforði um ótakmörkuð kaup á skuldabréfum þessara ríkja.

Bandaríski seðlabankinn ætlar að draga úr framboð á ódýru lánsfé næstu misserin. Órói í nýmarkaðslöndum í síðustu viku og gjaldmiðlaflökt er rekið til ákvörðunar bandaríska seðlabankans. 

Evrópa er sjálfstæð uppspretta óstöðugleika í heimshagkerfinu. Viðurkennt er að Grikkir þurfi nýjan björgunarpakka. Portúgal gæti komið þar á eftir bæði Spánn og Ítalía eru í vanda.

Hagvöxtur er hægur hjá flestum Vesturlöndum, nema þeim fátækustu t.d.Eystrasaltsríkjunum. Stefán Ólafsson birtir samantekt á hagvexti síðustu þriggja ára og horfunum fyrir næsta ár. Ísland kemur prýðilega út úr þeim samanburði.

 


mbl.is Frekari afskriftir gætu breitt út óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband