Bullandi vantraust á Árna Pál í Samfylkingunni

Samfylkingar-Eyjan segir frá því í framhaldi af tillögu Árna Þórs Sigurðssonar að vinstrimenn taki nú enn einn sameiningarsnúninginn að Katrín Jakobsdóttir sé framtíðarleiðtogi sameiningarflokks alþýðu, afsakið, vinstrimanna.

Samfylkingar-Eyjan hefur eftir baklandi flokksins að Árni Páll fái ekki einu sinni stuðning samfylkingarfólks til að leiða mögulegt nýtt vinstra afl stjórnmálanna.

Árni Páll er búinn að mælingu eftir kosningar; Samfylkingin er smærri en VG. Hann er búinn að vera sem leiðtogi, hvort heldur Samfylkingar eða vinstriflokks í fæðingu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

No more ace to play,

The K,vinner takes it all.

Helga Kristjánsdóttir, 25.8.2013 kl. 21:27

2 Smámynd: Elle_

En alveg óþarfi af nokkrum manni, eins og gerist inn í milli og þó sjaldan (guði sé lof) að hæla Kötu í VG.  Katrín hefur ekkert fram að færa nema fals.

Elle_, 25.8.2013 kl. 22:17

3 Smámynd: rhansen

Sammála þvi að Katrin er algert villuljós ..þó Árni Páll se strand og syni engin merki !!!.......En liklega hvini bæði i rá og seglum skútunnar Katrinar Júl .ef framhja henni yrði gengið....og þokulúðurinn þeyttur á Árna Þór  !!

rhansen, 26.8.2013 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband