12,9% flokkurinn fastur í ESB-hjólförum

Einn flokka var Samfylkingin með aðild að Evrópusambandinu á stefnuskrá í þingkosningunum í lok apríl. Flokkurinn fékk stuðning 12,9 prósent kjósenda. Formaður flokksins, Árni Páll Árnason, lærði ekkert af niðurstöðu kosninganna og heldur fast við ESB-stefnuna sem skildi flokkinn eftir í sárum. 

Árni Páll telur sig eiga sóknarfæri vegna umræðu um ósamstöðu í ríkisstjórnarflokkunum í afstöðunni til þess hvernig eigi að slíta ESB-ferlinu sem hófst með samfylkingarumsókninni 16. júlí 2009.

Með því að spóla áfram í ESB-hjólförunum grefur formaður Samfylkingarinnar sig og flokkinn niður í málefnalegu eðjuna sem skilaði 12,9 prósent fylgi fyrir þrem mánuðum.


mbl.is Óskar eftir upplýsingum frá Gunnari Braga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Kannski er eðlilegt að Samfylkingin spóli sig þarna fastar niður.

Enda eina baráttumálið sem þessi flokkur hefur.

Birgir Örn Guðjónsson, 19.8.2013 kl. 14:23

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Páll ert þú gjörsamlega að missa þig? Bendi þér á að  Björt framtíð var fékk nú hvað um 9% og var mOg ert þú virkilega dottinn niður í að segja að flokkar sem hafa 12,9% eigi ekki tilverurétt? Erum við við sem fylgjandi samning um inngöngu í ESB eitthvað sem eigum ekki tilverurétt? 

Svona gott þá að þú ert bara aumur bloggari en ekki í valdstöðum. Því ekki vildi ég hafa svona afturhald, íhaldsemi og skoðanakúgara með meiri völd. Nóg að hafa Framsókn og Sjálfstæðisflokk við völd. 

Minni þig á að það var ekki Árni Páll sem setti það sem eitt af aðal stefnumálum Samfylkingar að ganga í ESB. Heldur hefur það ítrekað verið samþykkt á Landsfundum flokksins. Og þar til að annað verður samþykkt þar þá treysti ég því að Árni Páll haldi þessu máli vakandi.  Þeir sem ekki eru sammála ganga væntanlega í Heimssýn og stefna með félögum sínum á torfkofana aftur. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 19.8.2013 kl. 14:28

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Er enginn að átta sig á muninum á rétti og meirihluta?

Óskar Guðmundsson, 19.8.2013 kl. 14:31

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Magnús Helgi loksins að átta sig á því að allir eigi sér tilverurétt. Ekki seinna vænna, nú þegar Samfó er ekki lengur í stjórn.

Ragnhildur Kolka, 19.8.2013 kl. 15:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband