Evrukreppan; peningaskápur í rúmdýnunni

Almenningur í evru-ríkjunum 17 treystir ekki lengur bankakerfinu. Eftir reynslu Kýpverja má gera ráð fyrir að peningar á innlánsreikningum verði gerðir upptækir ef bankar og þjóðríki neyðast til að leita á náðir Evrópusambandsins um björgunarlán.

Spánverjinn Francisco Santos gerir stórviðskipti með afurð sem er beinlínis orðin til vegna kreppunnar í evru-ríkjunum. Hann framleiðir rúmdýnur með innbyggðum peningaskáp. Þýskir blaðamenn ræddu við Santos sem kveðst hafa fengið ótrúlegar viðtökur.

,,Fólk treystir einfaldlega ekki fjármálastofnunum fyrir peningunum sínum," segir Santos og gerir ráð fyrir sterkum útflutningsmarkaði fyrir rúmdýnuna með peningaskápinn til fóta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þetta er nú það sem kallast að koma auga á tækifærin.

Ragnhildur Kolka, 31.5.2013 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband