Fjölskylda Björns Vals ekki nógu stór

639, segi og skrifa sexhundruðþrjátíuogníu, tóku þátt í prófkjöri VG í Reykjavík. Það eru sem sagt fjöskyldur frambjóðenda og helstu vinir sem nenntu á kjörstað að kjósa ESB-sinna í mismunandi felulitum.

Björn Valur er ekki með nógu stóra fjölskyldum í höfuðborginni til að eiga möguleika.

Eða, kannski, að ESB-felulitur liðþjálfa formannsins sé gegnsærri en annarra. Hvur veit?


mbl.is Katrín efst en Birni Val hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Við losnum við Björn Val ...það eitt er stórsigur fyrir þjóðina!

corvus corax, 24.11.2012 kl. 23:05

2 Smámynd: Bernharð Hjaltalín

Hæ, Björn er óvinur forseta okkar og átti ekki neitt erindi uppá dekk.

Bernharð Hjaltalín, 24.11.2012 kl. 23:17

3 identicon

ja .".það hefur farið fe betra "

Ragnhildur (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 23:18

4 identicon

Greinilega brjáluð stemning fyrir VG í borginni eða þannig...  Heilir 639 að kjósa...

Skúli (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 23:23

5 identicon

VG mega gjarnan vera utan stjórnar næsta kjörtímatil. Sama gildir um Samfylkingu. Mestu vonbrigði allra tíma.

Margret S (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 23:47

6 identicon

Já! Nú er nóg komið!

Björn Valur er einn af fáum eftir í VG sem hefur haft eitthvað fram að færa í fyrrum stefnumálum flokksins og verið brjóstvörn Steingríms í óþægilegum málum, sem hefur síðan komið fram sem "góða löggan" (málamiðlarinn) og dregið úr "hörku" "vondu löggunnar".

Hvað hefur Katrín gert? Ekkert nema ráðið sjálfstæðismenn í skólastjórastöður og aðrar æðstu stöður sem hafa losnað í menntakerfinu. Enda ekki fengið eitt gagnrýnisorð frá íhaldinu alla sína ráðherratíð.

Jón Guðmar Jónsson (IP-tala skráð) 24.11.2012 kl. 23:56

7 identicon

Það kemur ekkert á óvart að 101 kaffihúsafólkið úr háskólasamfélaginu eigi eitthvað sameiginlegt með venjulegu fólki eins og Birni Val !

Veit ekki hvort nokkur af þessum 101 gengi VG hafi nokkurn tíman ,,mígið í saltan sjó"  ?

JR (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 00:57

8 Smámynd: Snorri Hansson

Ánægjulegasta frétt sem ég hef lesið lengi.

Snorri Hansson, 25.11.2012 kl. 03:57

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fjölskyldan ekki nógu stór? Ég er ekki viss um að hann hafi haft stuðning frá ættingjum sínum. Þeir þekkja kauða.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2012 kl. 05:38

10 identicon

Aumur ertu Gunnar Th. Gunnarsson.

Björn Valur er góður, heiðarlegur og gegnheill drengur (og skemmtilegur með afbrigðum) . ÖLL fjölskylda hans styður hann út í eitt og er stolt af honum og því sem hann hefur gert fyrir íslenska þjóð.

Mér dettur bara " Margur heldur mig sig" þegar ég les það sem þú skrifar hér.

Láki (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 12:26

11 identicon

Björn Valur hefði fengið mitt atkvæði. En engir hafa orðið fyrir eins hatrömmun árásum og ósanngjörnum rógburði og Björn Valur frá liði Hrunflokkanna, Sjallanna og hækjunnar.

Þeir áttuðu sig á því að þarna færi öflugur maður, Vg-ingar hinsvegar ekki.   

HK, Sviss

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 13:03

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Láki, heldurðu að "öll" fjölskylda Björns Vals hafi fyrirgefið honum að koma náfrænku sinni á götuna eftir að hún gekkst í ábyrgð fyrir hann?

Sjá HÉR

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2012 kl. 15:19

13 identicon

Gunnar Th. - Þessi saga er eins ósönn sem mest má vera. En þið Sjálfstæðismenn hafið japlað á henni í nokkur ár án þess að kynna ykkur sannleikann. Þið gerið allt til að sverta andstæðinga ykkar í pólitík.

Ykkar fyrirmynd er hún Gróa á Leiti.

Láki (IP-tala skráð) 25.11.2012 kl. 18:36

14 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gróa á Leiti hafði sögur eftir öðrum og sagði "ólyginn sagði mér... en hafðu mig ekki fyrir því". Í þessu tilviki kemur sagan frá fyrstu hendi, þ.e. frá fórnarlambi Björns Vals. Eiginmaður frænku Björns Vals skrifaði opið bréf í Morgunblaðið, þar sem hann sagði frá viðskiptum sínum við hann.

Ég sé enga fyrirmynd í Gróu á Leiti í því bréfi.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.11.2012 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband