Ásta Ragnheiður, VG-liðar og nýr vinstriflokkur

Vinstriflokkarnir tveir, Samfylking og VG, mælast samtals með um 30 prósent kjörfylgi og er það rúmlega 20 prósentustigum minna en flokkarnir fengu við síðustu kosningar.

Sóknarfæri flokkanna tveggja eru lítil og fá; ESB-myllusteinninn hangir um háls Samfylkingar og Júdasar-stimpillinn er fastur á VG.

Brandaraflokkur Gnarrista, Gumma Steingríms og Marshalls er vonlítil tilraun til að brjótast úr herkvíinni. Flokkurinn er eins og snýttur úr nös Samfylkingar.

Til að nýr vinstriflokkur fái trúverðugleika þurfa þingmenn úr Samfylkingu og VG að brjótast undan flokksveldinu og snúa bökum saman í hófstilltum og stjórntækum flokki.

Ásta Ragnheiður er á lausu, Ögmundi leiðist að bíða eftir að Steingrímur J. hættir og Guðfríður Lilja og Jón Bjarnason og Atli Gíslason eru í reynd án flokks. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Það greinilega teikn á lofti, að brostinn flótti í ESB-flokkinn,þótt sennilegt sé , að það sé um seinann. Skyldi það þora að ögra fyrrverandi kjósendum sínum og böðlast til að fylgja eftir Jóku gömlu í lendingu stjórnarskrármálsins fyrir kosningarnar í vor ?

Kv., KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 30.10.2012 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband