Fyrsta hlutafélagið, hjálendan og ESB-umsóknin

Um miðbik 18. aldar var fyrsta hlutafélagið stofnað á Íslandi, Innréttingarnar, og átti að nútímavæða landið. Reksturinn gekk illa. Konungverslunin yfirtók restarnar áður en móðuharðindin í lok aldar slökktu síðustu glæðurnar af félaginu sem enn heldur nafni Skúla Magnússonar á lofti.

Íslendingar sýndu Innréttingunum fálæti enda fyrirtækið um 150 árum á undan sinni samtíð. Ísland var hjálenda Danmerkur og dauflyndi og drungi yfir samfélaginu.

Framfarir og sókn til fullveldis héldust í hendur á síðasta þriðjungi 19. aldar. Skútuútgerð, stjórnarskráin, yfirtaka verslunarinnar úr höndum Dana og þéttbýlismyndun lagði grunninn að  velferð þjóðarinnar á 20. öld.

Heimastjórnin 1904 og framfaraskeiðið í kjölfarið sýndi að pólitískt fullveldi og efnahagsleg endurreisn haldast í hendur.

Í 100 ár höfum við notið fullveldis og stöðugt betri lífskjara. Umsókn samfylkingarhluta ríkisvaldsins um aðild Íslands að Evrópusambandinu kippir fótunum undan velferð þjóðarinnar. ESB-umsóknin gengur í berhögg við lærdóm sögunnar. 


mbl.is Íhaldssemi bjargaði Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

sammála Páll.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 23.3.2012 kl. 12:26

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Íhaldssemi er eiginleiki,sem Íslendingar ættu að rækta. Sýnist hún hafa glatast í velmeguninni,öfugt við Norðmenn forfeður okkar. Komum við ekki með alla þessa kosti í upphaf,eða var það ekki svona;

Í uppahfi var íhalssemi sáð

að undirlagi guðs svo því takmark´i yrði náð,

að bæta það kyn sem hann tryggast teldi

toppinn að nýta í undaneldi.

Helga Kristjánsdóttir, 23.3.2012 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband