Saga Class fólkið vill ESB-aðild

Kontóristar ASÍ, félagsbræður þeirra hjá SA, embættismenn og ýmsir í akademíunni stunda Brussel-ferðir af miklum móð og það  sér fram á ferðaauka yrði Ísland aðili að Evrópusambandinu. Þegar þetta fólk fer í sumarleyfi flýgur það á uppsöfuðum ferðapunktum með fjölskylduna.

Saga Class fólkið eykur starfsmöguleika sína við inngöngu þar sem sérhvert aðildarríki fær starfsmannakvóta í sinn hlut við inngöngu. Að jafnaði fá feitustu embættin þeir sem voru í samninganefnd umsóknarríkis.

Íslenskur almenningur myndi á hinn bóginn niðurgreiða lífstíl Saga Class fólksins vegna þess að Íslendingar myndu greiða meira til Evrópusambandsins en þeir fá tilbaka í formi (ferða)styrkja.

 


mbl.is Stofnanaveldið ánetjast ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Saga Class er örugglega fínt, en það er oft þannig að fólk sem situr Saga Class hefur sig á gerfilegan og sýndarmenskulegan hátt yfir hina venjulegu.

Alveg á sama hátt og Brussel á að veita lausnir sem eru í raun ekkert annað en gerfi.

Það hentar vel gerfifólki að trúa á Brusselvaldið.  Aðrir sjá í gegn um gerfið.  Og vilja auðvitað ekki borga undir ósköpin.

jonasgeir (IP-tala skráð) 24.1.2012 kl. 18:34

2 identicon

hvað eiga Samfylkingin og ísl.karlalandsliðið í handbolta sameiginlegt?

svar

Evrópudraumurinn er úti

þór (IP-tala skráð) 24.1.2012 kl. 18:56

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hann Ögmundur ætti kannski að fara að huga að sínum eigin utanlandsferðum

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/10/24/ogmundur_i_sex_utanlandsferdir/

Sleggjan og Hvellurinn, 24.1.2012 kl. 23:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband