Já-hótanir standa einar eftir

Icesave-sinnar, þeir sem vilja segja já í kosningunum á laugardag, eiga ekkert annað eftir í vopnabúri sínu en hótanir. Þegar ASÍ og SA segja að ekki verið um langtímasamninga á vinnumarkaði að ræða nema þjóðin segi já eru rökþrotin rækilega auglýst.

Icesave-samningarnir voru gerðir undir hótunum Breta og Hollendinga. Fyrir ári sögðu margir þeir sem í dag berjast fyrir já-i að allt færi í kalda kol á Íslandi ef þjóðin samþykkti ekki Icesave-II samninginn. Við felldum samninginn í fyrra og lífið hélt áfram sinn vanagang - Ísland varð ekki að Kúbu norðursins.

Illa er komið fyrir þjóð sem lætur hótanir stjórna gerðum sínum. Við segjum nei á laugardaginn kemur.


mbl.is Gengur gegn lýðræðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála og við verðum að standa vörð um lýðræðið!

Sigurður Haraldsson, 6.4.2011 kl. 07:57

2 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Sammála! Ég er þegar búinn að kjósa í utankjörstaða og það var biðröð. Ég kaus á mánudaginn.

Guðni Karl Harðarson, 6.4.2011 kl. 08:09

3 identicon

 Stöndum saman ,  Stórt NEI ....  og aftur nei   ....en eg hef þegar kosið .......

ransý (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 09:02

4 identicon

Mín tilfinning er sú að hótanir þessar ásamt auglýsingum sem sýndu hákarla og fyrrum forustumenn lýðveldisins muni tryggja naumt nei í kosningunum á laugardag. 

Ég held að þarna hafi fallið dropar sem fylla mæli margra.  

Karl (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 09:04

5 identicon

Auk þess vill Steingrímur J. ekki gefa upp kostnað vegna Icesave III fyrr en eftir kosningar á mánudag. Þetta er maðurinn sem talaði fyrir upplýstri umræðu og allt upp á borði áður en hann komst til valda. Hvað er maðurinn að leyna gagnvart þjóðinni. Eru einhverjar óþægilegar upplýsingar í pokahorninu sem gætu haft áhrif á kjósendur? Gott hjá umboðsmanni Alþingis að krefjast lagalegrar skýringar á þessu.

Þórður (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 09:14

6 identicon

Skora á JÁ og NEI menn að skoða meðfylgjandi umræðu á þingi og rökstuðning mannvitsbrekkna stjórnarþingmanna þegar þeim tókst að samþykkja Icesave II landráðstilraunina, sem forsetinn og þjóðin bjargaði þeim síðan frá að fullfremja.

Það er ekki nema von að traust þjóðarinnar á Alþingi hrapaði niðir í 7% eftir þessi ósköp og yfirlýsingar stjórnarþingmannanna sem þjóðin rassskellti síðan með 98.2 % NEI á móti „heilum“ 1.8% JÁ….. (O:

Hversu langt getur hálfvitaskapurinn gengið?

Gjörið svo vel hér er svarið.:

http://andriki.is/

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 11:08

7 Smámynd: Sandy

Eru já-sinnar að missa sig í Icesave umræðunni. Þegar aðilar vinnumarkaðs eru farnir að nota þetta mál sem hótun í kjaraviðræðum, þá er eitthvað mikið að.  Ég er svo sem ekki hissa á að Vilhjálmur Eigilsson mæli fyrir Icesave, hanns umbjóðendur eru í rekstri og huga á fjármögnun erlendis ásamt bönkunum, sem eins og Steingrímur J sagði á þingi að ef það yrði sagt já við samningnum þá gætu íslenskir bankar farið á erlendan fjármálamarkað. En það er fyrir neðan allar hellur þegar formaður verkalýðshreyfingar tekur undir þetta. Er hann ekki að vinna bæði fyrir já og nei hópa? Fyrir utan það að bjóða fólki upp á 200.000 kr mánaðarlaun eftir þrjú ár,og biðja fólk á sama tíma um að greiða marga milljarða í Icesave. Ég segi nei 9.apríl.

Sandy, 6.4.2011 kl. 11:25

8 identicon

Úr grein eftir Ósk Bergþórsdóttur húsmóður.:

„Úr háskólunum kom lofsöngurinn um snillingana, aðilar vinnumarkaðarins klöppuðu hrifnir með, samtök atvinnurekenda sömuleiðis, heill stjórnmálaflokkur varð að hálfgerðu dótturfélagi auðhrings. Þjóðþekktir rithöfundar og listamenn dásömuðu útrásarhöfðingjana. Allir sameinuðust þeir svo um að níða þá stjórnmálamenn sem voru grunaðir um að vera ekki á bandi útrásarvíkinganna. Nú er útrásarspilaborgin hrunin og venjulegt fólk hefur fengið skellinn af ævintýrum garpanna. Og þá vill svo til sami kór og áður lofsöng útrásarmenn kemur nú aftur og hefur upp raust sína. Nú vill hann að almenningur, við þessir almennu skattgreiðendur, börn okkar og ófædd börn, taki á sig skuldir víkinganna. Samtök atvinnulífsins, háskólamennirnir, stjórnmálamennirnir sem studdu útrásarvíkingana, rithöfundarnir sem mærðu útrásarvíkingana, allir eru mættir aftur. Fjölmiðlarnir liggja ekki á liði sínu. Meira að segja lögmennirnir þeirra eru margir hverjir komnir á kreik. Nú vilja allir þessir marktæku aðilar að þjóðin borgi Icesave-brúsann, rétt eins og þeir sömu vildu í fyrra að þjóðin kyngdi Icesave nr. II. Og enn beita þeir sömu röksemdafærslunni, auknar skuldir eru góðar. Nú á það að styrkja stöðu Íslands að taka á sig óviðkomandi skuldir. Nú á lánshæfið einmitt að batna, ef við bara leggjum tuga eða hundraða milljarða skuldir á okkur til viðbótar við það sem við raunverulega skuldum. Því skuldsettari því betri. Nú yrðum við sko aftur þjóð meðal þjóða, eins og þegar við fórum um á einkaþotum, keyptum verslanir og gáfum út fríblöð. Hausinn er síðan bitinn af áróðursskömminni með runu fyrrverandi ráðherra sem sitja makindalega með ríkistryggðu eftirlaunin sín, með allt sitt á þurru, segjandi almenningi að taka nú á sig þessar skuldir.

Útrásarmennirnir náðu ýmsum svona dílum. Þeir juku skuldirnar ár frá ári og sjaldnast bættust nein raunveruleg verðmæti við. Loks fór allt á hausinn nema helst þeir sjálfir. Og rétt eins og á útrásarárunum situr venjulegt fólk og hristir höfuðið yfir snilldinni úr spekingunum sem vilja að venjulega fólkið opni enn og aftur veskið. En nú er eitt breytt frá útrásarárunum, nú höfum við þann möguleika sem við höfðum ekki þá. Nú getum við sagt nei. Og það gerum við á laugardaginn – hvort sem elítunni, sem iðulega þykist vita betur, líkar það betur eða verr.“

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband