Norsk bankaábyrgð og bókstafurinn í Brussel

Norðmenn vilja ríkistryggja bankainnistæður að tveim milljónum norskra króna, eða um 40 m. kr. í íslenskum peningum. Í kjölfar fjármálakreppunnar ákvað Evrópusambandið samræmda opinbera tryggingu upp á 100 þús evrur eða 800 þús norskar krónur og um 16 m. kr. íslenskar.

Norsk og íslensk stjórnvöld eru bundin af ákvörðun ESB á grundvelli EES-samningsins, Norski fjármálaráðherrann var í síðustu viku í Brussel að berjast fyrir rétti Norðmanna til að ákveða sjálfir innistæðutrygginguna en virðist hafa farið bónleiður til búðar.

Í ljósi Icesave-umræðunnar á Íslandi er bókstafstrúin í Brussel athyglisverð. Bókstafurinn segir að þegar íslensku bankarnir hrundu haustið 2008 var engin ríkisábyrgð á innistæðum í gildi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband