Ríkisyfirtaka á Reykjanesbæ

Árni Sigfússon og félagar hans í Reykjanesbæ hafa sýnt sig ónýta rekstramenn með áhættuhneigð spilafíkla. Bæjarsjóður, höfnin og SparKef er allt í þrot og sænskt skúffufyrirtæki er komið með krumlurnar í HS-Orku. Ríkisvaldið á ekki að lyfta litla fingri til hjálpar Árna og fíklunum nema þeir segi sig frá rekstri, völdum og áhrifum í bæjarfélaginu.

Með yfirtöku ríkisins á rekstri bæjarins skapast skilyrði til að vinda ofan af glæpaverkinu sem var að selja HS-Orku til braskara.


mbl.is Vill fresta öllum afborgunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Þau klikka ekki hjá þér vindhöggin frekar en fyrri daginn -

Ólafur Ingi Hrólfsson, 8.11.2010 kl. 06:51

2 identicon

Það voru öll sveitarfélögin á suðurnesjum sem seldu  ekki bara Reykjanesbær. Það skal hafa í huga. Sú ákvörðun var röng  eins og við sjáum í dag. Reykjanesbær hefur þó hangið á sínum eignarhlut eins lengi og hann gat á meðan hin sveitarfélögin hafa hirt vextina af sínum sölupeningum.

Jón B G Jónsson (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 09:36

3 identicon

Orð í tíma töluð Páll!

Sverrir Kr. (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 10:57

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Mér sýnist þú draga full víðtækar ályktanir, eins og fyrri daginn, þegar kemur að Reykjanesbæ. Þarna var þó verið að koma atvinnstarfssemi í gang eftir brotthvarf hersins. Það er alltaf áhætta falin í slíku.

Á Álftanesi fór allt til fjandans vegna flottræfilsháttar og hreinnar óráðsíu með tékkheftið. Sé þig aldrei minnast á það.

Ragnhildur Kolka, 8.11.2010 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband