Spurningin um Jón Ásgeir

Frétt um að Jón Ásgeir sé í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldum er nýmæli þar sem hann hefur gortað sig opinberlega af því að vera ekki í slíkum ábyrgðum. Í fréttinni er sagt að ákveðið verði á fundi þrotabúsins í vikunni hvort reyna eigi á ábyrgð Jóns Ásgeirs og viðskiptafélaga.

Ætla mætti einboðið að skiptastjóri þrotabús geri allt sem í hans valdi stendur til að styrkja stöðu búsins þannig að kröfuhafar fái sem mest í sinn hlut.

Kannski er Jón Ásgeir tekinn út fyrir sviga og fái sérmeðferð líkt og Landsbanki og Arion veita.


mbl.is Skulda milljarð vegna hlutafjárkaupa í Baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á eftir að sjá það að skuggaprinsinn verði látinn borga skuldir sínar meðan Samfylkingin er við stjórn.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.8.2010 kl. 20:37

2 identicon

Nei, hann er bláfátækur og á ekki eyri.  Grimmd ef 1 af 3 bönkum sem hann skuldar hundruði milljarða færi nú að níðast á honum. 

Elle (IP-tala skráð) 23.8.2010 kl. 21:35

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Og segir hann "út vil ek til B(já)NA" þar sem að þar vilja menn stinga honum í grjótið.... aumingja Jón... NOT!

Óskar Guðmundsson, 24.8.2010 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband