Enski boltinn bjargar 365, eða þannig

Frá áramótum hefur gengi Teymis hf. hækkað um 13 prósent í Kauphöllinni en gengi 365 hf. lækkað um 5 prósent. Félögin tvö voru áður sameinuð í Dagsbrún en var skipt upp í september síðastliðnn. Fjölmiðlahlutinn, 365 hf., er með takmarkaða vaxtarmöguleika og hefur selt frá sér einingar sem áttu að standa undir meira en helming veltunnar.

Í kynningu 12. september á liðnu ári áætlaði 365 hf. að heildarveltan árið 2007 yrði 30 milljarðar króna. Hluti Wyndenham prentsmiðjunnar í Bretlandi átti að vera 18 milljarðar króna. Skuldir voru um 22 milljarðar króna. Glærusýningu 365 hf. var vart lokið í haust þegar tilkynnt var að prentsmiðjan í Bretlandi yrði seld. Tapið á þeirri fjárfestingu hleypur á milljörðum króna.

Tilfæringar á prentmiðlum 365 um áramótin í sérstakt félag benda til frekari breytinga á rekstri fyrirtækisins. Á bloggsíðum er rætt um að uppstokkun á sjónvarpsrekstrinum sé í bígerð. Í gær var tilkynnt að birtingu ársuppgjörs væri frestað til mánaðarmótanna febrúar/mars.

Þótt útlitið sé dökkt er 365 með ráð undir rifi hverju. Það keypti í lok nóvember sýningarréttinn á enska fótboltanum fyrir um það bil einn milljarð króna, sem lætur nærri að vera tíu prósent af ársveltu fyrirtækisins.

Hmmm


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband