Miðvikudagur, 14. apríl 2021
Barneignir og jafnrétti
Fylgni, en ekki endilega orsakasamhengi, er á milli aukins kynjajafnréttis, einkum á vinnumarkaði, og færri barneigna.
En það er flókið mál að skrifa um samhengið. Maður þyrfti helst að heita Pálína til að það sé óhætt.
Fólk gleymi ekki ferðalögum í svefnherbergið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 14. apríl 2021
Hvaða kóf?
Umferðin er orðin sú sama og fyrir faraldur hér heima. Í Bretlandi segir rannsókn að fjórðungur dauðsfalla vegna kófsins sé rangt greindur. Það er munur að deyja með COVID-19 og vegna COVID-19.
Hér heima eru vaxandi áhyggjur af öndunarfærasjúkdómum vegna túristagossins við Grindavík. Bretar eru leiðir yfir því að eldri drykkjumenn fái ekki afgreiðslu á öldurhúsum sökum þess að þeir eiga ekki snjallsíma til að greiða snertilaust fyrir veigarnar.
Kófið virðist á útleið sem áhyggjuefni númer eitt, tvö og þrjú. Margir munu sakna vinar í stað.
Umferðin svipuð og fyrir faraldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)