Þriðjudagur, 1. september 2020
Bloggher RÚV
Fréttamenn RÚV stilla saman aðgerðir sínar á samfélagsmiðlum þegar nauðsynlegt er að keyra upp hávaða vegna tiltekins fréttamáls. Samkvæmt kæru Samherja:
Þá virðist sem um sé að ræða samantekin ráð þar sem margar þeirra færslna, sem fjallað er um í kærunni, voru birtar á samfélagsmiðlum því sem næst samtímis. Gerir það brotin enn alvarlegri.
Fréttamenn RÚV eru á launum frá ríkinu að segja fréttir. En fréttamennirnir haga sér eins og aðgerðasinnar með pólitísk markmið. Tvennt ólíkt er að segja fréttir og að búa þær til í þágu málstaðar.
Samherji kærir ellefu til siðanefndar RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. september 2020
Stóra ekki-málið: klukkan
Ef eitthvað virkar á ekki að fikta með það nema ærnar ástæður séu til. Aldrei var ástæða til að hræra í klukkunni. Það virkaði að hafa engan mun á sumar og vetrartíma. Allir vissu það sem vildu.
En flokkur, sem nú er flestum gleymdur, Björt framtíð, fannst klukkumálið sniðugt og hratt því úr vör á alþingi. Ýmsir stukku á vagninn eins og gengur þegar popúlistar eiga í hlut.
Málið, sem átti aldrei að vera á dagskrá, er afgreitt.
Ekki gerðar breytingar á klukkunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 1. september 2020
Bjartir tímar ferðaþjónustunnar
Ef Ísland verður fremst þjóðríkja að koma böndum á útbreiðslu kórónuveirunnar verður landið ákjósanlegur áfangastaður útlendra ferðamanna.
Skilvirkar smitvarnir og hröð aðlögun að síkvikum aðstæðum gæti einmitt komið Íslandi í fremstu röð.
Fjöldatúrismi liðinna ára verður ekki endurtekinn í bráð. En ferðaþjónusta mun áfram dafna með breyttu sniði og hóflegri fjölda.
Menn þurfa bara að líta á tækifærin en láta ekki ímyndað svartnætti buga sig.
Ferðaþjónustunni lokað fram að jólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)