Þriðjudagur, 5. maí 2020
Píratar auglýsa að þeir séu óþarfir
Píratar eru að stofni til nördaflokkar með áhuga á ókeypis efni á lýðnetinu. Þá urðu þeir borgaralaunaflokkur; sofa fram yfir hádegi og leika sér í tölvum á nóttinni - á launum frá ríkinu.
Upp á síðkastið eru Píratar upphlaups- og spurningaflokkur. Frumlegasta spurningin er að biðja um skriflega útgáfu af óskrifuðum reglum alþingis. Næsta væntanlega spurning: hvernig lítur hringlaga þríhyrningur út?
Sjálfir svara Píratar aldrei spurningunni sem ekki brennur á vörum fólks: til hvers eru þeir?
Ein spurning verður að 60-80 spurningum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 5. maí 2020
Maðurinn þolir ekki meira en 15 gráðu hita
Heimsendaspámenn gerast æ djarfari í fullyrðingum. Nú heitir það að maðurinn þoli ekki hærri hitastig en 15 gráður á celcíus.
Á Íslandi er meðalhitinn um fimm gráður. Margir Frónbúar fara til heitari landa, þegar flug gefst, og koma gjarnan tilbaka brúnir og sællegir.
Engar fréttir eru af Íslendingum sem stikna úr hita á Spáni og Kanarí.
En, auðvitað, ef vísindin segja við deyjum við hærri meðalhita en 15 gráður hlýtur það að vera satt. Er það ekki?
Hlýnun jarðar hafi áhrif á milljarða fyrir 2070 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 5. maí 2020
Sósíalismi gegn lýðræði
Lýðræðislega kjörnar sveitarstjórnir standa frammi fyrir óbilgjörnum kröfum Eflingarsósíalista um að sprengja upp launakerfi opinberra starfsmanna. Aldís Hafsteinsdóttir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga:
Okkur er ókleift að semja við þau þar sem kröfur þeirra eru langt umfram það sem við höfum samið um við aðra starfsmenn sveitarfélaga. Við erum búin að semja við rúmlega 40 félög og í þeim eru um 7.000 starfsmenn sveitarfélaga þannig að það er alveg útilokað að við getum með einhverjum hætti samið um annað og miklu meira við Eflingu en við höfum þegar samið um.
Efling er Reykjavíkurfélag en tekur börn í gíslingu í öðrum sveitarfélögum. Úrelt lög um verkalýðsfélög leyfa þessa háttsemi. Þetta fyrirkomulag er ótækt.
Verkfall Eflingar hefst á hádegi í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)