Miðvikudagur, 11. september 2019
3 loftslagsflokkar á alþingi: hærri skattar og meiri ánauð
Píratar, Samfylking og Vinstri grænir sameinast um hamfarahlýnun núna þegar vinstripólitík er komin út í skurð. Katrín, Halldóra og Logi trúa öll á manngert veðurfar og krefjast hærri skatta og boða og banna til að fólk fari sér ekki í voða.
Einu sinni var það vísindalegur sósíalismi, núna manngert veðurfar, - vísindalaga sannað, auðvitað.
Hamfarapólitík gömlu vinstriflokkanna nær þá og því aðeins árangri að fólk finni til sektar að eiga líf.
Skattabreytingar innleiddar á tveimur árum í stað þriggja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 11. september 2019
Glópahlýnun: 400 ppm eða 0,04%?
Í glópafræðum um hlýnun af mannavöldum er iðulega sagt að hlutfall koltvísýrings í andrúmslofti er 400 ppm. Vísindamenn, bæði þeir sem eru alvöru og hinir sem eru í trúboði, eru sammála að þetta sé rétt.
En hvers vegna þessi mælieining, ppm? Hún þýðir einingar af milljón.
Ef við breytum ppm yfir í prósentur fáum við að koltvísýringur er 0,04% af andrúmsloftinu.
Við skiljum prósentur en ekki ppm. Hvers vegna er ekki talað um 0,04 prósent? Jú, vegna þess að 400 er stærri tala, er sterkari í áróðursstríðinu.
Einn brandari í lokin um glópahlýnunarfræðin: af þessum 0,04 prósentum af koltvísýringi í andrúmsloftinu eru 98% á ábyrgð náttúrunnar. Maðurinn er aðeins ábyrgur fyrir um 2 prósentum af af öllum koltvísýringi í andrúmsloftinu sem þó er samtals ekki stærra hlutfall en 0,04 prósent.
En auðvitað trúum við á manngert veður. VÍSINDIN SEGJA ÞAÐ.
Hahahahahahaha
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 11. september 2019
Trump: semja frekar en að sprengja
John Bolton er innvígður í bandarísku utanríkismálaelítuna sem ráðið hefur ferðinni frá lokum kalda stríðsins. Óformlega er hópurinn kallaður klístur eða blob. Alveg sama hvaða forseti situr þá ræður klístrið ferðinni: Sprengjum Írak, Sýrland og Úkraínu til vestrænnar velferðar.
Bolton er að upplagi kaldastríðshaukur. Samantha Power á að heita frjálslynd og í innsta ráðgjafahópi Obama. En hún vill líka beita bandarísku hernaðarmaskínunni í langt-í-burtu-löndum. Auðvitað ávallt í þágu friðar og manngæsku, nema hvað.
Trump á hinn bóginn fékk forsetakjör út á það láta af þeim ósið að sprengja upp þjóðríki í nafni vestrænna hugsjóna.
Trump vill semja en ekki sprengja. Blóðþyrstir vinstrimenn eru aftur sáróánægðir með friðarhöfðingja í Hvíta húsinu.
Trump rekur þjóðaröryggisráðgjafann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)