Þriðjudagur, 11. desember 2018
Farönd nauðgar konu
Farendur er nýyrði um fyrirbæri sem kemur eins og skrattinn úr sauðaleggnum, gott ef ekki fljúgandi. Orðið er búið til í stjórnarráðinu, ekki til að upplýsa heldur dylja.
Ef farendur væru fuglar myndu þeir sennilega ekki nauðga.
En nýyrðið merkir flökkufólk, stundum kallaðir flóttamenn eða hælisleitendur.
Í viðtöku flökkufólks ætti að hafa í huga að misjafn sauður þrífst í mörgu fé. Við hljótum að gera þá kröfu til yfirvalda að þau hleypi ekki inn í landið skrítnum fuglum sem nauðga konum.
Dæmdur fyrir nauðgun á Hressó | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 11. desember 2018
Kjarninn beið með Ágúst; vildi að Klaustursumræðan fengi flug
Kjarninn er samfylkingarútgáfa. Ágúst Ólafur þingmaður Samfylkingar og hluthafi útgáfunnar sýndi starfsmanni freklega kynferðislega áreitni síðast liðið sumar.
Á Kjarnanum vissu allir um málið. En það var þaggað niður. Þögguninni átti að halda áfram eftir að siðaráð Samfylkingar áminnti Ágúst 27. nóvember. Kjarninn segir að það hafi verið gert í þágu þolandans.
Það er yfirvarp. Kjarninn hafði engar áhyggjur af þolendum persónunjósna í Klaustursmálinu, sem komst í umræðuna samtímis sem Ágúst fékk áminninguna frá siðaráði.
Reyndi ítrekað að kyssa hana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 11. desember 2018
Hitlersbörnin í París
Hversdagsfólk kom Hitler til valda. Trump fékk atkvæði almennings. Gulvestungar eru hversdagslegir Frakkar en ekki er allur almenningur gott fólk. Á þessa leið er greining þekktasta vinstriróttæklings 68-kynslóðarinnar, Daniel Cohn-Bendit, Rauða-Danna.
Rauði-Danni er kominn á áttræðisaldur og fyrir löngu orðinn væg útgáfa af sínum yngri manni. Hann er ráðgjafi Macron forseta og dæmigerður fulltrú góða fólksins sem vill hafa það huggulegt í fjölmenningunni með loftslagsfirru sem hugmyndafræði og í þægilegri innivinnu hjá ríkinu.
Almenningur í Frakklandi er eitthvað ósáttur, vill breytingar eins og hversdagsfólkið í Bandaríkjunum sem lyfti Trump til valda. Hillary Clinton kallaði fólkið aumkunarvert og Rauði-Danni líkir því við Hitlersbörn.
Frjálslynda elítan kann að orða hlutina. Óhætt að segja það.
Lofar launahækkunum og skattaívilnunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)