Hitlersbörnin í París

Hversdagsfólk kom Hitler til valda. Trump fékk atkvæði almennings. Gulvestungar eru hversdagslegir Frakkar en ekki er allur almenningur gott fólk. Á þessa leið er greining þekktasta vinstriróttæklings 68-kynslóðarinnar, Daniel Cohn-Bendit, Rauða-Danna.

Rauði-Danni er kominn á áttræðisaldur og fyrir löngu orðinn væg útgáfa af sínum yngri manni. Hann er ráðgjafi Macron forseta og dæmigerður fulltrú góða fólksins sem vill hafa það huggulegt í fjölmenningunni með loftslagsfirru sem hugmyndafræði og í þægilegri innivinnu hjá ríkinu.

Almenningur í Frakklandi er eitthvað ósáttur, vill breytingar eins og hversdagsfólkið í Bandaríkjunum sem lyfti Trump til valda. Hillary Clinton kallaði fólkið aumkunarvert og Rauði-Danni líkir því við Hitlersbörn.

Frjálslynda elítan kann að orða hlutina. Óhætt að segja það.


mbl.is Lofar launahækkunum og skattaívilnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Mætti þá ekki segja að ólætin séu þá Macron sjálfum að kenna fyrir að vera með ranga stefnu á lofti frekar en að það sé forseteaþingræðinu sé um að kenna?

Gætu óeirðaseggirnir  t.d. bent á annan forseta-frambjóðenda

sem að væri þá með réttlátari stefnu á lofti?

Jón Þórhallsson, 11.12.2018 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband