Sigurður Ingi: ESB fær ekki Ísland og Noreg í einum pakka

Evrópusambandið hugðist fá raforkuauðlindir Íslands og Noregs á einu bretti, með þriðja orkupakkanum. Íslenska fullveldið yfir auðlindum þjóðarinnar er þó ekki falt, segir Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins og telur einboðið að fá undanþágu frá raforkustefnu ESB.

Sigurður Ingi er formaður ríkisstjórnarflokks. Eftir útspil hans er verkefni viðkomandi fagráðherra, Þórdísar og Gulla, að finna þá embættismenn í utanríkis- og iðnaðarráðuneytinu sem þvældu okkur í orkustefnu ESB, og senda á endurmenntunarnámskeið í fullveldismálum.

Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins verður ekki fyrsti viðkomustaður, sé tekið mið af afurðunum þaðan síðustu árin.

 


mbl.is Vill nýta undanþágur frá orkupakkanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn, lögmálin og trúin

Mælieining eins og metri fær löggildingu í frönsku byltingunni fyrir 200 árum. Í gamla stjórnarfarinu voru margar mælieiningar notaðar. Nú skyldi samræma og staðla.

Án almennra mælieininga er óreiða. Maðurinn vill skipulag. Þegar framandi menningarheimar mætast er brýnast að finna ,,rétta" mælingu. Á 15. öld tóku að sigla til Íslands enskir sjómenn og þýskir að kaupa skreið og selja sinn varning. Eftir nokkra reynslu af þeim viðskiptum hittust Íslendingar á alþingi og samþykktu Píningsdóm 1490.

Í Píningsdómi er krafist að útlendingar fari með friði og stundi viðskipti eftir mælieiningum ,,sem at fornv hefer verid hier j landit." Maðurinn þarf aðferð til að mæla þyngd og rúmmál nauðsynja löngu áður en hann notar aðferðirnar til að skrásetja svokölluð náttúrulögmál.

Allt frá vísindabyltingunni í upphafi nýaldar er skilningur manna á lögmálum náttúrunnar settur fram í frásögnum. Sagan um eplið sem féll á höfuð Newton, og leiddi til uppgötvunar á þyngdarlögmálinu, varð til í meðförum Voltaire, sem hitti frænku Newton og rakti úr henni garnirnar.

Þyngdarlögmálið var vitanlega ekki uppgötvað af Newton. Lögmál í náttúrunni, ef þau eru til, eru ekki uppgötvuð af manninum. Annað hvort eru lögmál eða ekki - óháð manninum. Eina framlag mannsins er að setja saman aðferð til að lýsa meintum lögmálum. Aðferðin er í þeim skilningi skáldskapur að hún er ekki hluti af náttúrunni heldur tilbúningur.

Tölur og málfræði finnast ekki í náttúrinni. Maðurinn bjó hvorttveggja til í því skyni að koma reglu á óreiðuna sem blasti við, bæði úti í hinum stóra heimi og innra með honum sjálfum. Maðurinn þarf reglu til að lifa með sjálfum sér og öðrum.

Fram yfir vísindabyltinguna og frönsku stjórnarbyltinguna var trúin regluverkið sem treyst var á. Trúin svarar bæði spurningum þessa heims og eilífðarinnar.

Vegna innbyggðra takmarkana geta vísindin ekki sannað eitt eða neitt. Þau geta á hinn bóginn afsannað kenningar um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í heiminum. Fyrir utan það, sem að ofan segir, að aðferðin til að lýsa náttúrulögmálum er skáldskapur, þá vita vísindamenn ekki hvort þeir eru að lýsa heild eða aðeins brotabroti af heildinni. Þess vegna geta þeir ekkert sannað, aðeins afsannað.

Síðustu tvær aldirnar eða svo snýr maðurinn baki við trú til að skilja heiminn, einkum á vesturlöndum, og leitar svara í vísindum um hvernig tilverunni sé háttað. En vísindi svara aðeins hagnýtum spurningum um nauðsynjar; hvað er kíló þungt? Um leið og vísindin eru spurð flóknari spurninga, og beðin að sanna svörin, er viðkvæðið í grunninn það sama og hjá miðaldakirkjunni. Við verðum að trúa.

Kílóið var endurskilgreint með viðhöfn. Viðstaddur sagði athöfnina ,,tilfinningaþrungna". Frásögnin er falleg og hátíðleg. Eins og kirkjuathöfn. 

 


mbl.is Kílógrammið endurskilgreint
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Femínistaríkið: ómenntaðir karlar, atvinnulausar konur

Femínistar koma í veg fyrir úrræði til að halda drengjum í skólum. Afleiðingin er yfirtala kvenna í háskólum, 57 konur á móti hverjum 43 körlum. Fyrrum yfirmaður breskrar skráningarstofu fyrir háskóla heldur þessu fram.

Hér á Íslandi er staðan þannig að tvöfalt fleiri konur en karlar ljúka háskólaprófi. Vanmenntun karla helst í hendur við atvinnuleysi háskólakvenna. Félag háskólamenntaðra, BHM, segir að í september sl. hafi 649 háskólakonur verið atvinnulausar en 477 háskólakarlar.

Laun háskólamenntaðra hafa fallið í samanburði við laun ómenntaðra. Slagorð BHM, ,,metum menntun til launa" er til marks um það.

Í nýja fagra femínistaríkinu eru á kreiki ferlar sem boða hvorki gott fyrir karla né konur.

 


Bloggfærslur 17. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband