Atvinnuofsóknir Óttars ráðherra

Sigurður Már Jónsson upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar hefur ekki leyfi að hafa skoðun á stjórnarskrá lýðveldisins ef hann vill halda vinnunni. Á þessa leið eru skilaboð Óttars Proppé heilbrigðisráherra.

Óttar viðurkennir að hafa ekki lesið grein Sigurðar í Þjóðmálum, sem undirstrikar ómálefnalega afstöðu ráðherrans.

Óttarr hótar þeim atvinnumissi sem leyfir sér að hafa skoðun á stjórnarskrá okkar allra. Ömurlegur Óttarr.

 


Tvær stríðsborgir - ólíkar frásagnir

Aleppo í Sýrlandi var unnin úr höndum Ríkis íslam og uppreisnarmanna fyrir síðustu jól af sýrlenska stjórnarhernum með stuðningi Rússa. Í fjölmiðlum voru reglulegar fréttir um mannfall óbreyttra borgara. Rauður þráður fréttanna var stjórnlaus ofbeldi Rússa.

Eftir jól hófst frelsun írösku borgarinnar Mosúl. Herskáir múslímar stjórnuðu borginni en hersveitir stjórnarinnar í Bagdad sóttu fram með stuðningi Bandaríkjanna og Nató-ríkja. Nánast engar fréttir eru af mannfalli óbreyttra borgara, þótt þeir deyi þar í hrönnum.

Dálkahöfundurinn Peter Hitchens tekur saman þessar gagnólíku fréttafrásagnir. Fjölmiðlar leggja sig fram um að úthúða framlagi Rússa í baráttunni við herskáa múslíma en fegra frammistöðu Bandaríkjanna og Nató-ríkja.


Glæpir og Allah

Múslímskir hryðjuverkamenn á vesturlöndum eru nánast undantekningalaust með glæpaferil að baki áður en þeir verða stríðsmenn Allah. Guardian dregur upp svipmynd af nýjasta eintakinu.

Hver er skýringin? Jú, þessi helst: múslímatrú kennir að rétttrúaðir sanni sig með drápum á villutrúartrúarfólki - þ.e. að myrða þá sem ekki fylgja spámanninum.

Kennisetningar spámannsins eru leið glæpamanna að réttlæta sig, fá aflausn synda sinna.

En, auðvitað, íslam er friðartrú, eins og fjölmenningarsinnar klifa á.


mbl.is „Hér til að deyja fyrir Allah“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benedikt er ekki til frambúðar

Fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar, Benedikt Jóhannesson, er ekki til frambúðar. Flokkurinn fékk tíu prósent kjörfylgi og mælist ítrekað við fimm prósent eftir kosningar.

Benedikt segir krónuna ekki heppilega til frambúðar vegna þess að útgerðin er óánægð með sterkt gengi hennar nú um stundir. Hvorki Benedikt né útgerðin geta fundið neinn gjaldmiðil í heiminum sem er sérsniðin að íslenskum aðstæðum, - nema krónuna.

Benedikt vill ekki skilja þá einföldu staðreynd að engir gjaldmiðlar eru sniðnir að sértækum hagsmunum. Gjaldmiðlar taka mið af stöðu og horfum þeirra efnahagskerfa sem þeir þjóna. Vextir seðlabanka viðkomandi gjaldmiðla reyna eftir bestu getu að stuðla að stöðugu gengi með verðbólgu upp á 1-2 prósent.

Orð Benedikts um krónuna eru hluti af þeirri vænisýki sem einkennir stjórnmálaumræðuna eftir hrun. En sem betur fer er Benedikt ekki til frambúðar. Krónan er það hins vegar.


mbl.is Krónan ekki heppileg til frambúðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnasprengja múslíma í Evrópu

Múslímavæðing Evrópu gengur fram ef múslímakonur í álfunni eignast fimm börn, segir Erdogan Tyrklandsforseti. Þýskir fjölmiðlar taka áskorun Tyrklandsforseta alvarlega enda snertir hún viðkæman streng.

Evrópskar konur eiga að meðaltali rúmlega eitt barn hver. Ef þær múslímsku eignast fimm verður Evrópa múslímsk innan fárra kynslóða. Eyjan segir frá pælingum um væntanlegt trúarstríð í kjölfarið.

Tyrkland er múslímskt ríki sem reyndi að veraldarvæðast fyrir einni öld. Þegar forseti landsins hótar múslímavæðingu Evrópu þrem kynslóðum seinna staðfestir það hið augljósa: múslímar aðlagast ekki vestrænni veraldarhyggju.


Lýðhyggja gegn sérfræðiveldi

Lýðhyggja er orð sem nær yfir þróun síðustu ára þar sem venjubundin stjórnmál láta í minni pokann fyrir pólitískum valkostum sem höfða til breiðs hóps - lýðsins.

Jón Magnússon veltir fyrir sér hvert sé andheiti lýðhyggju.

Stórpólitískir atburðir síðustu missera, t.d. sigur Trump og Brexit, voru sigrar lýðhyggju gegn sérfræðiveldi hvers einkenni er að taka pólitíska afstöðu án fræðilegrar innistæðu. Jafnvel í okkar litla landi sigraði lýðhyggjan sérfræðiveldið í umræðunni um Evrópusambandið.

Fallegt orð, lýðhyggja.


Grænlandsgátan: útrýming eða undanhald?

Byggð norrænna manna á Grænlandi stóð í 500 ár, lagðist af um 1500. Tvær megintilgátur eru um afnám byggðarinnar. Í fyrsta lagi að afkomendur Eiríks rauða og félaga dóu út. Í öðru lagi að þeir norrænu höfnuðu lífsháttum veiðimanna og kusu að flytja búferlum og halda þar með í sérkenni sín - lífsstíl bænda.

Smithsonian-safnið tekur saman þær rannsóknir og kenningar sem varpa ljósi afdrif norrænu Grænlendingana. Veðurfar er miðlæg orsök að flestra áliti. Grænland byggðist á sama hlýskeiði og Ísland. Þegar veðurfar kólnaði á 13. öld varð hægt en örugglega óbyggilegt á Grænlandi fyrir norræna bændur. Ekki mátti miklu muna að eins færi fyrir Íslandi þegar verst lét á 18. öld.

Valkostirnir á Grænlandi voru tveir: að tileinka sér lífsvenjur veiðimanna sem átu sjávarfang í öll mál eða flytja búferlum.

Um sama leyti og norrænu Evrópumennirnir gáfust upp á Grænlandi, urðu útdauðir eða fluttu, hófust fólksflutningar frá Evrópu til annars hluta álfunnar sem fékk nafnið Ameríka. Evrópsk siðmenning hopaði frá kuldanum á Grænlandi en sótti í hlýindin í Norður- og Suður-Ameríku.  


Falsfréttir sem pólitísk leikrit

Falsfréttir um að Trump sé leikbrúða Pútín Rússlandsforseta var svarað af Hvíta húsinu með annarri falsfréttahrinu um að Obama fráfarandi forseti hafi látið hlera Trump.

Falsfréttirnar um Trump sem handbendi Pútín eru tilbúningur, segir í Vanity Fair og þær eru teknar í sundur af Glenn Greenwald.

Ásakanir um að Obama hleraði Trump fara sömu leið og Trump-Pútín samsærið. Hvorttveggja eru pólitískar leiksýningar, settar upp vegna óseðjandi eftirspurnar.


mbl.is „Fréttirnar eru fáránlegt bull“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV og tjáningarfrelsið

Fyrsta frétt Sjónvarps-RÚV í kvöld var óður til frjálsrar tjáningar. RÚV sjálft og fréttamenn þar á bæ eru á hinn bóginn ekki hrifnir af tjáningarfrelsinu þegar það er nýtt til að gagnrýna fréttastofuna á Efstaleiti.

Fréttamaður RÚV og lögmaður stofnunarinnar stefndu bloggara fyrir ærumeiðingar þegar falsfrétt var gagnrýnd. Bloggari var sýknaður í héraðsdómi en áfram héldu RÚV-liðar og áfrýjuðu til hæstaréttar. Það fór á sömu leið.

En núna er RÚV sem sagt besti vinur tjáningarfrelsisins.


mbl.is Fimmta áminningin til Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóð, tíst og vald

Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra lærði ljóð til að hafa á hraðbergi í orrahríð stjórnmálanna. Oft tókst snilldarlega til: ,,Sálarskip mitt fer hallt á hlið..." er fyrsta ljóðlínan í kvæði Bólu-Hjálmars sem Gunnar fór með á þingi 1979 til að lýsa vinstristjórn.

Donald Trump lærir hvorki ljóð né hrærist hann í heimi fagurbókmennta. Trump tístir.

Miðlarnir klæða valdinu misvel, ljóðið og tístið.


mbl.is „Twitter er frábært“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband