Frjálslynt hrun

Viðreins og Björt framtíð kenna sig við frjálslyndi. Báðir flokkarnir eru ESB-sinnaðir og alþjóðavæddir. Hvorugur mælist með fylgi til að fá fulltrúa á alþingi.

Ríkisstjórnarseta færir flokkunum tveim engin sóknarfæri vegna þess að þeir hafa engan grunn til að byggja á. Viðreisn og Björt framtíð skolaði á þing í ölduróti eftirhrunsins. Hvor flokkur um sig er útgáfa af Samfylkingunni, annar til hægri en hinn á miðjunni.

Þegar stjórnmálin aðlagast veruleikanum á ný falla pólitísku viðrinin milli skips og bryggju.


mbl.is Fylgi Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

mbl.is fegrar Erdogan

Tyrklandsforseti hótaði Evrópubúum að þeir gætu hvergi í heiminum verið öryggir um sig, segir þýska stórútgáfan faz, einnig eitt viðlesnasta dagblað Þýskalands, die welt og reuters sömuleiðis.

En fyrirsögn mbl.is á sömu frétt er: ,,Segir heiminn fylgjast ,,náið með" Evrópu".

Hvers vegna fegrar mbl.is orð Erdogans? Er það vegna þess að hann er múslími og úr þeim ranni kemur aðeins friðboðskapur, eins og fjölmenningarsinnar trúa í einfeldni sinni?

 


mbl.is Segir heiminn fylgjast „náið með“ Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær fóbíur í alþjóðapólitík, til hægri og vinstri, og falsfréttirnar

Vinstrimenn og frjálslyndir á vesturlöndum eru haldnir Rússafóbíu, sem birtist í tilfinngaþrugnu hatri þeirra á Pútín forseta. Hægrimenn eru öflugir í múslímafóbíu.

Á bakvið Rússafóbíuna er sígilt mynstur stórveldaátaka. Evrópusambandið notar Rússagrýluna til að þétta raðirnar. Bandaríkin undir Obama og Clinton, með stuðningi kaldastríðsmanna, litu á Rússa sem fyrirstöðu vestrænnar alþjóðavæðingar.

Múslímafóbía hægrimanna er í grunninn menningarleg. Þeir líta á íslamska trúarmenning sem ógn við vestræna lífshætti.

Í huga hægrimanna er Rússland eðlilegur bandamaður gegn múslímavæðingu. Vinstrimenn og frjálslyndir leggja minna upp úr múslímaógninni enda trúa þeir að alþjóðavæðingin geri alla að heimsborgurum.

Út frá þessum tveim fóbíum spretta tvær gagnólíkar heimsfrásagnir og hvor telur hina til falsfrétta. 

Vinstrimenn og frjálslyndir leggja trúnað á allar frásagnir sem styðja þá heimsmynd að flest illt, t.d. Trump-sigurinn og Brexit, megi rekja til Rússa og Pútín forseta sérstaklega. Hægrimenn sjá hryðjuverkamann í öllum múslímum - eða næstum því - og klappa þann fjölmiðlastein sem meitlaður er þeim skilaboðum.

Yfirstandandi átök milli hægri og vinstri eru um hvor fóbían verði ráðandi heimsfrásögn.

 


mbl.is Áætlanir Ríkis íslams ástæða raftækjabanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríki, hagsmunir og hatur

Ríki, að ekki sé talað um stórveldi, eiga hagsmuni en ekki tilfinningar eins og hatur eða ást. Pólitík er oft innblásin slíkum tilfinningum en þegar kemur að milliríkjasamskiptum eru það hagsmunir sem ráða ferðinni.

Meint persónulegt hatur Pútín Rússlandsforseta á Hillary Clinton forsetaframbjóðanda getur ekki verið ástæða fyrir inngripum Rússa í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Vel hugsanlegt er að Pútín og stjórnvöld í Moskvu hafi metið það svo að sigur Trump yrði í þágu rússneskra hagsmuna.

En ef það er svo að Rússar gerðu útslagið í kosningunum í nóvember, hvers vegna í ósköpunum þurftu þeir að hafa Trumpsigurinn svona nauman? Af hverju fékk Trump ekki rússneska kosningu?


mbl.is „Pútín hataði Clinton svo mikið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðið, Evrópukirkjan og Pawel pakkavinur

Ísland hélt velli í fjármálakreppunni vegna þess að við hugsuðum sjálfstætt en létum ekki Evrópukirkjuna, sem tók við að þeirri kaþólsku, segja okkur fyrir verkum. Á þessa leið er greining írska fræðimannsins Cormacs Lucey.

Þrátt fyrir skýra og einboðna reynslu af bjargræði fullveldis er enn til á Íslandi átrúnaður á ESB-kirkjuvaldið. Einn andsetinn er þingmaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, sem líkir sambandinu við pakka. Til skamms tíma vildu ESB-sinnar ,,kíkja í pakkann" en Pawel er slíkur pakkavinur að hann þarf ekki að gaumgæfa innihaldið.

Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, líkir Evrópusambandinu við ástarsamband. Gamalt orðtak, ættað úr hreintrúarkirkjunni, segir að berja skuli börn til ásta. Írar voru barðir til ástar á ESB. Pawel finnst það í góðu lagi. Eins lengi og hann fær pakkann sinn.


mbl.is Sjálfstæðið lykillinn að árangri Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Soros Píratavinur með ítök í Arion

Milljarðamæringurinn George Soros, en Píratar teljast til skjólstæðinga hans, er kominn með ítök í Arion banka.

Soros keypti nýverið hlut í Goldman Sachs sem aftur leiðir fyrirsjáanlega yfirtöku á Arion banka.

Hver skyldi afstaða Pírata vera til velgjörðarmanns síns? 

 


mbl.is Völdu frekar vogunarsjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðfrelsi trompar alþjóðleg völd og áhrif

Sigur Trump í Bandaríkjunum og ákvörðun Breta um úrsögn úr Evrópusambandinu eiga það sameiginlegt að fórna völdum á alþjóðvettvangi fyrir aukið fullveldi.

Alþjóðavæðing síðustu áratuga gróf undan fullveldi þjóða án þess að skapa öryggi og velmegun. Þvert á móti jókst óöryggi og efnahag margra hnignaði á vesturlöndum beinlínis vegna alþjóðvæðingar.

Sigur Trump og Brexit er ósigur alþjóðavæðingar.


mbl.is Brexit mikilvægara en konungdæmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýrlandi, Írak skipt upp; Kúrdaríki

Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og stuðningur þeirra við uppreisnarmenn í Sýrlandi hratt af stað atburðarás sem leiða mun til uppskiptingar á þessum ríkjum.

Ríki íslams er sameiginlegur óvinur þeirra þriggja stóru aðila sem mest láta sig skipta framvindu mála: Bandaríkin, Rússland og Tyrkland. Kúrdar, sem búa í norðurhéruðum Írak, Sýrlands og suðurhluta Tyrklands eru í laustengdu bandalagi við Bandaríkin og Rússland en svarnir óvinir Tyrkja, sem óttast að nýtt Kúrdaríki taki land af þeim.

Bandarískur sérfræðingur í málefnum miðausturlanda, Joshua Landis, hvetur Bandaríkin til að styðja fremur Kúrda en Tyrki til að ráðast í síðasta höfuðvígi Ríkis íslam, Raqqa. Tyrkir og bandamenn þeirra úr röðum súnni-múslíma keppa við Kúrda um að frelsa Raqqa. Þótt Tyrkir eigi að heita í liði Bandaríkjanna, sem Nató-þjóð, eru þeir grunaðir um að vilja fremur að herskáir súnni-múslímar, sömu ættar og Ríki íslams, verði öflugir á svæðinu en að vegur Kúrda vaxi.

Stríðsátökum í miðausturlöndum er hvergi nærri lokið.


mbl.is Lykilhlutverk Rússa eftir loftárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lukkuriddarar eymdarinnar

Sumir sérhæfa sig að útmála eymdina. Lukkuriddarar eymdarinnar eru iðulega snjallir í almannatengslum og kunna að koma fyrir sig orði.

Og alltaf finna þeir áheyrendur. Hvorttveggja er að eymdarfólkið fær uppreisn æru þegar þeir orðsnjöllu gera það að skjólstæðingum sínum um stund og eins hitt að fjölmiðlar vita að nýtt sorp selur betur en gamall sannleikur.

Eitt einkenni lukkuriddarana er að þeir dvelja aldrei lengi við sömu eymdina; vitandi að eymdin í dag er úrelt á morgun. Lukkuriddararnir nenna ekki lagfæra eymd gærdagsins enda er tilgangurinn ekki að bæta samfélagið heldur að gera sjálfa sig að söluvöru á markaðstorgi eymdarinnar.


mbl.is Norðmenn hamingjusamastir í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pútín leitað á bakvið Trump

Frjálslyndir og kaldastríðshaukar eins og John McCain gera Pútín Rússlandsforseta að höfundi kosningasigurs Trump.

Frjálslyndir eins og Clinton-hjónin og Obama fyrrverandi forseti gerðu Pútín að höfuðóvini Bandaríkjanna, segir í Foreign Affairs - og það voru stór mistök.

John McCain þingmaður reynir að stela utanríkisstefnu Trump, skrifar íhaldsmaðurinn Patrick J. Buchanan.

Herskáir frjálslyndir og vopnabræður þeirra úr röðum kaldastríðshauka vilja ekki bætt samskipti við Rússland. Þess vegna er Pútín leitað á bakvið Trump.


mbl.is Bera vitni á Bandaríkjaþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband