Miðvikudagur, 21. júní 2017
Kvenvæðing menntunar - jafnréttið fer forgörðum
Um 80 prósent kennara í grunn- og framhaldsskólum eru konur. Drengir alast upp í þeirri trú að menntun sé kvenlæg, ekki eitthvað sem hentar karlkyninu.
Kvenvæðing mnntunar birtist þannig að drengir sækja síður háskólanám en stúlkur.
Þessi þróun mun leiða til vaxandi kynskiptingar á vinnumarkaði með tilheyrandi ójafnréttis milli kynjanna.
![]() |
Brottfall pilta úr skólum áhyggjuefni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. júní 2017
Fúll-á-móti fylgið frá Vinstri grænum
Rótlausa fylgið studdi Vinstri græna síðustu kosningar. Þeir rótlausu eru alltaf tilbúnir að stökkva á óraunhæfar allsherjarlausnir; bylting í dag, innganga í ESB á morgun og þar á eftir að opna landamærin upp á gátt.
En fyrst og fremst eru þeir rótlausu fastir í hlutverkinu að vera fúll á móti.
Fúll á móti gerði Pírata stærsta flokkinn á síðasta kjörtímabili - þ.e. í skoðanakönnunum. Þegar til átti að taka, og gera Pírata að ráðandi landsstjórnarflokki, heyktist rótlausa fylgið á ruglinu í sjálfu sér og kaus Vinstri græna, sem er íhaldssöm útgáfa af fúll á móti.
Eðli málsins samkvæmt staldrar fúll á móti ekki lengi við í sama flokknum. Eins og afbrotamenn fá uppreisn æru hjá forseta, eftir lögmálum sem enginn skilur, er Samfylkingin komin í náðina hjá fúlum á móti.
Samfylkingin hefur ekkert gert til að verðskulda aukið fylgi. Nema, kannski, eins og aðrir afbrotamenn, afplánað dóminn sinn frá síðustu kosningum.
![]() |
Björt framtíð mælist ekki með mann inni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 20. júní 2017
Frelsi, hatur og glæpir
Á dögum þriðja ríkisins var bannað að tala illa um stjórnvöld. Í Sovétríkjunum var ólögmætt að hafa vestrænar skoðanir á skipulgi efnahags- og stjórnmála. Í báðum tilvikum var ríkjandi hugmyndafræði fest í lög. Það fyrirkomulag heitir skoðanakúgun.
Á norðurlöndum virðast uppi tilburðir til alræðishugsunar. Að hluta til stafa tilburðirnir af hrikalegum mistökum Dana og Svía síðustu áratugina að hleypa inn fyrir landamærin stórum fjölda fólks sem annað tveggja getur ekki eða vill ekki aðlagst siðum og venjum norrænna þjóða.
Í Svíþjóð og Danmörku, en einnig í Noregi, vaða uppi kvenfjandsamleg viðhorf sem gera ráð fyrir að kvenþjóðin sé á stalli með búpeningi, eða kannski skör hærra.
Til að bregðast við reyna norræn stjórnvöld að festa í sessi með lögum hvaða skoðanir borgararnir mega hafa. Þessir tilburðir til stjórnarhátta alræðisríkja eru dæmdir til að mistakast.
Skoðanakúgun er ekki lausnin á innflytjendavanda norrænna þjóða.
![]() |
Vilja herta löggjöf um hatursglæpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 20. júní 2017
Brexit fyrirmynd EES-exit Íslands
Eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusmbandinu, Brexit, er einboðið að Ísland og Noregur ganga úr innri markaðnum, sem kenndur er við EES-samninginn.
Tvíhliðasamningur Breta við ESB verður fyrirkomulag sem þjónar hagsmunum Íslands og Noregs mun betur en núverandi samningur. Þar fyrir utan mun ESB ekki hafa áhuga á að reka EES-samninginn áfram enda var hann hugsaður sem millistöð fyrir fulla aðild að sammbandinu.
Brexit markar þáttaskil í samskiptum Íslands við Evrópusambandið.
![]() |
Bretar yfirgefa innri markaðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. júní 2017
Kynjajafnrétti í Sviþjóð og á Íslandi
Launajafnrétti er helsta umræðuefnið í jafnréttismálum kynjanna á Íslandi. Í Svíþjóð er staðan önnur og verri. Konum er þar meinaður aðgangur að sumum stöðum; karlar ráðskast með klæðaburð kvenna og einkalíf þeirra.
Forsætisráðherra Svía segist ,,brjálaður" yfir ástandi mannréttinda kvenna.
Við Íslendingar verður að gæta okkar og lenda ekki í sænsku ástandi jafnréttismála.
![]() |
Látið hetjurnar okkar í friði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 18. júní 2017
Takk Ísland, takk fullveldi
Ástæðan fyrir því að Ísland gat veitt Eystrasaltsríkjunum stuðning til sjálfstæðis er að við erum fullvalda þjóðríki.
Án fullveldis hefði Ísland hvorki getað hreyft legg né lið til stuðnings smáþjóðunum sem vildu losna undan ríkjasasambandi við voldugan nágranna.
Fullveldið er verðmæti sem er ekki metið til fulls fyrr en það tapast.
![]() |
Litháar segja takk Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 17. júní 2017
Þjóðhöfðingi leitar að samnefnara
Hlutverk þjóðhöfðingja er að finna samnefnara meðal þjóðarinnar og styðja málefni sem sameina fremur en sundra.
Þjóðhöfðingjar sem gleyma hlutverki sínu og taka þátt í pólitískum skotgrafahernaði gera hvorki sjálfum sér né þegnum sínum greiða.
Elísabet Englandsdrottning er ekki slæm fyrirmynd.
![]() |
Elísabet stappar stálinu í landsmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 16. júní 2017
Guðni Th. gefur skotleyfi á sjálfan sig
Guðni Th. forseti stóð fyrir sérstakri rannsókn þegar hann ígrundaði hvort hann ætti að taka völdin af dómsmálaráðherra og neita að undirrita skipunarbréf dómara í landsrétt. Guðni Th. gaf þar með undir fótinn með að forsetinn hefði völd til að breyta stjórnvaldsákvörðun ráðherra.
Viku seinna kemur sami Guðni Th. og ber sig aumlega vegna máls kynferðisbrotamanns sem fær uppreisn æru frá forseta. Forsetinn segir
það er ekki ég sem tek ákvörðunina, stjórnarathöfnin er ekki mín enda er ég ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum samkvæmt stjórnarskrá.
Hér verður ekki bæði sleppt og haldið. Annað hvort er forsetinn með vald til að breyta ákvörðun ráðherra eða ekki. Fyrir viku sagði Guðni Th.:
Sú staða getur þó vissulega komið upp að forseti þurfi að íhuga hvort hann vilji staðfesta stjórnarathafnir.
Hvort er rétt, það sem Guðni Th. segir í dag eða í síðustu viku?
Misvísandi skilaboð Guðna Th. um valdheimildir forsetaembættisins jafngilda skotleyfi á allar ákvarðanir embættisins. Forsetinn þarf að gyrða sig í brók.
![]() |
Ákvörðunin tekin í ráðuneytinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 16. júní 2017
Lögreglan efnir ekki til ófriðar - hverjir þá?
Lögreglan er eins og þjóðin, friðsöm og efnir ekki til átaka. Hlutverk lögreglunnar er að við viðbúin hættuástandi og stöðva lögbrot. En það eru aðrir í samfélaginu sem efna til ófriðar.
Kjörnir fulltrúar Vinstri grænna og Pírata, og stuðningsmenn þessara stjórnmálaafla, eru fremstir í flokki óeirðarfólks.
Málatilbúnaðurinn er í aðalatriðum þessi: eðlilegur viðbúnaður lögreglunnar er gerður tortryggilegur á alla vegu og kanta með samsæriskenningum og hálfsannleik.
Hvað gengur ófriðarfólkinu til?
![]() |
Ennþá friðsöm og örugg þjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 16. júní 2017
Trump, vonda fólkið og bandarísk hnignun
Bandaríkin eru í vondri stöðu. Trump forseti stendur höllum fæti í valdabaráttu þar sem afstaðan til Rússlands er miðlæg. En raunveruleg ástæða fyrir valdabaráttunni er önnur.
Í sumum valdakreðsum í Washington og á ritstjórnum öflugra fjölmiðla er Pútín Rússlandsforseti sagður með horn og hala og hafi með tölvudjöfulskap gert Trump að forseta. Þess vegna verði Trump að víkja.
Yfirvegaðri sálir segja að Bandaríkjunum stafi engin hætta af Rússlandi og Pútín. Bæði er Rússland veikt ríki í samanburði við stórveldið og er í vörn allar götur frá falli Sovétríkjanna fyrir aldarfjórðungi. En yfirvegun ræður ekki ríkjum í Wasington heldur örvænting.
Örvæntingin stafar ekki síst af misheppnaðri utanríkisstefnu Bandaríkjanna frá aldamótum. Eftir hryðjuverkaárásina á tvíburaturnana í New York 11. september 2001 stóðu Bandaríkin fyrir hernaði vítt og breitt, en einkum í miðausturlöndum, sem áttu að styrkja bandarísk áhrif í heiminum.
Íraksstríðið, sem hófst 2003, skyldi vera sniðmát fyrir stórveldahagsmuni Bandaríkjanna. Ætlunin var að móta Írak sem bandalagsríki þar sem lýðræði og velmegun væri auglýsing fyrir yfirburði stórveldisins. En það fór á annan veg, Bandaríkin fóru úr Írak með skottið á milli lappanna árið 2011. Írak er ónýtt ríki.
Eftir útreiðina í Írak var hleypt af stokkunum smærri verkefnum, í Sýrlandi og Líbýu, en þau skiluðu sömu niðurstöðu, borgarastríði og ónýtum ríkjum. Úkraína í Austur-Evrópu var enn annað bandarískt verkefni sem fór út um þúfur 2014.
Valdaelítan í Washington, sem ber ábyrgð klúðrinu, sér möguleika að slá tvær flugur í einu höggi með því að spyrð saman forsetana Trump og Pútín.
Trump lofaði í kosningabaráttunni á síðasta ári að hætta stríðsreksti Bandaríkjanna. Með því að gera Trump að útsendara Pútín er vonda fólkið komið með afsökun fyrir hve hörmulega tekist hefur til alla þessa öld að styrkja Bandaríkin í sessi sem heimsveldi.
![]() |
Trump ofsóttur af vondu fólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)