Fimmtudagur, 29. júní 2017
Viðreisn í samfylkingarvanda
Viðreisn átti að vera bandamaður Samfylkingarinnar til hægri um pólitísk völd. Nafn flokksins vísar til viðreisnarstjórnar Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á sjöunda áratug síðustu aldar.
Viðreisn var stofnuð af ESB-sinnum í Sjálfstæðisflokknum. Aðild að Evrópusambandinu var stefnumálið sem skyldi binda saman Viðreisn og Samfylkingu. Þegar ESB-umsókn Samfylkingar frá 16. júlí 2009 rann út í sandinn áramótin 2012/2013 var fótunum kippt undan tilverurétti Viðreisnar - áður en flokkurinn fékk tækifæri til að bjóða fram. Útreið Samfylkingar í síðustu kosningum girti fyrir alla vaxtarmöguleika.
Viðreisn mælist með um fimm prósent fylgi. Hópar innan flokksins vilja halda aukalandsþing til að gera upp við stefnuna og flokksforystuna.
Viðreisn og Samfylking ættu að slá tvær flugur í einu höggi. Halda sameiginlegan landsfund - og leggja báða flokkana niður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 28. júní 2017
Grætt á falsfréttum um Trump
Falsfréttir um Trump er góð söluvara. Einkum fréttir sem ekki er hægt af afsanna, eins og þær að Trump sé handbendi Pútín Rússlandsforseta. Þetta er niðurstaða Glenn Greenwald sem segir fréttamiðla eins og CNN og Washington Post hvorki skeyta um skömm né heiður þegar kemur að framleiðslu falsfrétta.
Í Bandaríkjunum, og raunar víðar, vilja margir ekki trúa því að Trump einn og óstuddur hafi sigrað í forsetakosningunum. Hann hljóti að hafa notið stuðnings erlendis frá. Og þar er Pútín nærtækasta og best auglýsta illmennið.
Rússafóbía sameinar tvo valdamikla hópa í Bandaríkjunum. Demókrataflokkinn nánast í heild sinni og kaldastríðshauka í Repúblíkanaflokknum. Á bakvið þessa hópa eru sterkir hagsmunir, t.d. í hergagnaiðnaði, sem njóta góðs af Rússagrýlunni.
Fjölmiðlar eins og CNN og Washington Post fá áhorf og lestur út á falsfréttir um að Rússar hafi komið Trump til valda. Þeir fá einnig aðgang að umræðuþáttum og samfélagsmiðlum þar sem eftirspurn er eftir einmitt falsfréttum af þessari gerð.
Og þegar eftirspurn er eftir falsfréttum, þá eru þær einfaldlega framleiddar.
![]() |
CNN aftur flækt í hneykslismál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 28. júní 2017
OECD: krónan besti kosturinn
Krónan endurspeglar íslenskt efnahagslíf. Þegar vel gengur, eins og núna, njóta landsmenn betri kaupmáttar með sterkara gengi. Þegar slær í bakseglin, og gengið lækkar, dreifast byrðarnar á háa sem lága.
Hugmyndir Viðreisnar um myntráð eru loftkastalasmíði sem myndu enda í martröð.
OECD telur núverandi fyrirkomulag gjaldmiðilsins besta kostinn. Við vissum það fyrir - nema kannski Viðreisn og Samfylking sem alltaf eru úti á þekju.
![]() |
Berskjaldaðri fyrir spákaupmönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. júní 2017
Gamlingjar afhjúpa svindlið um hlýnun jarðar
Í aldarfjórðung hafa aðgerðarsinnar, vísindamenn sem taka styrki fram yfir sannleikann og ekki síst stjórnmálamenn reynt að telja okkur trú um að jörðin sé að hlýna af mannavöldum. Jörðin verði óbyggileg ef ekki verði gripið í taumana og stórkostlega dregið úr losun gróðurhúsaloftegunda, einkum koltvísýrings.
Að stærstum hluta er hlýnun jarðar af mannavöldum áróður. Nokkrir gamlingjar úr röðum vísindamanna eru öflugir að afhjúpa svindlvísindin um hlýnun jarðar.
Fred Singer er á tíræðisaldri og prófessor í umhverfisvísindum. Hann segir engar sannanir fyrir hlýnun af mannavöldum.
Norsk-ameríski nóbelsverðlaunahafinn Ivar Giaver segir loftslagsvísindin í höndum sértrúarmanna sem brjóti meginreglur vísindanna um að leita sannleikans. Ivar er 88 ára.
Carl-Otto Weiss er þýskur vísindamaður. Hann sýnir fram á að loftslagsbreytingar eru náttúrulegar sveiflur; ekki af mannavöldum. Carl-Otto er 76 ára.
Freeman Dyson prófessor í Princeton er með þrjá yfir nírætt. Leggjum ekki trúnað á reiknilíkönin um að jörðin verði óbyggileg er hans viðhorf. Þvert á móti er jörðin lífvænlegri en áður.
Og hvers vegna eru það gamlingjar sem eru sannir og skýrir í mati sínu á umræðunni um loftslagsbreytingar? Jú, þeir láta ekki kaupa sig annars vegar og hins vegar eru þeir nógu hugaðir til að taka sannleikann fram yfir pólitískan rétttrúnað.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 27. júní 2017
Höfrungahlaup kjaraumræðunnar
Hver eru sanngjörn laun sendiherra? Ríkisendurskoðanda? Þingmanna? Dómara? Talsmenn verkalýðshreyfingarinnar rjúka upp til handa og fóta þegar kjararáð ákveður laun embættismanna.
En í höfrungahlaupi umræðunnar lætur verkalýðshreyfing hjá líða að tefla fram sínum hugmyndum um hver launin ættu að vera.
Verkalýðshreyfingin getur, bæði í krafti samningsumboðs og eignarhalds á stjórnfyrirtækjum í gegnum lífeyrissjóði, haft mótandi áhrif á launaumræðuna. En það gerist ekki með upphrópunum. Vinna betur í SALEK og tala minna í fjölmiðlum væri ágætis byrjun.
![]() |
Hrundið af stað nýju höfrungahlaupi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. júní 2017
Múslímaklerkar bannfæra bænahald karla með konum
Frjálslynd moska í Moabit-hverfinu í Berlín fær á sig bannfæringu múslímaklerka í Egyptalandi og trúaryfirvöldum í Tyrklandi fyrir að leyfa sameiginlega tilbeiðslu karla og kvenna.
Fyrsta daginn sem moska var opin var fullt hús. En vegna hótana múslímakarla og klerka fækkaði þeim snarlega sem sóttu bænahald í anda jafnréttis kynjanna.
Guardian segir að stofnandi moskunnar fái 300 stuðningsskilaboð daglega en tífalt fleiri, eða 3000, hótanir m.a. um líflát.
Múslímatrú er karllæg og leyfir ekki að konur taki þátt í helgistund með körlum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 27. júní 2017
CNN viðurkennir falsfrétt um Trump
Þrír fréttamenn CNN hætta störfum eftir að falsfrétt um samsæri aðstoðarmanns Trump við Rússa var afhjúpuð.
CNN er einn þeirra fjölmiðla sem harðast ganga fram í að draga upp þá mynd að Trump sé handbendi Pútín Rússlandsforseta.
Fréttin birtist á vef CNN en var eytt eftir að í ljós kom að hún reyndist falsfrétt.
![]() |
Trump heimtar afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26. júní 2017
Einkalíf, ofbeldi og fjölmiðlaréttarhöld
Nafngreindur maður er sakaður í fjölmiðli um ofbeldi gegn fyrrum sambýliskonu, sem kemur fram undir nafni. Á samfélagsmiðlum tekur almenningur þátt í opnu fjölmiðlaréttarhöldum, sumir koma manninum til varnar á meðan aðrir telja hann sekan.
Almennt gildir að sambúð/hjónaband er einkamál þeirra sem í hlut eiga. Ef annar aðilinn ákveður að gera sambúðina að opinberu mál, t.d. með færslu á samfélagsmiðlum, hefur hann fullan rétt á því sem einstaklingur.
Það er á hinn bóginn varasöm þróun að fjölmiðlar taki að sér hlutverk réttarríkisins og efni til opinberra réttarhalda. Sérstaklega gildir þetta um einkamál þar sem almannahagsmunir eru ekki í húfi heldur deilur einstaklinga.
Við viljum halda einkalífi okkar í friði. Ef lögbrot er framið í hjónalífi eru formlegar leiðir til að kæra, rannsaka og eftir atvikum dæma lögbrjótinn. Réttarríkið setur reglur um hvernig með slík mál skuli farið.
Fjölmiðlar hafa ekki úrræði réttarkerfisins að rannsaka mál, kalla í skýrslutöku og leggja yfirvegaða mat á málsatvik. Fjölmiðlaréttarhöld um einkalíf fólks geta eðli málsins samkvæmt ekki orðið annað en upphrópanir.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. júní 2017
Skúli sendir Icelandair pillu
Meðal flugfólks er talað um að Wow air ráði flugmenn með færri flugtíma að baki en Icelandair, sem geri meiri kröfur um reynslu. Jafnframt er vitað að áhafnarkaup er hærra hjá þjóðarflugfélaginu.
Það kemur spánskt fyrir sjónir að Skúli Mogensen forstjóri Wow ætli að ráða flugfólk Icelandair ,,svo framarlega sem það standist hæfniskröfur okkar".
Fyrirvarinn, sem Skúli setur, gefur til kynna að kröfur Wow séu meiri til flugmanna en Icelandair gerir.
En kannski á Skúli við að flugfólk Icelandair verður að sætta sig við lægra kaup ætli það að fá vinnu hjá Wow.
![]() |
Bjóða flugmönnunum vinnu hjá Wow air |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 25. júní 2017
Frjálslyndir múslímavinir í vanda
Múslímatrú er í besta falli íhaldssöm en oftar mannfjandsamleg, t.d. í garð mannréttinda kvenna og samkynheigðra. Frjálslyndir á vesturlöndum bera iðulega blak af múslímum þegar einhverjir þeirra stunda hryðjuverk og drepa saklaust fólk í þágu trúarinnar.
Viðkvæði frjálslyndra er að hryðjuverkin hafi ekkert með trúna að gera.
En þegar mannfjandsamleg viðhorf múslíma til kvenna og samkynhneigðra eru alþjóð til sýnis þegja þeir frjálslyndu sem fastast. Líklega vegna þess að mannfyrirlitningin hefur eitthvað með trúna að gera.
![]() |
Gleðiganga stöðvuð með gúmmíboltum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |