Múslímaklerkar bannfæra bænahald karla með konum

Frjálslynd moska í Moabit-hverfinu í Berlín fær á sig bannfæringu múslímaklerka í Egyptalandi og trúaryfirvöldum í Tyrklandi fyrir að leyfa sameiginlega tilbeiðslu karla og kvenna.

Fyrsta daginn sem moska var opin var fullt hús. En vegna hótana múslímakarla og klerka fækkaði þeim snarlega sem sóttu bænahald í anda jafnréttis kynjanna.

Guardian segir að stofnandi moskunnar fái 300 stuðningsskilaboð daglega en tífalt fleiri, eða 3000, hótanir m.a. um líflát.

Múslímatrú er karllæg og leyfir ekki að konur taki þátt í helgistund með körlum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held að öll trúarbrögð séu karlæg enda hafa þeir ráðið þar fram á síðustu ár. En í mörgum löndum þarna í Miðausturlöndum erum eð karllæga menningu sem þeir nota til að koma í veg fyrir breytingar. Hér hafa jú verið kristnir söfnuðir sem hafa boðað að koma eigi að vera undirgefin manni sínum, bannað þeim að klippa sig eins og þær vildu og m.a. að ganga í buxum. Í suður ameríku eru konur sem gangast undir fóstureyðingu fangelsaðar og þar er Kaþólikar við völd.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.6.2017 kl. 16:21

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Magnús, svo skal böl bæta að benda á annað.

Ragnhildur Kolka, 27.6.2017 kl. 17:00

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Enn eitt dæmi sem sýnir, að múslimar á Vesturlöndum búa ekki á Vesturlöndum þrátt fyrir að búa á Vesturlöndum. Þeir eru líkamlega staddir á Vesturlöndum, en andlega eru þeir útibú frá Tyrklandi, Egyptalandi, Íran, Sádí-Arabíu o.s.frv., stjórnað af ímömum stöddum á miðöldum.

A.m.k. reyna þeir að stjórna langt út fyrir sín eigin landamæri, yfir í næstu heimsálfu með sínum fötwum og fötum ef út í það er farið, þ.e. hiqab og búrkum, sem þeir neyða konur til að kaffæra sjálfa sig í.

Þessi kona af tyrkneskum uppruna í Berlín á samt heiður skillinn fyrir að rísa upp gegn miðaldamyrkri, sem hún vill þó ekki segja alveg skilið við.

Theódór Norðkvist, 27.6.2017 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband