Mánudagur, 17. júlí 2017
Íhaldsmaður plokkar í sundur Rússahatrið
Rússlandi er líkt við Þýskaland undir nasisma og Pútín Rússlandsforseta við Hitler í bandarískri stjórnmálaumræðu.
Íhaldsmaðurinn og fyrrum forsetaframbjóðandi, Patrick J. Buchanan, greinir Rússahatrið og kemst að þeirri niðurstöðu að hvorki sé ástæða að óttast Rússa né séu þeir óvinir Bandaríkjanna. Rússar eru náttúrulegir bandamenn vestrænna ríkja, segir Buchanan.
Kjarninn í greiningu Buchanan er að Rússland undir Pútín líkist keisaradæminu fyrir daga Sovétríkjanna. Rússland, líkt og Bandaríkin og önnur ríki, eigi lögmæta öryggishagsmuni. Út frá þeim forsendum sé hægt að vinna með Rússum sem eru hluti vestrænnar menningar.
Ef Rússahatrið ræður ferðinni í utanríkisstefnu Bandaríkjanna og það leiði til stríðs eru stjórnvöld í Washington engu betri en fávísu stríðsæsingamennirnir sem hófu fyrri heimsstyrjöld 1914, segir íhaldsmaðurinn Buchanan.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 16. júlí 2017
Sterkari EFTA, EES-samningurinn felldur úr gildi
EFTA-samstarfið er í grunninn fríverslun fullvalda þjóða. Bretar gætu orðið aðilar að EFTA og ásamt Noregi, Íslandi, Sviss og Licthenstein gert fríverslunarsamninga við Evrópusambandið.
Sérstakur kostur við slíkt fyrirkomulag er að EES-samningurinn yrði settur á ruslahaug sögunnar, þar sem hann á heima. Bretar munu ekki taka í mál að blása lífi í samninginn og Sviss stendur þegar utan hans.
EES-samningurinn varð gerður fyrir þjóðir á leið inn í Evrópusambandið. Hvorki Ísland né Noregur eru á leiðinni inn og Bretland er á leiðinni út.
![]() |
Vill greiða leið Breta inn í EFTA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 16. júlí 2017
8 ár frá ESB-umsókn: saga um dauðan flokk
Í dag fyrir átta árum samþykkti alþingi með 33 atkvæðum gegn 28, 2 sátu hjá, að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu. Samþykktin var fengin með svikum. Þrír þingmenn Vinstri grænna sögðust á alþingi vera mótfallnir aðild Íslands að ESB en samþykktu tilöguna engu að síður.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, Samfylking og Vinstri grænir, stóð fyrir samþykktinni. Í framhaldi klofnaði þingflokkur Vinstri grænna og ríkisstjórnin var lömuð seinni hluta kjörtímabilsins. Umsóknin var sett ofan í skúffu áramótin 2012/2013.
ESB-umsóknin var ekki pólitík heldur taugaveiklun. Umsóknin átti að redda Íslandi úr hruninu. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar og síðar formaður, sagði að umsóknin ein væri ,,töfralausn" fyrir Ísland.
Stórkostlegt dómgreindarleysi í pólitík er dýrkeypt. Vinstri grænir, sem voru barinn þræll í ríkisstjórn Jóhönnu Sig, náði vopnum sínum þegar frá leið. Samfylkingin, feiti þjónninn, tapaði stórt í kosningunum 2013 og þurrkaðist nærri út af þingi við síðustu kosningar.
Samfylkingin er dauður flokkur. Dánarorsökin er ESB-umsóknin frá 16. júlí 2009.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Laugardagur, 15. júlí 2017
Vaðall lygi verri
Sá sem lýgur stendur andspænis sannleikanum en kýs að fara með ósannindi. Kjaftavaðall, sem á ensku er kallaður ,,bullshit", gerir engan greinarmun á sannleika og lygi. Vaðall er seigfljótandi grautur þar sem má finna bæði sannleikskorn og helbera lygi.
Lygarinn stendur í þeim skilningi nærri sannleikanum að hann þekkir hann - annars gæti hann ekki meðvitað farið með lygi. Kjaftaskurinn, á hinn bóginn, lætur sér í léttu rúmi liggja sannindi og ósannindi - vaðallinn er hans ær og kýr. Lygarinn viðurkennir sannleikann, en hafnar honum, á meðan kjaftaskurinn notar sannindi og ósannindi jöfnum höndum.
Á þessa leið greindi Harry G. Frankfurt kjaftavaðal, ,,bullshit", fyrir rúmum áratug. Og sagði vaðalinn lyginni verri.
Samfélags- og netmiðlar standa fyrir veldisvexti vaðals á síðustu árum. Falsfréttir nærast á vaðli. Vaðall er eitt aðaleinkenni stjórnmálaumræðunnar.
Hvað er til ráða? Fyrsta skrefið er að átta sig á einkennum vaðals. Samkvæmt Frankfurt er það sjálfsupphafning. Kjaftaskar nota vaðal til að upphefja sjálfa sig.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 15. júlí 2017
Alþjóðavæðing, Brexit og Trump
Til skamms tíma var alþjóðahyggja ráðandi hugmyndafræði. Frjáls viðskipti, frjálsir flutningar vöru, þjónustu og ekki síst fólks voru hluti hugmyndafræðinnar. Bakslag er komið í alþjóðahyggjuna, núna síðast þegar ,,velkomin til helvítis"-mótmælin riðu húsum í Hamborg á leiðtogafundi G-20 ríkjanna.
Alþjóðahyggjan átti, samkvæmt kenningunni, að bæta lífskjör almennings, bæði á vesturlöndum og í fátækari heimshlutum. Um aldamótin síðustu var orðið ljóst að kenningin virkaði ekki. Stórir hópar millistéttarfólks á vesturlöndum fékk ekki bætt lífskjör - þótt smjör drypi af hverju strái í alþjóðavæddum heimi þeirra efnameiri.
Hagfræðingar, sem voru helstu hugmyndafræðingar alþjóðahyggjunnar, eru óðum að endurskoða fyrri sannfæringu sín, eins og Nikil Savar gerir ítarlega grein fyrir í Guardian.
Vestræn samfélög, Bretland með Brexit og Bandaríkin með kjöri Trump, snerust í vaxandi mæli gegn alþjóðahyggju.
Vaxandi straumur innflytjenda frá Norður-Afríku og miðausturlöndum var kornið sem fyllti mælinn í andstöðu margra við alþjóðavæðinguna. Ekki aðeins sáu stórir hópar vesturlandabúa fram á versnandi lífskjör vegna þess að störf þeirra voru flutt til fátækari ríkja heims heldur komu innflytjendur (flóttamenn/hælisleitendur) og þrengdu frekar að lífskjörunum.
Vesturlandabúar vilja vernda sín samfélög. Ef samfélagið umbyltist á skömmum tíma, t.d. vegna aukinnar efnahagslegrar misskiptingar og innflutningi fólks með framandi menningu, kallar umbyltingin á andsvar.
Drögin að andsvarinu er þegar komin fram: Brexit og sigur Trump.
![]() |
Verndarstefnan drepur hagvöxt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 14. júlí 2017
Haturslögreglan fær verkefni
Gunnar Waage/Hjartarson kallaði Ingu Snæland nasista. Hún hyggst kæra til lögreglunnar, sem rekur sérstaka deild vegna hatursorðræðu.
Haturslögreglan ákærir mann og annan fyrir orðræðu sem fer út af sakramentinu.
Inga Snæland er formaður Flokks fólksins og tilburðir að hatursstimpla hana eru samkvæmt þumalfingursreglu haturslögreglunnar aðgerð til að jaðarsetja samfélagshóp.
Spurningin er hvort haturslögreglan bregst við kæru Ingu með rannsókn. Kannski er sumt hatur leyfilegt en annað ekki. Ef svo er verður að gefa út yfirlýsingu um hvað sé leyft og hvað ekki í þessum efnum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 14. júlí 2017
Guðfræðideilur um Trump
Kristnir hópar í Bandaríkjunum fylkja sér um Trump, sem þó telst ekki mikill trúmaður. Bænastundir með fulltrúum kristinna safnaða eru haldnar í Hvíta húsinu. En kaþólska kirkjan er ekki par hrifin.
Guardian segir frá hvassri gagnrýni á Trump og kristna fylgjendur hans í tímariti sem gefið er út með blessun páfa.
Gagnrýnina má lesa á tvennan hátt. Í fyrsta lagi að hún sé vörn fyrir fjölmenningu, sem Trump er andsnúinn. Í öðru lagi að páfagarður vari við bandalagi kristinna safnaða í Bandaríkjunum sem eru fylgjandi hjónabandi samkynhneigðra og fóstureyðingum.
Pápískir kaþólikkar eru líkt og múslímar fremur andsnúnir samkynhneigð. En tímaritið gagnrýnir á hinn bóginn Trump fyrir að boða herská heimsendastefnu sem sé ekki hótinu betri en sú sem morðóðir múslímar leggja á borð.
Guðfræðideilur eru flókið fyrirbæri. Á miðöldum ræddu trúmenn í þaula hve margir englar kæmust fyrir á títuprjónshaus. Í dag er umræðan hvort Trump sé belsebúb holdi klæddur eða fulltrúi sannkristinna gilda. Þetta heita framfarir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 13. júlí 2017
Kapítalismi, fjölmenning og tvær útgáfur vinstrimanna
Vinstriöfgamenn efndu til óeirða á leiðtogafundinum í Hamborg. Kapítalisminn er aðalóvinur öfgamannanna, sem eru með náin tengsl við sósíalíska flokka.
Þessi útgáfa vinstrimanna náði sér nokkuð á strik eftir fjármálahrunið 2008. Líklega var hápunkturinn í Hamborg - keppst er við að útmála þessa útgáfu sem glæpamenn.
Alþjóðalega fjármálakerfið er að hjarna við og það kippir fótunum undan öfgaútgáfunni.
Frjálslyndir vinstrimenn er önnur meginútgáfa vinstrimanna. Ólíkt öfgaútgáfunni eru þeir frjálslyndu stórvinir kapítalismans og hlynntir alþjóðasamstarfi, eru t.d. upp til hópa í aðdáendaklúbbi ESB.
Frjálslynda vinstrið fékk á sig högg með Brexit og annað með kjöri Trump. Það sem gerir þeim frjálslyndu erfiðast um vik er fjölmenningin, sem er hornsteinn hugmyndafræði þeirra.
Fjölmenning er á fallandi fæti alla þessa öld. Angela Merkel kanslari Þýskalands gaf út dánarvottorðið þegar árið 2010. Aukinn straumur flóttamanna til Evrópu síðustu ár samfara hryðjuverkum herskárra múslíma er frjálslyndum vinstrimönnum þung í skauti. Fjölmenning er eins og sósíalismi: virkar bara ekki.
Staðan er þessi: vinstriöfgamenn eru úthrópaðir sem glæpamenn og frjálslyndir vinstrimenn eru án hugmyndafræði.
Þegar báðar meginútgáfur vinstrimanna eru í nauðvörn hlýtur heimurinn að fara batnandi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 13. júlí 2017
Trump, Clinton - munurinn er kynlífið
Laust fyrir aldamótin síðustu var Bill Clinton forseti ákærður til embættismissis af Bandaríkjaþingi. Kynlífshneyksli var undirrót ákærunnar en forsetinn var sakaður um að hindra framgang réttvísinnar.
Eins og í afstöðunni til Trump skiptust Bandaríkjamenn í grófum dráttum eftir flokkslínum þegar kom að ákærunni á hendur Clinton.
Trump gæti fengið á sig ákæru til embættismissis. Þó er staða hans betri en Clinton, enn sem komið er. Trump er ásakaður um að þiggja upplýsingar frá Rússum til að leggja eiginkonu Bill að velli í forsetakosningunum sl. haust. Það er, þegar kurlin koma öll til grafar, aðeins pólitík.
Einhverra hluta vegna eru ásakanir kvenna, sem komu fram í kosningabaráttunni, og sökuðu Trump um kynferðisbrot, ekki með í aðförinni að húsbóndanum í Hvíta húsinu. En þær voru alls níu sem kváðust fórnarlömb.
Á meðan Trump er með hreint sakavottorð í einkalífinu er hann hólpinn. Pólitík er grimm en ástríðufullt hatur þarf kynlífshneyksli.
![]() |
Andrúmsloftið í Hvíta húsinu frábært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. júlí 2017
BBC og RÚV: samanburður á hamfarafrétt
Ísjaki losnaði frá Suðurskautslandinu. Fyrirsögn RÚV: Mestu breytingar sem orðið hafa í 10.000 ár. Fyrirsögn BBC: Risastór ísjaki klofnar frá Suðurskautslandinu.
Frétt RÚV gengur út á að hamfarir séu á næsta leiti. Millifyrirsögn eins og ,,hlýnandi veður" læða þeirri hugsun að lesanda að loftslagsbreytingum sé um að kenna.
Í frétt BBC segir: ,,We know that rifts like this periodically propagate and cause large tabular icebergs to break from ice shelves, even in the absence of any climate-driven changes."
Frétt RÚV vísar í BBC sem heimild, en þar er rætt við nokkra vísindamenn, sérfróða um Suðurskautið, og þeir eru varkárir í ályktunum. En RÚV sleppir öllu sem ekki fer saman við hamfarafrásögnina.
RÚV kallar til vitnis jarðeðlisfræðing á Veðurstofunni sem talar um ,,háværar viðvörunarbjöllur" til að gera frásögnina dramatíska.
BBC á hinn bóginn vitar í sérfræðinga sem hafa Suðurskautsísinn sem rannsóknarsvið: ,,At this stage we really don't know whether there is some larger-scale process that might be weakening this zone..."
Hvað gengur RÚV til?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)