Lilja til bjargar síðasta háskólastráknum

Ef fram heldur sem horfir útskrifast síðasti karlmaðurinn úr íslenskum háskóla á líftíma þeirra sem nú stunda háskólanám. Lilja Alfreðs er drengur góður að sporna við óheillaþróun síðustu áratuga.

Konur ráða ferðinni í skólakerfinu. Níu af hverjum tíu kennurum í grunnskóla eru konur. Þær eru í meirihluta kennaraliðs framhaldsskóla.

Kvenvæðing grunn- og framhaldsskóla leiðir til að færri drengir eru tækir í háskóla. Í skólakerfinu er litið á drengjamenningu sem aðskotahlut í helgum véum kvenna.

Háskólar mennta kennara og þar verður til sérfræðistéttin sem fer með mannaforráð í samfélaginu.

Ef annað kynið ræður ferðinni í háskólum blasir við gjaldfall menntunar. Nú þegar kvartar formaður stéttafélags háskólamenntaðra, BHM, sem auðvitað er kona, um að menntun sé ekki metin til launa.

Hvað akademíuna sjálfa varðar blasir við eyðimörk einsleitninnar. Án karla verða fræðin kerlingarbækur. Vísir þeirrar þróunar sést á sextán ára sænskri skólastelpu sem trompar viðurkennd raunvísindi með kenningu um að loftslag jarðarinnar sé manngert. Viðstöðulítil kerlingarfræði taka við og gera bábiljuna að trúarjátningu.

Lilja á verk fyrir höndum. 


mbl.is Ein stærsta áskorun samfélagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icelandair, almenningur og verkalýðshreyfing á villigötum

Icelandair er þjóðarflugfélag sem almenningur styður með hlutabréfakaupum. Stór verkalýðsfélög, Efling og VR sérstaklega, reyndu að bregða fæti fyrir hlutafjárútboðið en varð ekki ágengt.

Verkalýðshreyfingin er í höndum öfgafólks sem vill samfélaginu illt. Á meðan svo háttar veikist verkalýðshreyfingin jafnt og þétt.

Veik verkalýðshreyfing er ekki heppileg staða mála. En því miður verður sú raunin þegar hreyfingin er í tröllahöndum úrkynjaðrar hugmyndafræði sósíalisma.

 


mbl.is Eftirspurn umfram framboð: 11 þúsund hluthafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neðanmálsgrein hættir í Vinstri grænum

Rósa Björk Brynjólfsdóttir segir sig úr þingflokki Vinstri grænna, ,,endanlega" að eigin sögn.

Rósa Björk var aldrei fyllilega hluti af Vinstri grænum. Hún er ákafur ESB-sinni og átti meiri samleið með Samfylkingunni en Vinstri grænum.

Það er svo aftur talandi dæmi um vinnubrögð samfylkingarsinna að þeir sæta færis að koma höggi á aðra vinstriflokka þegar verst stendur á fyrir málstaðinn.

Saga vinstrimanna, frá stofnun Kommúnistaflokksins fyrir 90 árum, er saga sundrungar.

Rósa B. er neðanmálsgrein í sögunni endalausu um innbyrðis ósætti vinstrimanna.

 


mbl.is Rósa Björk kveður Vinstri-græna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áslaug, Katrín og tilfinningafjárkúgun vinstrimanna

Vinstrimenn gerðu sér reiðibylgju á samfélagsmiðlum vegna brottvísunar gerviflóttamanna hér á landi. Í kjölfar reiðinnar reyna sumir fyrir sér með tilfinningafjárkúgun er beindist fyrst að Áslaugu dómsmálaráðherra og síðar að Katrínu forsætis.

,,Ég mun aldrei kjósa þig," er viðkvæðið gagnvart Katrínu en Áslaugu er brugðið um kaldlyndi.

Tilfinningafjárkúgunin er útrás fólks sem allt í senn er óábyrgt, stundar sjálfsefjun og þykist vita betur en aðrir hvað sé rétt og hvað rangt í stjórnmálum. Reiðibylgjan, sem reynt er að framkalla á samfélagsmiðlum, sækir kjörfylgi sitt í þennan hóp. 

Merkilegast er að allur þorri þessa fólks er vinstrimenn.

 


RÚV: siðanefnd til að réttlæta siðleysi

Fréttir, sem byggðar eru á skáldskap eru siðlaust slúður. Falsfréttir, þar sem gögn eru fölsuð, eru einnig siðlausar. Samsæri fréttamanna og valdastofnana um að klekkja á fyrirtækjum og einstaklingum er handan allra siðareglna.

Siðareglur RÚV eru eins og mannréttindaákvæði í stjórnarskrám alræðisríkja. Fallegur bókstafur án merkingar.

RÚV skipar siðanefnd til að réttlæta siðferði Gróu á Efstaleiti.


mbl.is Ný siðanefnd Ríkisútvarpsins skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert haustfrí frá veirunni

Vonir stóðu til að hægt væri að aflétta frekar sóttvörnum um næstu mánaðarmót. Kennarar og nemendur sáu fram á að skólastarf færðist í eðlilegt horf.

Sú von er úti. Háskólinn ætlar að kenna fjarnám til áramóta hið minnsta og trauðla fá framhaldsskólar frekari undanþágur þegar veiran grasserar einkum meðal ungs fólks.

Vesen.


mbl.is Ættum að búa okkur undir nýja bylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugfélög svindla á Íslandi

Flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi stunda það að flytja inn í landið gerviflóttamenn sem skapa félagsleg vandamál hér á landi. Önnur Evrópuríki taka ekki við flóttamönnum á flugvöllum.

Þetta er ekki nýtt vandamál. Hér er 4 ára gömul umfjöllun um þetta séríslenska svindl flugfélaganna:

Í ESB-ríkjum er í gildi reglugerð 2001/51/EC sem gerir flugfélög fjárhagslega ábyrg fyrir flóttamönnum sem fá ekki stöðu hælisleitenda. Flugfélög neita þess vegna að flytja farþega frá miðausturlöndum og Afríku sem ekki eru með vegabréfsáritun.

Flugfar frá Afríku og miðausturlöndum kostar 300 til 400 evrur. Þýska útgáfan FAZ segir flóttamenn borga 7000 evrur og meira fyrir að komast í manndrápsfleytur yfir Miðjarðarhaf. Þótt krafist sé að reglugerð Evrópusambandsins, um fjárhagslega ábyrgð flugfélaga á flóttamönnum sé afnumin, eru engar líkur á því að það verði gert.

Evrópusambandið hefur ekki minnsta áhuga á að gera þetta séríslenska vandamál, flóttamenn með flugvélum, að sínu.

Einfalt er að koma í veg fyrir innflutning flugfélaganna á útlendum bótaþegum. Það er gert með því að gera flugfélögin fjárhagslega ábyrg fyrir þeim gerviflóttamönnum sem ekki fá stöðu hælisleitenda.

 


mbl.is Komast hingað skilríkjalaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamenn sækja í atvinnuleysisbætur

80 prósent þeirra 700 flóttamanna sem Ísland veitti dvalarleyfi síðustu 20 mánuðina eru á atvinnuleysisbótum, segir í frétt á visir.is Innan við tíu prósent atvinnuleysi er í landinu.

Tífaldur munur á almennu atvinnuleysi og atvinnuleysi flóttamanna segir þá sögu að flóttamenn með dvalarleyfi á Íslandi koma almennt ekki hingað til að skapa sér líf, taka þátt í samfélaginu.

Fólkið sem hingað kemur er í leit að þægilegu lífi án þess að dýfa hendi í kalt vatn. Eins og við höfum ekki nóg með dæmigerða pírata og aðra hyskna vinstrimenn.


Lýðræði undir lögregluvernd

Ólýðræðisleg öfl hér á landi nota hvert tækifæri til að grafa undan lýðveldinu og stofnunum þess.

Samfélagsmiðlar eru notaðir til að dreifa falsfréttum sem ætlað er að vekja reiðibylgju. Oftar en ekki koma ábekingar reiðbylgjunnar úr röðum stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks.

Reiðin kemur í stað orðræðu og lýðræðið fer undir lögregluvernd.

 


mbl.is Lögregla stendur vörð um ráðherrabústaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump kælir vísindin

Vísindamenn, sem ekki geta sagt hver sé kjörhiti jarðar og heldur ekki hvernig veðrið verður eftir hálfan mánuð, en segjast samt vita að eftir 20 ár verði of hlýtt, og að það sé endanleg niðurstaða vísinda, stunda ekki vísindi heldur pólitíska spámennsku.

Trump forseti kælir heimsendaspámennsku í nafni vísinda. Heimsendaiðnaðurinn veltir milljörðum dollara og ógrynni alþjóðlegra embættismanna lifir góðu lífi í skjóli hans, líkt og prelátar kaþólsku kirkjunnar á miðöldum.

Trump er í hlutverki barnsins í ævintýrinu um klæðalausa keisarann. Á henni jörð hlýnar og kólnar á víxl án þess að mannshöndin komi nærri. Augljóst öllum, - nema þeim sem eru fangar pólitískrar heimsendaspámennsku.


mbl.is „Það mun byrja að kólna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband