Flugfélög svindla á Íslandi

Flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi stunda það að flytja inn í landið gerviflóttamenn sem skapa félagsleg vandamál hér á landi. Önnur Evrópuríki taka ekki við flóttamönnum á flugvöllum.

Þetta er ekki nýtt vandamál. Hér er 4 ára gömul umfjöllun um þetta séríslenska svindl flugfélaganna:

Í ESB-ríkjum er í gildi reglugerð 2001/51/EC sem gerir flugfélög fjárhagslega ábyrg fyrir flóttamönnum sem fá ekki stöðu hælisleitenda. Flugfélög neita þess vegna að flytja farþega frá miðausturlöndum og Afríku sem ekki eru með vegabréfsáritun.

Flugfar frá Afríku og miðausturlöndum kostar 300 til 400 evrur. Þýska útgáfan FAZ segir flóttamenn borga 7000 evrur og meira fyrir að komast í manndrápsfleytur yfir Miðjarðarhaf. Þótt krafist sé að reglugerð Evrópusambandsins, um fjárhagslega ábyrgð flugfélaga á flóttamönnum sé afnumin, eru engar líkur á því að það verði gert.

Evrópusambandið hefur ekki minnsta áhuga á að gera þetta séríslenska vandamál, flóttamenn með flugvélum, að sínu.

Einfalt er að koma í veg fyrir innflutning flugfélaganna á útlendum bótaþegum. Það er gert með því að gera flugfélögin fjárhagslega ábyrg fyrir þeim gerviflóttamönnum sem ekki fá stöðu hælisleitenda.

 


mbl.is Komast hingað skilríkjalaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Stöðugur einhliða áróður gegn "hvítu" fólki, sem á víst að hafa farið svo illa með alla í heiminum, hlýtur að hafa einhvern tilgang. Varla stofna ofurríkir fantar, sem sjá guð þegar þegar líta í spegilinn, allar þessar vinstri grasrótarhreyfingar sem kosta þá billjónir af dollurum, án þess að vera búnir að gera æðri plön sem við á jörðu niðri skiljum ekki. 

Hvað þýðir - no one is illegal? Má fólk klifra yfir girðinguna hjá ofurríkum sem vilja leggja niður landamæri? En landamæri eru til þess að verja almenning sem hefur ekki efni á lífvörðum og rándýrum prívatgirðingum sem engin nema fuglinn fljúgandi kemst yfir. Ekkert flugfélag myndi voga sér að lenda í görðum ofurríkra fanta. 

Við eigum ekki taka mark á bulli.

Benedikt Halldórsson, 16.9.2020 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband