Brostnar vonir um pólitíska upplausn

Samfylking, Viðreisn og Píratar vonuðust eftir stjórnarkreppu vegna sóttvarna í fjórðu bylgju faraldursins. Katrín og Bjarni eru aftur nógu klókir stjórnmálamenn til að færa ekki stjórnarandstöðunni höfuð ríkisstjórnarinnar á silfurfati kortéri fyrir kosningar.

Allir fá sitt í sóttvarnarpakkanum. Aðgerðasinnar og afskiptaleysissinnar geta hvorir tveggja hrósað sigri sem og breiðfylking meðalhófsmanna.

Án þess að segja það upphátt verður ríkisstjórnin sem heild í framboði til þingkosninganna í september. Undir merkjum þriggja flokka, eins og gefur að skilja. Ríkisstjórnarsamstaða um sóttvarnir er ótvírætt til marks um þann ásetning.

Það þroskamerki lýðræðisins hér á Fróni að þriggja flokka ríkisstjórn, skipuð jafn ólíkum flokkum og Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum, skuli sigla þjóðarskútunni í höfn eftir farsæla vertíð. 


mbl.is Bylgjan ekki haft áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnisblaðapólitík og lífstíll

Það er ákveðinn lífstíll að spritta sig, bera grímu á almannafæri, stunda vinnu og nám heima hjá sér og hitta helst ekki fólk í kjötheimum, aðeins á skjánum. Bónus við þennan lífstíl er að fólk getur talið sér trú um að hann bjargi öðrum, gefi líf og heilsu. Svipað og að gefa blóð.

Svo eru aðrir meira fyrir þann lífstíl að láta skeika sköpuðu. Lífinu fylgir áhætta. Röskun á daglegu lifi megi ekki leyfa nema að yfirvofandi sé bráðahætta.

Í þriðja lagi er það lífstíll meðalhófs sem reynir að feta einstigið á milli hinna tveggja.

Þá er gott að fá minnisblað frá lögmætu yfirvaldi með gnótt pólitískt kapítal í sérgreindum málaflokki sem leggur til að þessar og hinar ráðstafanir séu gerðar í nafni lýðheilsu.

Minnisblaðapólitík er ráðandi. Sést best á því að samanlögð stjórnarandstaðan steinþegir með öndina í hálsinum og bíður eftir tvennu. Í fyrsta lagi að minnisblaðið verði opinberað og í öðru lagi hvort og hvernig landsstjórnin ætlar innleiða efnisatriði blaðsins.

Meðalhófið er vandratað.


mbl.is Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálfræði, farsótt og pólitík

Stór hluti þjóðarinnar er bólusettur við Kínaveirunni. Í fjórðu bylgju veirunnar er ekki ljóst hvort og hvernig eigi að bregðast við. Það er ekki til nein uppskrift. Á þessa leið mælist Katrínu forsætis í viðtali við Fréttablaðið.

Arnar Pálsson erfðafræðingur útskýrir í Kjarnanum hvers vegna bólusett þjóð sé útsett fyrir fjórðu bylgjuna. Stutta svarið er að bóluefni veita í kringum 80 prósent vörn við smiti annars vegar og hins vegar að þeir sem sýkjast verða minna veikir en óbólusettir.

Fyrir leikmann hljómar þetta eins og fjórða bylgjan sé álíka hættuleg og skæð vetrarflensa. Og ekki eru hafðar uppi samfélagsvarnir gegn árlegri flensu.

En málið er ekki svona einfalt. Sálfræði sóttvarna á tíma Kínaveiru gengur út á að veirunni beri að útrýma. En það er óvart ekki hægt, sbr. viðtalið við Arnar Pálsson. En það má heldur ekki gera ekki neitt, samkvæmt sömu sálfræði.

Við sitjum uppi með mótsögn. Það má ekki sitja með hendur í skauti en engar ráðstafanir eru nægar til að ná yfirlýstu markmiði - að útrýma veirunni sem sífellt sýnir sig í nýjum afbrigðum.

Til að bæta gráu ofan á svart koma menn eins og Birgir forstjóri Play og heimta að ríkisstjórnin ákveði framtíðina í farsóttarheimi. En það er heldur ekki hægt. Það er miklu stærra helvítis fokk út í heimi en á Fróni út af veiruskrattanum.

En svo vill til að það er hægt að leysa mótsögnina, góðu heilli, og finna lausn sem bæði er sanngjörn, málefnaleg m.t.t. aðstæðna og hófleg. Lausnin liggur í málamiðlun. Að grípa til ráðstafana við landamærin, eins og þegar hefur verið gert, og setja reglur innanlands sem stemma stigu við fjórðu bylgjunni.

Hverjar eiga þær reglur að vera? Tja, það er pólitískt úrlausnarefni.


mbl.is Kallar eftir framtíðarsýn stjórnvalda í faraldrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krónan staðfestir: EES-samningurinn er ónýtur

EES-samningurinn er tæplega 30 ára gamall, ætlaður þjóðum á leið í Evrópusambandið. Í dag eru það 3 smáríki, Ísland, Noregur og Liechtenstein, sem eiga aðild að samningnum á móti ESB. Bretum datt ekki í hug að ánetjast samningnum eftir útgöngu úr ESB með Brexit.

EES er vasaútgáfa af inngöngusamningi í Evrópusambandið. Ísland hætti við aðild að ESB áramótin 2012/2013 í tíð vinstristjórnar Jóhönnu Sig. Það er ekki pólitískur vilji til að Ísland gangi í ESB. Eftir Brexit er það pólitískur ómöguleiki.

Stefna verslunarkeðjunnar Krónunnar gegn íslenska ríkinu er á grunni EES-samningsins. Krónan telur sig eiga bætur inni hjá almenningi, ríkissjóði, vegna þess að ítrustu ákvæði EES voru ekki nýtt til að flytja inn í landið evrópska iðnaðarvöru undir merkjum landbúnaðar s.s. egg, kjöt og mjólkurvörur.

Líkt og aðrar þjóðir standa Íslendingar vörð um innlenda matvælaframleiðslu. Málssókn Krónunnar sýnir að innan ramma EES-samningsins er ekki hægt að gæta innlendra hagsmuna gagnvart útlöndum.

EES-samningnum á að segja upp strax. Samningurinn er óboðlegur fullvalda ríki.


mbl.is Krónan fer fram á milljarð í bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðræðisfrétt RÚV

Heimilisfastur samfylkingarmaður, Eiríkur Bergmann, var leiddur fram í hádeginu af hagsmunahópnum á Efstaleiti til að segja þetta:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi nánast tekið sér stöðu í stjórnarandstöðu í málinu. Með ummælum sínum í fjölmiðlum þá lýsi hún í raun andstöðu við ákvörðun eigin ríkisstjórnar.

Fréttin er búin til, hönnuð, til að valda pólitískum usla.

Það er engin frétt að samfylkingarmaður telji ríkisstjórnina loga í ófriði og að  stjórnarkreppa sé á næsta leiti. 

Lausaganga hagsmunahópsins á Efstaleiti er til óþurftar fyrir land og lýð.


Ópólitískar sóttvarnir

Íslendingum var það til heilla í fyrri bylgjum Kínaveirunnar að sóttvarnir voru hér minna pólitískar en víða á vesturlöndum. Líkt og eðlilegt er var hér umræða um hversu langt ætti að ganga í sóttvörnum og sýndist fólki ýmist of eða van.

Þrátt fyrir umræðu gerðu pólitísk öfl það ekki að stórmáli hvernig haga skyldi veiruvörnum. Skotfæri eru þó næg. Það er enn óvissa um veiruna og afleiðingar hennar. Almennt er það línan á vesturlöndum að lýðheilsa sé í forgangi en efnahagslegir hagsmunir víkja.

Meðfram beinum áhrifum veiru og sóttvarna á lýðheilsu og efnahag eru umræðukimar, að ekki sé sagt samsæriskenningar, um óbeinar afleiðingar. Talað er um sérfræðiveldi er taki völdin af stjórnvöldum, að bóluefni séu ýmist lífshættuleg eða hluti af heimssamsæri um hugarstjórnun myrkra afla. Fleira í sama dúr, sumt innan skynsemismarka og annað handan þeirra, er til umræðu þar sem meira og minna allir geta tekið til máls - og það er misjafn sauður í mörgu fé.

Úr öllu þessu má gera pólitík á kosningaári, séu menn nógu ósvífnir. En það má líka temja sér hófstillingu og yfirvegun. Meiri líkur en minni eru á því að kjósendur verðlauni í september skynsemi fremur en yfir- og undirboð í sóttvörnum.   


mbl.is 44 smit greindust – 38 innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beint lýðræði og samfélagsmiðlar

Beint lýðræði varð tískuhugmynd fyrir 15 árum eða svo þegar möguleikar alnetsins opnuðu á að fólk gæti kosið um menn og málefni í ró og næði heima hjá sér.

Heldur hefur dofnað áhuginn seinni árin á beinu lýðræði. Líkleg skýring er hvernig samfélagsmiðlar hafa þróast. 

Á samfélagsmiðlum eru greidd atkvæði í þeim skilningi að fólk segir álit sitt á dægurmálum. Í meðfylgjandi frétt segir skotveiðimaður frá reynslu sinni og ekki er það falleg saga.

,,Virkir í athugasemdum" er kannski ekki sá kjósendahópur sem gerir lýðræðið áferðafallegast.


mbl.is „Hraunað yfir mig alveg hægri vinstri“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kauphöllin rauð en þjóðin sæl

Flugfélögin Play og Icelandair féllu um 4,35% og 3,9% í verði eftir að ríkisstjórnin tilkynnti nýjar sóttvarnir á landamærunum. Kauphöllin var nær öll rauð en ferðaþjónustan lækkaði mest.

Leikjaröðin í sóttvörnum er þvinguð. Ef hætta er á að ný afbrigði Kínaveirunnar valdi usla þarf að grípa til aðgerða. Rökrétt er að aðgerðir hefjast við landamærin. Ef þær duga ekki þarf meira til.

Það er mun meira þanþolið hjá almenningi að láta yfir sig ganga takmarkanir yfir sumarið en búa við skólalokanir og stopp á menningu og mannfagnað í haust.


mbl.is Aðgerðir innanlands ekki útilokaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigðir og sjúkir, Gates og Soros

Auðjöfrarnir Bill Gates og George Soros kaupa ásamt öðrum breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á hraðprófum fyrir sjúkdóma eins og COVID-19. Fréttin er úr Telegraph sem þykir þokkalega áreiðanleg fréttaveita.

Menn eins og Gates og Soros eru þekktir fyrir að horfa til framtíðar í fjárfestingum sínum. Kaupin á breska fyrirtækinu má hafa til marks um að félagarnir meti stöðu mála þannig að eftirspurn verði til frambúðar á hraðprófi vegna smitsjúkdóma eins og COVID-19.

Nú þegar eru gefnar út í Bandaríkjunum og Evrópu ýmsar útgáfur af bólusetningarvottorðum, n.k. heilsufarsvegabréf. Handhafar slíkra vegabréfa eru frjálsari ferða sinna innanlands og utan en þeir sem eru án vegabréfanna.

Almenningur á vesturlöndum í það stóra og heila virðist fylgjandi stórauknu eftirliti hins opinbera á heilsufari og sættir sig jafnframt við margvíslegar hömlur á daglegu lífi sbr. skyldu til að bera andlitsgrímu, skerðing á atvinnu- og ferðafrelsi o.s. frv.

Farsóttir á borð við þá sem Kínaveiran veldur ganga að jafnaði yfir á tveim til fjórum árum. Teikn eru ótvíræð um að heimurinn breytist varanlega með þessari farsótt og fari ekki í sama farveg og fyrir kóf. Gates og Soros eru framsýnir fjárfestar.


mbl.is Einkennin ýmist væg eða engin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræsni, fíkn og ferðalög

Ferðalöngun er fíkn hliðstæð ofáti og alkahólisma, segir í bandarísku vinstriútgáfunni New Republic. Í könnun, sem vitnað er til, segir að meirihluti 18 til 35 ára aðspurðra vildu fremur sleppa kynlífi en ferðalögum.

Það sem verra er, segir í greininni, er að ferðalög bera ábyrgð á heilum átta prósentum af losun alls mannkyns á gróðurhúsalofttegundum. Fyrir þá sem trúa á loftslagsbreytingar af mannavöldum eru ferðalög bannvara. 

Þeir sem í einu orðinu segjast hafa áhyggjur af losun gróðurhúsalofttegunda en kaupa sér engu að síður farmiða eru í mótsögn við sjálfa sig, eru hræsnarar. Þeir lifa tvöföldu lífi, þykjast góða fólkið en eru í raun fíklar í þjónustu myrkraaflanna. 

Umræðan um heimsvá af völdum manngerðs veðurfars er, eins og sæmilega læsir vita, útbelgd af hræsni. Það má drepa tímann á sunnudagsmorgni við að sitja heima hjá sér, ferðast innanhúss, og skrifa um tvöfeldni mannlífsins.


mbl.is Hraður viðsnúningur í ferðaþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband