Skaðræðisfrétt RÚV

Heimilisfastur samfylkingarmaður, Eiríkur Bergmann, var leiddur fram í hádeginu af hagsmunahópnum á Efstaleiti til að segja þetta:

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi nánast tekið sér stöðu í stjórnarandstöðu í málinu. Með ummælum sínum í fjölmiðlum þá lýsi hún í raun andstöðu við ákvörðun eigin ríkisstjórnar.

Fréttin er búin til, hönnuð, til að valda pólitískum usla.

Það er engin frétt að samfylkingarmaður telji ríkisstjórnina loga í ófriði og að  stjórnarkreppa sé á næsta leiti. 

Lausaganga hagsmunahópsins á Efstaleiti er til óþurftar fyrir land og lýð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ertu ekki sammála mér í því að nýta tækifærið tengt nýrri stjórnarskrá

og taka upp FORSETA-ÞINGRÆÐI hér á landi

(eins og er í frakklandi)

þannig að FORSETI ÍSLANDS þyrfti þá sjálfur að axla raunverulega ábyrgð

á sinni þjóð með því að hann þyrfti sjálfur

að leggja af stað með stefnurnar í öllum stóru málunum

og standa eða að falla með þeim á kjördag?

Þó að það þyrfti að kjósa slíkan FORSETA í tveimur kosningaumferðum

þannig að viðkomandi hefði allavega 51% kosningamannabærra manna á bak við sig;

að þá gæti slíkt verið skárri kostur

en sú flokka-flækja sem að blasir við okkur

í bæði íslenskum og sænskum stjórnmálum í dag.

 

=Er ekki best að EITT HÖFUÐ tali fyrir ríkisstjórn íslands/

og er ekki best að það væri pólitískur forseti sem að hefði 

allavega 51% kosningabærra manna á bak við sig?

Jón Þórhallsson, 20.7.2021 kl. 17:07

2 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

...nú úr því að höfundur er, enn á ný, kominn í eftiráspeki-gírinn, þá hlýtur að vera upplagt að spyrja höfund, þar sem hann virðist vita allt hvað fór fram hjá RÚV og hvað sé búið til , líklega þekkir blaðamaðurinn, höfundur það greinilega af reynslu sinni, um t.d hvar líkin af þeim Guðmundi og Geirfinni heitunum sé að finna. Nú þá væri nú ekki verra að vita hvað frúin í Hamborg gerði við aurinn sinn.....

Spyr sá sem ekki veit.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 20.7.2021 kl. 18:59

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Fréttastofa ruv hefur verið við sama heygarðshornið síðan ég man fyrst eftir mér. Sífelldur vinstriáróður.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.7.2021 kl. 20:32

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Hefði dómsmálaráðherra sagt þvert nei og stoppað málið þá hefði það verið frétt. En dómsmála hafði bara aðra skoðun en lét þar við sitja = engin frétt. 

Ragnhildur Kolka, 21.7.2021 kl. 08:44

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Rétt, pólitískt inngrip kommanna á RÚV enda Sigmar kominn í   beint framboð

Halldór Jónsson, 22.7.2021 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband