Minnisblaðapólitík og lífstíll

Það er ákveðinn lífstíll að spritta sig, bera grímu á almannafæri, stunda vinnu og nám heima hjá sér og hitta helst ekki fólk í kjötheimum, aðeins á skjánum. Bónus við þennan lífstíl er að fólk getur talið sér trú um að hann bjargi öðrum, gefi líf og heilsu. Svipað og að gefa blóð.

Svo eru aðrir meira fyrir þann lífstíl að láta skeika sköpuðu. Lífinu fylgir áhætta. Röskun á daglegu lifi megi ekki leyfa nema að yfirvofandi sé bráðahætta.

Í þriðja lagi er það lífstíll meðalhófs sem reynir að feta einstigið á milli hinna tveggja.

Þá er gott að fá minnisblað frá lögmætu yfirvaldi með gnótt pólitískt kapítal í sérgreindum málaflokki sem leggur til að þessar og hinar ráðstafanir séu gerðar í nafni lýðheilsu.

Minnisblaðapólitík er ráðandi. Sést best á því að samanlögð stjórnarandstaðan steinþegir með öndina í hálsinum og bíður eftir tvennu. Í fyrsta lagi að minnisblaðið verði opinberað og í öðru lagi hvort og hvernig landsstjórnin ætlar innleiða efnisatriði blaðsins.

Meðalhófið er vandratað.


mbl.is Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að viðurkenndir vísindamenn komast að því að 5G-SÍMTURNAKERFIÐ sé að skapa sömu sjúkdómseinkenni og covid-einkenni; að þá hlýtur meinsemdin að ferðast meira um samfélög /líkama fólks

með sama hætti og geislavirkni

en að þar sé ekki um að ræða einhverjar sýklapöddur

sem að séu svífandi inn um öndunarfæri fólks eða um skítugar hendur:

https://thegoodlylawfulsociety.org/nih-admits-5g-can-actually-create-coronavirus-within-human-cells/?fbclid=IwAR1mpY2fe-B8xUNXWZr6yTFAuSjLS3Cz-yr1IPWPlMxeiI-C3q37e-RmfYA

Jón Þórhallsson, 23.7.2021 kl. 10:31

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þessir gulu klísturmiðar heilbrigðisyfirvalda virðast hafa dýpra vægi en lagasetningar. Kannski er þetta framtíðin. Minnismiðar á ískápshurðum alþingis gætu veitt þingheimi alvald.

Jón Steinar Ragnarsson, 23.7.2021 kl. 16:45

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Helga Vala tekur andköf yfir ferðamátanum.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 23.7.2021 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband