Pólitísk hagfræðitilraun ESB

Forsætisráðherra Spánar tilkynnti fimm prósent launalækkun opinberra starfsmanna, frystingu á hækkunum lífeyris, lækkun framlaga til landshlutanna og fleira sem á að lækka halla ríkissjóðs Spánar úr tæpum tólf prósent í sex. Spánn er að gera sig tilbúinn að taka við stuðningi úr neyðarsjóði ESB líkt og Grikkir.

Innlend kostnaðarlækkun evru-ríkja kemur í stað gengislækkunar hjá Íslendingum, Svíum og Bretum sem hafa sjálfstæðan gjaldmiðil. Enginn veit hvort tilraunin tekst en það er pólitísk krafa Þjóðverja sem borga bróðurpartinn af lánum til óreiðuríkjanna í Suður-Evrópu.

Þjóðverjar gera sig líklega til að krefjast endurskoðunar á nýsamþykktum Lissabonsáttmála til að fá heimildir að stýra fjárlagagerð einstakra ríkja. 

Hvort sem pólitísk hagfræðitilraun ESB heppnast eða ekki er augljóst að Evrópusambandið tekur stakkaskiptum.

Hér fjallar Irish Times um kröfu Merkel um breyttan sáttmála.

Hér er fréttaskýring í Telegraph um evru-ríkin.

 


Aðeins fábjánar treysta Jóni Ásgeiri

Gylfi Magnússon ber ábyrgð á nýskipan bankamála á Íslandi. Svo herfilega tókst til að á jötuna þar röðuðust treggáfaðir bankamenn sem halda áfram eins og ekkert hafi í skorist að  stunda viðskipti við útrásarauðmenn.

Arion banki heldur uppi Baugsfjölskyldunni og leyfir henni að fáoka matvörumarkaðinn. Landsbankinn veitir Jóni Ásgeiri fyrirgreiðslu vegna 365-miðla.

Illa gerðir bankamenn skara eld að köku glæpalýðsins og festa spillinguna í sessi. Viðskiptaráðherra ber ábyrgð.


mbl.is Gylfi treystir íslenskum bankamönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pressan er skálkaskjól auðmanna

Jón Ásgeir nýtti sér netmiðilinn Pressuna  í síðustu viku til að koma á framfæri upplýsingum um kyrrsetningarmál sín áður en þau birtust í fréttum Stöðvar 2. Tilgangurinn var að eyðileggja frétt Stöðvar 2.  Fréttastjórinn á þeim bæ var eiganda sínum óþægur og hafði í frammi tilburði að segja fréttir í óþökk Jóns Ásgeirs. Fréttastjórinn fauk í vikunni en trúlega var það lítil huggun Baugsstjórans sem kominn er út í horn.

Pressan staðfestir hlutverk sitt með fagurfréttum af Sigurði Einarssyni fyrrum æðstráðanda Kaupþings sem er á flótta undan réttvísinni. Í morgun er frétt um brasilískan lögmann sem ætlar að sanna að pólitískar ofsóknir séu að baki aðförinni að Sigurði Einarssyni.

Björn Ingi Hrafnsson, Bingi, er skráður eigandi Pressunnar. Hann var gerandi í REI-málinu þegar færa átti auðmönnum almannaeigur OR á silfurfati. 

Fjármögnun Pressunnar er á huldu. Auglýsingatekjur eru innan við tvær milljónir kr. á mánuði en starfsmenn tæplega tuttugu. Hvernig fjármagnar Bingi mismuninn? Tja, líklega með álíka hætti og hann varð sér út um föt sem borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.


Jón Ásgeir vill samfylkingarréttlæti

Nóttina áður en Glitnir, bankinn hans Jóns Ásgeirs, lýsti sig gjaldþrota var viðskiptaráðherra lýðveldisins, samfylkingarmaðurinn Björgvin G. Sigurðsson, kallaður á teppið hjá Jóni Ásgeiri og hann hundskammaður fyrir að útvega Glitni ekki þá fyrirgreiðslu í Seðlabankanum sem ætlast var til.

Maður með þá stöðu að stefna ráðherrum til sín um miðja nótt vill eðlilega að stunda málsvörn sína undir þeim kringumstæðum. Samfylkingin er í ríkisstjórn og á velmektarárum sínum gerði Jón Ásgeir þann flokk að pólitískum armi Baugsveldisins.

Krafa Jóns Ásgeirs um að mál hans fá afgreiðslu hér á landi staðfestir að hann telur sig hafa tögl og haldir á Fróni. 


mbl.is Ætlar ekki að taka til varna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðhlauparar finna til tevatnsins

Íslensku útrásarauðmennirnir áttu sér samverkamenn í liði endurskoðenda, lögfræðinga, álitsgjafa og blaðamanna. Án meðhlauparanna hefði skaðinn ekki orðið jafn mikill og raun ber vitni. Endurskoðendur eiga að starfa samkvæmt góðum reikningsskilavenjum en þær hafa ekki verið hafðar í heiðri.

Ef endurskoðun reikninga á að hafa einhverja þýðingu þarf ábyrgð að fylgja. Nú reynir á ábyrgðina.


mbl.is Telja vanrækslu PwC kosta 130 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir á framfæri Arion banka

Öll sund eru lokuð Jóni Ásgeiri Baugsstjóra; kyrrsetning eigna heima og erlendis auk skattakrafna og málssóknar. Arion banki er aftur á móti dyggur stuðningsmaður Jóns Ásgeirs og leyfir honum að stýra fákeppnisveldinu Högum.

Jón Ásgeir launar ábyggilega Arion banka ríkulega það traust sem bankinn sýnir honum. 


mbl.is Óskað eftir kyrrsetningu hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öskjuhlíðar-Pálmi í gagnsókn

Í byrjun aldar var Pálmi Haraldsson afhjúpaður sem einn af samsærismönnunum í Öskjuhlíðinni þar sem grænmetisverð var ákveðið ólöglega. Pálmi lærði af þeirri reynslu að nauðsynlegt er að stjórna umræðunni enda var það hún fremur en sakargiftir sem tættu af Pálma æruna.

Til að tryggja sér hagfellda umræðu tók Pálmi þátt í fjölmiðlaeignarhaldi Jóns Ásgeirs en þeir félagarnar stunduðu saman viðskipti í FL-group, Glitni og víðar.

Pálmi er í sömu sporum og Sigurður Einarsson fyrrum Kaupþingstjóri. Báðir ímynda þeir sér að hrunið komi þeim mest lítið við. Þeir telja sig vera í þeirri stöðu að setja skilyrðin. Sá tími er liðinn.


mbl.is Pálmi segir málsókn byggða á misskilningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hroki, Interpol og ferilsskráin

Sigurður Einarsson auglýsir hroka sinn með því að verða ekki við tilmælum um að gefa sig fram til yfirheyrslu. Líklega hefur Sigurður talið sig í samningsstöðu sem fyrrverandi aðalstjórnandi stærsta fyrirtækis landsins.

Sigurði verður að virða til vorkunnar að teikn voru á lofti um að ríkisstjórnin vildi taka auðmenn í sátt. Í boði Samfylkingar átti Björgólfur Thor að fá lög um gagnaverið sitt; Jón Ásgeir skyldi halda Högum og 365-miðlum og Ólafur Ólafsson Samskipum - hvorttveggja samkvæmt fjarska undarlegum ákvörðunum Arion banka sem starfar í skjóli ríkisstjórnarinnar. 

Handtaka Hreiðars Más Kaupþingsstjóra og fréttir af kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs og Hannesar Smárasonar sýndu að þótt ríkisstjórnin sé tilbúin með aflátsbréf handa auðmönnum verða tannhjól ákæruvaldsins ekki stöðvuð úr þessu.

Ferilsskrá Sigurðar batnar ekki með handtökuskipun Interpol. 


mbl.is Interpol lýsir eftir Sigurði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður Einarsson eftirlýstur

Kolsvört hrunskrá Sigurðar Einarssonar Kaupþingsstjóra sem Sjónvarpið  tíundaði í kvöldfréttum er ástæða fyrir flótta hans undan réttvísinni. Alþjóðleg handtökuskipum er gefin út á Sigurð og hann þarf annað tveggja að gefa sig fram eða flýja úr einum felustað yfir í annan eins og réttur og sléttur glæpamaður.

Flótti Sigurðar undirstrikar forherðingu fyrrum súperstjörnu íslensku bankanna.

 

 


Samfélag glæpamanna

Útrásarsamfélagið íslenska var fámennt og löngu komið yfir það að fara á svig við reglur þegar hrunið varð. Skipulegur og einbeittur brotavilji kom fram í viðskiptum með hlutbréf og heil rekstarfélög þar sem all nokkrir aðilar komum sér saman um að handstýra verðmætum sem í orði kveðnu áttu að lúta markaðslögmálum. Almenningur var féflettur með þessum hætti.

Glæpahjörðin hér heima réð lögum og lofum í stjórnmálum og fjölmiðlum. Þegar glæpakúltúr verður ríkjandi er ónauðsynlegt að beita grófum ógnunum; fólk veit hvað til síns friðar heyrir og vill ekki verða sett út af sakramentinu.

Útrásin stóð yfir í tæpan áratug. Álíka tími mun fara í að gera upp sakirnar og ná áttum.


mbl.is „Skipulögð glæpastarfsemi“ Kaupþingsmanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband