Frambjóðendur sem hræðast stjórnmál

Héralegasta framboðið er samfylkingarlistinn í Reykjavík. Frambjóðendur Samfylkingarinnar þora ekki að hafa skoðun á máli málanna, samspili spillingar í stjórnmálum og hruninu. Hjálmar Sveinsson, sem skipar fjórða sæti listans, segir það ekki hlutverk hans og framboðsins að ganga fram fyrir skjöldu og krefjast afsagnar fyrrum borgarstjóra Samfylkingarinnar, Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, sem þáði tugmilljónastyrki útrásarfyrirtækja.

Rök Hjálmars eru þessi

Hins vegar væri það lúalegt af okkur borgarstjórnarframbjóðendum að fara að krefjast þess núna [þ.e. afsagnar Steinunnar Valdísar]  rétt fyrir kosningar, og ekki okkar hlutverk.

Ástæðan fyrir andúð almennings á stjórnmálamönnum er hræðsla þeirra við að taka afstöðu til brýnustu málefna samtímans.

Þegar frambjóðandi Samfylkingarinnar segir það ekki sitt hlutverk taka afstöðu til pólitískra prinsippmála er engin ástæða til að taka viðkomandi alvarlega. Þá er heiðarlegt grín betri kostur.

 


Viðskiptafélagi Samfylkingar og pólitíska lausnin

Björgólfur Thor átti Landsbankann ásamt föður sínum sem er raðgjaldþrotamaður. Við eigum eftir að gera upp sóðaslóðina sem Björgólfur skilur eftir sig. Á sama tíma og öll spjót standa á okkur vegna Icesave-málsins reynir Samfylkingin að fá samþykkt frumvarp á alþingi fyrir gagnaveri Björgólfs. 

Skilaboðin sem Samfylkingin sendir til útlanda er að Björgólfur Thor sé góður pappír í augum ríkisstjórnar Íslands.

Að lokum verður Icesave-máli leyst á pólitískum vettvangi. Samfylkingin getur ekki verið í ríkisstjórn þegar það gerist.


mbl.is Ísland braut gegn tilskipun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti sjens í Reykjanesbæ

Íbúar í Reykjanesbæ búa við meirihluta braskara sem hafa beitt bæjarsjóð fjármálaverkfræði útrásarinnar með rökréttum afleiðingum þar sem reksturinn stefnir í þrot. Grein með yfirskriftinni Búa bara hálfvitar í Reykjanesbæ fær dreifingu í netheimum en þar eru afrekin tíunduð.

Árni Sigfússon bæjarstjóri er aðalhönnuður þrotastefnunnar sem fylgt hefur verið í Reykjanesbæ. Hann eins og margir útrásarmenn forherðist í afstöðu sinni þótt veruleikinn hafi afhjúpað braskið.

Til að halda blekkingunni gangandi þarf Árni útlent fé inn í atvinnulífið. Sala á HS Orku til Magma er nýr snúningur á almannahagsmunum.

Íbúar Reykjanesbæjar eru ekki hálfvitar.


Klofningurinn eflir Vg

Andófsdeildin í Vinstrihreyfingunni grænu framboði heldur lífinu í flokknum. Almenningur þekkir hugsjónastjórnmálamenn frá sérgæskuliðinu. Ögmundur, Lilja Móses, Guðfríður Lilja og Ásmundur eru stjórnmálamenn grasrótarinnar. Þau eru ástæðan fyrir því að fjöldaflótti er ekki brostinn á fylgi Vg líkt og S-flokkarnir finna fyrir.

Jóhanna Sig. kom fram í RÚV-fréttum að skamma andófsliðið. Ögmundur kvittar fyrir í dag.

Almenningur setur þó takmörk fyrir aðdáun sinni á hugsjónafólki. Karlahatarinn í fyrsta sæti lista Vg í Reykjavík liggur utan marka.


Leikhús fjórflokksins er án áhorfenda

Fjórflokkurinn setur sýningar á svið þar sem tveir eða fleiri flokkar leika hlutverkin sín. Við kosningar, og stundum án kosninga, er skipt um sýningu en þess er ávallt gætt að einhver fjórflokksins fái hlutverk.

Almenningur áttar sig á því að fjórflokkurinn býður upp á sömu sýninguna þótt aðalhlutverkin skipti um hendur. Mærðardrama Jóhönnu Sig. er sama sýningin og Sirkus Geira smart.

Þegar áhorfendur flykkjast á brandarasýningu Besta flokksins er augljóst að leikhús fjórflokksins ætti að loka sem fyrst. 


mbl.is Gæti stefnt í byltingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirveðsettur bæjarstjóri og sterahagkerfi Magma

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar braskaði og tapaði í útrásinni. Um það vitnar húseign bæjarstjórans suður með sjó en íbúðarhúsnæðið er veðsett fyrir tvöföldu andvirði þess. Ef hagkerfið fer ekki á fljúgandi ferð næstu misserin er bæjarstjórinn kominn í þrot.

Árni reynir að keyra upp hagkerfið með sterum. Hann ætlar að lána Magma stóran hluta kaupverðs HS Orku til að huldufyrirtækið taki snúning á íslensku efnahagskerfi þar sem langtímahagsmunum er fórnað á altari skammtímagróða - rétt eins og í útrásinni.

Íbúar Reykjanesbæjar eru á laugardaginn í stöðu til að stöðva þessi áform. Ef Árni verður bæjarstjóri áfram verður ekki hægt að stöðva Magma-málið.

 


ESB er sjúklingur heimshagkerfisins

Hrægammarnir sitja um Evrópusambandið. Ekki vegna andúðar á verkefninu um sameinaða álfu heldur af hinu að æ færri trúa að myntsamstarf ESB fái staðist og þegar það fellur er hægt að græða heila gommu.

Fjölmiðlar í álfunni hafa undanfarið sagt lesendum sínum að Evrópubúar hafi lifað um efni fram í nokkur ár. Leiðréttingin hafi komið vonum seinna sökum lágra vaxta á heimsvísu.

Leiðrétting á lífskjörum meðaljónsins verður ekki söm og jöfn yfir línuna. Suður-Evrópuþjóðir gengu hraðar um gleðinnar dyr en þjóðir í norðri.

Evrópusambandið slítur með þann vanda að Grikkjum finnst engin ástæða til að Þjóðverjar segi þeim að spara.

Brósi á Telegraphhittir naglann á höfuðið um leið og hann skensar Delores forseta framkvæmdastjórnarinnar í Brussel á síðustu öld sem ber meginábyrgð á evrunni.

The North-South divide within EMU has been allowed to go so far that any solution must now be offensive to either side, and therefore will be resisted. The euro is becoming an engine of intra-European tribal hatred. Brilliant work, Monsieur Delors.


mbl.is Mikil lækkun á mörkuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg um Steingrím J.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður vinstri grænna fékk fyrir ári það verkefni að koma í veg fyrir að Magma eignaðist HS Orku. Steingrímur J. mátti ekki vera að því að sinna þessu verkefni.

Nú er spurt um tilgang þess að halda úti flokki sem heitir Vinstrihreyfingin grænt framboð ef formannsnefnan er slík rola að sitja í ríkisstjórn sem lætur yfir sig ganga að orkulindir þjóðarinnar komast í hendur braskara.

Í stað þess að svara fyrir sig skýlir Steingrímur J. sig á bakvið rakkana sína í þingflokknum, þá Björn Val og Árna Þór. Þeir eru skjaldborg formannsins.

 

 


Pálmi, Jón Ásgeir og týndu milljarðarnir

Nánasti viðskiptafélagi Pálma í Fons var Jón Ásgeir í Baugi. Týndu milljarðarnir eru líkast til í umferð hjá Jóni Ásgeiri. Sigurður Guðjónsson lögmaður og fyrrum stjórnarmaður í Fons og Glitni hlýtur að vera maðurinn með milligönguna.

Brandarayfirvöld hér á landi hafa aftur gefið Jóni Ásgeiri syndakvittun enda færa hann að valsa hér um eins og hann eigi landið og miðin og ekkert hrun hafi orðið.

 


mbl.is RÚV: Þriggja milljarða leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

X-D er atkvæði greitt Gulla Þór styrkþega

Kjósendur greiða Guðlaugi Þór Þórðarssyni fyrrum ráðherra og stórstyrkþega FL-group, Baugs, Glitnis og fleiri útrásaraðila þegar þeir ganga að kjörborði næsta laugardag. Guðlaugur Þór stillti sér upp sem brjóstvörn Sjálfstæðisflokksins í viðtali á sjónvarpsstöð.

Guðlaugur Þór hlýtur að axla ábyrgð þegar atkvæðin koma í hús.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband