Sunnudagur, 5. mars 2023
RÚV eftir afsökun Aftenposten
Aftenposten Innsikt baðst afsökunar að hafa birt ásakanir Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara í garð Samherja um mútugjafir í Namibíu. Danski blaðamaðurinn Lasse Skytt skrifaði norræna útgáfu af Kveiksþætti RÚV frá 12. nóvember 2019.
Skytt er lausablaðamaður og seldi Aftenposten Innsikt samantektina. Eftir að hún birtist í febrúarútgáfu tímaritsins fékk ritstjórinn ábendingar um að fréttin héldi ekki máli þar sem aðeins einn væri til frásagnar, - Jóhannes Stefánsson.
Tine Skarland ritstjóri Aftenposten Innsikt ákvað að hefja rannsókn á samantekt Skytt þar sem ekki virtist allt með felldu. Skytt er beðinn að benda á fleiri heimildir en Jóhannes Stefánsson sem staðfesta að Samherji hafi greitt namibískum stjórnmála- og embættismönnum mútur í skiptum fyrir kvóta. Þessar heimildir gætu verið dómsskjöl, vitnisburður annarra eða tölvupóstar þar sem lagt er á ráðin.
En Skytt, sem tók ítarlegt viðtal við Jóhannes, gat ekki lagt fram eina einustu heimild sem styður frásögn uppljóstrarans. Enga. Samt stendur dómsmál yfir í Namibíu. En þar er óvart Samherji brotaþoli en ekki gerandi. Tilfallandi athugasemd fjallaði um dómsmálið þar syðra og sagði
Samherji einfaldlega keypti kvóta af Fishcor og greiddi fyrir samkvæmt gildandi lögum og reglum. Samherji er brotaþoli, útgerðin var blekkt af namibískum embættismanni, undirmanni Esau.
Skytt gat sem sagt ekki stutt ásakanir Jóhannesar gögnum. Hvað gera bændur þá? Ef um er að ræða fagmenn sem bera virðingu fyrir sjálfum sér og starfinu biðjast þeir afsökunar á að hafa hlaupið á sig og birt sem fréttir tilhæfulausar ásakanir.
Tine Skarland ritstjóri Aftenposten Innsikt bað lesendur sína afsökunar með ítarlegum pistli þar sem beðist er velvirðingar á að verkferlar útgáfunnar hafi brugðist. Í yfirlýsingu Aftenposten Innsikt segir m.a.
Greinin hafði að geyma fjölda staðhæfinga og ekki kom nægilega vel fram að umræddar staðhæfingarnar væru einhliða frásögn uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar af málsatvikum.
Afsökun Aftenposten Innsikt er ítarleg og án fyrirvara. Beðist er afsökunar á lélegri blaðamennsku með einhliða frásögn. Fjölmiðill sem flytur staðhæfingar einnar heimildar, Jóhannesar í þessu tilviki, verður að gera grein fyrir trúverðugleika heimildarinnar. Það var ekki gert. Ástæðan liggur í augum uppi. Jóhannes er afar ótrúverðug heimild.
Ferill Jóhannesar sýnir ógæfumann. Eftir að hann komst í sviðsljósið gerði hann sjálfan sig að fórnarlambi og bjó til villtar samsæriskenningar.
Berast nú böndin að RÚV. Var gerð innanhússrannsókn á vinnu Helga Seljan og Aðalsteins Kjartanssonar sem gerðu Kveiksþáttinn er sýndur var í nóvember 2019? Næg ástæða er til að þýfga Helga um gögn, þar sem hann er með brotasögu. Helgi skáldaði skýrslu í fyrri atlögu sinni að Samherja, sem kallast Seðlabankamálið. Vann RÚV heimavinnuna sína og gekk úr skugga um að ásakanir Jóhannesar uppljóstrara héldu máli?
Svarið er nei. Helgi, Aðalsteinn og ritstjóri Kveiks, Þóra Arnórsdóttir, fengu að leika lausum hala og stunda málafylgju en ekki blaðamennsku. Þríeykið bjó ekki við neitt aðhald eða eftirlit. Þegar tækifæri gafst til, tveim árum eftir Kveiksþáttinn, að komast yfir síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja með byrlun og þjófnaði stóð ekki á siðlausum fréttamönnum á Glæpaleiti.
Helgi, Aðalsteinn og Þóra eru ekki lengur starfsmenn RÚV. Það breytir ekki að ríkisfjölmiðillinn verður að gera hreint fyrir sínum dyrum og útskýra hvernig það gerðist að fréttamannaklíka komst upp með vinnubrögð sem eiga ekkert skylt við blaðamennsku og fréttaflutning.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 4. mars 2023
Namibíumálið: búið til á Ísland, jarðað í Noregi
Namibíumálið er með fæðingardag, 12. nóvember 2019. Kveiksþáttur RÚV var sýndur þann dag. Kynntur var til sögunnar Jóhannes uppljóstrari Stefánsson, eina heimildin fyrir meintum mútugjöfum Samherja til namibískra embættis- og stjórnmálamanna.
Jarðaför Namibíumálsins fór fram í Noregi 1. mars 2023. Þann dag birtist afsökun norska stórblaðsins Aftenposetn Innsikt. Lykilsetningin er eftirfarandi:
Aftenposten Innsikt hefur enga stoð fyrir þeirri fullyrðingu að Jóhannes Stefánsson hafi komið fram fyrir hönd Samherja í mútumáli til manna í Namibíu né að samningur um eitthvað slíkt hafi verið gerður á milli Samherja og namibískra aðila. Um er að ræða ásakanir Jóhannesar Stefánssonar
Jóhannes Stefánsson er eina heimildin um að Samherji hafi stundað mútur í Namibíu. Allt Namibíumálið byggir á einum manni sem, frómt sagt, er ekki trúverðug heimild. Í blaðamannskólum er kennt að einnar heimildar fréttir beri að varast og því meira sem fréttamálið er stærra.
Þegar heimildin er hatursfullur eiturlyfjafíkill og stórtækur vændiskaupandi, sem hringir í fólk og hótar limlestingum og lífláti, þarf ekki að kunna blaðamennsku til að átta sig á að ekki er um að ræða góðan pappír.
Afsökun Aftenpostin Innsikt 1. mars kemur í kjölfar forsíðugreinar tímaritsins í febrúar. Danskur blaðamaður, Lasse Skytt, skrifaði þar norræna útgáfu af Kveiksþætti RÚV frá 2019. Skytt fékk nýjustu uppfærsluna frá Jóhannesi. Þegar búið er að fara yfir fréttina af ritstjórn Aftenposten Innsikt er niðurstaðan afgerandi.
,,engin stoð" er fyrir fullyrðingu Jóhannesar Stefánssonar.
Hvers vegna birti RÚV, í félagi með Kjarnanum og Stundinni (nú Heimildinni) staðlausa stafi Jóhannesar uppljóstrara? Jú, RÚV og fylgimiðlar stunda ekki blaðamennsku heldur málafylgju. RÚV ætlaði að ,,taka niður" Samherja og nota til þess ásakanir Jóhannesar.
Namibíumálið er önnur atlaga RÚV að Samherja. Sú fyrri, Seðlabankamálið, hófst 2012. Þá var eina heimildin fölsuð gögn sem Helgi Seljan veifaði framan í myndavélar RÚV um leið og hann ásakaði Samherja um stórfelld brot á þágildandi gjaldeyrislögum. Ítarleg rannsókn og dómsmál leiddu í ljós sakleysi Samherja og óvönduð vinnubrögð RÚV.
RÚV og fylgimiðlar eru í pólitísku bandalagi með vinstriflokkunum í herförinni gegn Samherja, bæði í Seðlabankamálinu og Namibíumálinu.
Þeir sem fylgjast með pólitískri umræðu hafa tekið eftir að stjórnmálamenn eru steinhættir að tala um Namibíumálið. Svo dæmi sé tekið hefur nýr formaður Samfylkingar ekki sagt eitt aukatekið orð um málið. Ekkert, núll, nada.
Logi Einarsson forveri Kristrúnar lét gamminn geisa á sínum tíma, fékk jafnvel eiginkonuna, héraðsdómara, í lið með sér til að skrifa dóm í þágu fréttamanns RÚV og Heimildarinnar, Aðalsteins Kjartanssonar. Þeim dómi var hnekkt í landsrétti. Ekki löngu síðar hætti Logi sem formaður. Logi og frú reiddu hátt til höggs. Er höggið geigaði varð formaðurinn að taka pokann sinn.
Málafylgja, sem sagt, og gagnkvæmir hagsmunir. RÚV sér um að búa mál í hendur vinstriflokkunum, sem aftur tryggja að RÚV fái peninga á fjárlögum.
Þórður Snær ritstjóri Heimildarinnar útskýrir spillinguna með þessum orðum:
Þess í stað er samfélagið okkar gegnsýrt af spillingarmentalíteti, þar sem reglan um greiða gegn greiða gildir. Aðgangur að tækifærum, upplýsingum og peningum annarra byggist á því að þú standir inni í tjaldinu og pissir út, frekar en að standa utan við það og pissa inn.
RÚV, samkvæmt greiningu ritstjórans, situr í ríkistjaldinu miðju og hótar að míga á allt og alla fái stofnunin ekki sinn skerf af skattfé almennings. Sjálfur er ritstjórinn á kafi í spillingunni. RÚV niðurgreiðir laun hans á Heimildinni með því að hafa hann á föstum verktakasamningi.
Þórður Snær kvartar undan að blaðamenn skipti ekki lengur máli. Ástæðan er að meintir blaðamenn stunda ekki blaðamennsku heldur hafa málafylgju að lifibrauði annars vegar og hins vegar taka þátt í pólitík.
Málafylgjan skeytir hvorki um heiður né skömm, enn síður um lög og reglur. Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar eru sakborningar í refsimáli. Siðlaus og glæpsamleg málafylgja er eitt, blaðamennska er annað.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 3. mars 2023
Biðst Blaðamannafélagið afsökunar?
Blaðamannafélag Íslands dreifði sömu umfjöllun um Namibíumálið og Innsikt/Aftenposten, sem hefur beðist afsökunar á að hafa birt óvandaða frétt danska blaðamannsins Lasse Skytt. Blaðamenn af RÚV og Heimildinni (Stundin og Kjarninn) keyptu þjónustu Skytt sem skrifaði greinar í erlendar útgáfur gagngert til að þær yrðu þýddar á íslensku.
Tilgangurinn var að bæta vígstöðu íslensku blaðamannanna sem eru sakborningar í lögreglurannsókn á byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi.
Netútgáfa Blaðamannafélags Íslands, press.is, birti umfjöllun um grein Skytt í dönsku útgáfunni Jorunalisten. Líkt og í Innsikt/Aftenposten er Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, í stóru hlutverki. Eins og í Innsikt/Aftenposten skáldar Þórður Snær ofsóknir á hendur sér og öðrum blaðamönnum. Eftir ritstjóranum er haft
Hann [Þórður Snær} og þrír aðrir blaðamenn fengu skyndiheimsókn í Reykjavík frá hópi lögreglumanna. Þeim var ekið til Akureyrar, sjávarbyggðar á Norðurlandi þar sem Samherji er með höfuðstöðvar.
Íslenskum blaðamönnum var ekki smalað í bíl og þeim ekið norður yfir heiðar. Þetta er haugalygi. Þórður Snær ásamt þrem öðrum blaðamönnum var gert að mæta í skýrslutöku hjá lögreglu í Reykjavík 14. febrúar í fyrra. Þeir lögðu á flótta og létu ekki sjá sig í boðaða yfirheyrslu fyrr en í ágúst og september. Tímann á milli notuðu þeir til að eyðileggja gögn sem bendluðu blaðamennina við byrlun Páls skipstjóra, stuldi á síma hans og broti á friðhelgi.
Netútgáfa Blaðamannafélagsins endurbirtir ekki lygafrásögnina um nauðungarflutninga blaðamanna norður í land. Netútgáfa BÍ segir aftur þetta í endursögninni:
Samherjamálið er rifjað upp, og sú ákvörðun lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að hefja sakamálarannsókn gegn fjórum blaðamönnum í tengslum við fréttaflutning af einum anga Samherjamálsins.
Þetta er sama efnisgrein og birtist í Innsikt/Aftenposten og ritstjórinn biðst afsökunar á, sbr.
yfirheyrsla íslenskra blaðamanna hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra hafi ekki tengst umfjöllun þessara blaðamanna um umrætt mál [þ.e. Namibíumálið] og kemur þannig málinu ekki við
Hér liggur kýrskýrt fyrir að Þórður Snær og félagar hans sakborningarnir fá útlendan blaðamann til að halda því fram á erlendum vettvangi að lögreglan sé útsendari Samherja.
Hvorki í Journalisten né í Innsikt/Aftenposten er nafn Páls skipstjóra Steingrímssonar nefnt á nafn. En Páli var byrlað, síma hans stolið og brotið var á friðhelgi hans. Af þeirri ástæðu eru blaðamennirnir sakborningar í glæparannsókn. Ekki vegna skrifa þeirra um Samherja.
Nú þegar fagmenn sem kunna blaðamennsku, ritstjórn Innsikt/Aftenposten, hafa beðist afsökunar ætlar Blaðamannafélag Íslands ekki að gera það sama?
Já, vel á minnst. Höfundur greinarinnar í netútgáfu Blaðamannafélags Íslands heitir Auðunn Arnórsson. Hann er bróðir Þóru Arnórsdóttur sem er sakborningur líkt og Þórður Snær.
![]() |
Biðjast afsökunar á rangfærslum um Samherjamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 2. mars 2023
Aftenposten biðst afsökunar á RSK-miðlum
Innsikt, tímarit norska stórblaðsins Aftenposten, biðst afsökunar á lélegri blaðamennsku og fjölmörgum staðreyndavillum í fréttagrein sem skrifuð var í þágu íslenskra blaðamann RSK-miðla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans - nú Heimildin).
RSK-miðlar fengu danskan blaðamann, Lasse Skytt, sem einnig auglýsir sig sem almannatengil, til að skrifa fréttasamantekt um Namibíumálið og rannsókn lögreglu á aðild blaðamanna að byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja. Skytt fékk greinina birta í febrúarútgáfu Innsikt.
Skytt skrifaði styttri útgáfu af greininni og fékk hana birta í dönsku fagriti blaðamanna. Tilfallandi athugasemd fjallaði um vinnubrögð RSK-miðla við að kaupa sér frægð í útlöndum á fölskum forsendum.
Í marsútgáfu Innsikt er löng afsökunarbeiðni þar sem raktar eru margar villur og rangtúlkanir í grein Skytt. Íslensku blaðamennirnir útveguðu Skytt aðgang að Jóhannesi Stefánssyni, svokölluðum uppljóstrara. Jóhannes talar aðeins við þá blaðamenn sem gleypa frásögn hans hráa og fjalla ekki um hve vafasöm heimild uppljóstrarinn er.
Í afsökunarbeiðni Innsikt er tekið fram að útgáfan hafi ekki séð neinar trúverðugar heimildir um að Jóhannes hafi fyrir hönd Samherja mútað embættismönnum í Namibíu. ,,Það hefði átt að koma fram í greininni," segir Innsikt, ,,að Jóhannes er einn til frásagnar um að hafa stundað mútur."
Skytt hafði ekki samband við Samherja þegar hann undirbjó greinina. Enda var Skytt í vinnu hjá RSK-miðlum til að ófrægja Samherja. Aldrei stóð til sjónarmið annarra en RSK-miðla kæmust á framfæri. Afsökunarbeiðni Innsikt segir: ,,Verkferlar hjá okkur brugðust. Grunnatriði blaðamennsku er að ásakanir séu bornar undir þá sem þær beinast að. Það var ekki gert í þessu tilviki."
Innsikt biðst einnig afsökunar á að í grein Skytt séu yfirheyrslur lögreglu yfir blaðamönnum tengd Namibíumálinu. Umfjöllun um skýrslutöku lögreglu af blaðamönnum átti ekki heima í umfjöllun um Namibíumálið, segir í yfirlýsingu Innsikt. Blaðamennirnir eiga aðild að byrlun, gagnastuldi og brot á friðhelgi. Það er sjálfstætt mál kennt við Pál skipstjóra.
Í Noregi eru grunnatriði blaðamennsku virt. Á Íslandi er enginn munur á almannatengslum og blaðamennsku. RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) stunda málflutning, ekki fréttaflutning.
Það verður í minnum haft að Aftenposten biðst afsökunar á íslenskri blaðamennsku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 1. mars 2023
Hreinsanir Stefáns, þögnin um Þóru
Þrír þungavigtarmenn á RÚV hverfa af vettvangi í takt við framvindu lögreglurannsóknar á aðild fréttamanna að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar, stuldi á síma og broti á friðhelgi hans og Örnu McClure lögfræðings. Samanlagður starfsaldur blaðamannanna þriggja er yfir 60 ár.
Útvarpsstjórinn, Stefán Eiríksson, er fyrrum lögreglustjóri, þekkir starfsháttu laganna varða og býr að tengslum innan löggæslunnar. Hann fórnar ekki þrautreyndum starfsmönnum nema af brýnni nauðsyn.
Brotið var á Páli skipstjóra 3. maí 2021. Fyrsta yfirheyrslan yfir sakborningi fór fram 5. október þá um haustið. Í sama mánuði ákvað Stefán að Rakel Þorbergsdóttir fréttarstjóri skyldi láta af störfum eftir 22 ára starf. Ákvörðunin var tilkynnt 9. nóvember. Ekki var hægt að auglýsa stöðu fréttastjóra þar sem útvarpsstjóri vissi ekki hve margir starfsmenn voru til rannsóknar lögreglu. Rakel var lofað lausamennsku við þáttagerð, en fátt er að frétta af þeirri sporslu.
Næstur á dagskrá var Helgi Seljan. Ákvörðun um brotthvarf hans var tekin um haustið en ekki tilkynnt fyrr en á nýju ári. Á vefsvæði starfsmanna RÚV sagði fréttamaðurinn m.a. að skilnaði
Hlustendum og áhorfendum er enginn greiði gerður með því að sitja undir kurteisishjali við skoðanir þess og heimsmynd öllum stundum. Þannig hefur það ekki verið og má ekki verða.
Allan starfsferil sinn hjá RÚV, sem spannaði 16 ár, var Helgi ötull að búa til ,,heimsmynd" sem aðeins var laustengd veruleikanum. Fyrst ýkjur, síðan fölsun og loks glæpur. Allt þegar þrennt er.
Stefán útvarpsstjóri kvaddi Helga með þessum orðum:
Hvað Helga Seljan varðar sérstaklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaðamennsku að þessi öflugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum.
Ef útvarpsstjóri tryði eigin orðum hefði Helgi ekki verið látinn fara. Oflofið er hluti starfslokasamnings og má skilja sem hæðni.
Mánuði eftir að tilkynnt var um starfslok Helga var upplýst um sakborninga í lögreglurannsókninni. Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks er þar á meðal. Samt sat Þóra kyrr í sinni stöðu í eitt ár. En svo breyttist eitthvað.
Þóra tilkynnti sjálf, líkt og Helgi, að hún væri hætt 6. febrúar síðast liðinn eftir 25 ára starf á ríkisfjölmiðlinum. Hún fær sæti í skemmtiþætti Gísla Marteins til að kveðja og talar um álag vegna ,,áreitis." Samt þekkir hún ekkert annað í aldarfjórðung. Áreitið fer líklega vaxandi og er af öðrum toga en hjá heiðarlegum blaðamanni.
Ólíkt þegar Helgi axlaði sín skinn stígur Stefán útvarpsstjóri ekki fram og mærir tapaðan starfskraft. Þóra er þó yfirmaður á RÚV og með lengri starfsaldur. Ísköld þögn fylgir fyrrum forsetaframbjóðanda úr útvarpshúsinu og upp í Landsvirkjun. Þar tekur einn einn forstöðumaður ríkisstofnunar við flóttamanni sem annar opinber embættismaður þvær hendur sínar af. Hversu margir Kveiks-þættir Þóru fjölluðu um spillingu?
Vísbendingu um ástæðu flóttans má finna hjá almannatengli í líki blaðamanns sem vinnur fyrir sakborningana. Tilfallandi athugasemd fjallaði um störf Lasse Skytt í þágu grunaðra blaðamanna. Skytt sér um að skrifa fréttagreinar í erlenda miðla um ofsóttu blaðamennina á Íslandi. Fréttirnar eru þýddir í miðla sakborninga hér á landi til að afla samúðar.
Í framhaldi af tilfallandi athugasemd átti Skytt í samskiptum við erlendan starfsfélaga og ræðir þar sína vinnu í sakamálinu íslenska. Hann skrifar um rannsókn lögreglu ,,ifølge mine kilder er politisagen med journalisterne netop blevet forsinket." Sá danski segir sem sagt að samkvæmt sínum heimildum hafi rannsókn lögreglu skyndilega seinkað. Heimildamenn Skytt eru vitanlega íslensku blaðamennirnir, vinnuveitendur hans.
Tölvupóstur Skytt er aðeins tíu daga gamall. Lögreglan var um það bil að ljúka rannsókn í janúar/febrúar en þá verður stefnubreyting, fleiri atriði krefjast rannsóknar. Sakborningar verða þess áskynja og Stefán útvarpsstjóri einnig. Þóra hættir á RÚV í lóðbeinu framhaldi.
Það sem gerðist er eftirfarandi. Lögreglan fékk vísbendingar, og í framhaldi gögn, um að samskipti blaðamanna við byrlara Páls hafi byrjað nokkru áður en tilræðinu var hrint í framkvæmd 3. maí 2021. Áður beindist lögreglurannsóknin fyrst og fremst að atburðarásinni eftir byrlunina og hvernig blaðamenn fóru með einkagögn Páls skipstjóra.
Athyglin beinist að tölvupóstum sem fóru á milli eins eða fleiri blaðamanna annars vegar og hins vegar byrlarans. Blaðamennirnir töldu sig hafa eytt öllum tölvupóstum. Þeir tóku m.a. síma byrlarans traustataki, fyrir milligöngu Láru V. Júlíusdóttur lögmanns, til að ganga úr skugga um að tölvupóstum yrði eytt.
Tölvupóstar sem fjalla um glæp sem enn er ekki framinn gefa til kynna meðsekt blaðamanna að atlögu að lífi og heilsu Páls skipstjóra.
Tvær ritstjórnir íslenskra fjölmiðla, RÚV og Heimildarinnar, búa að upplýsingum frá fyrstu hendi um aðild blaðamanna að alvarlegum glæp. Báðir fjölmiðlar eru þöglir sem gröfin. Það samrýmist ekki ,,heimsmynd" RÚV og Heimildarinnar, svo notað sé orðfæri Helga Seljan, að afhjúpa afbrot í eigin ranni. Sakborningar nota vina- og kunningjatengsl við blaðamenn á öðrum fjölmiðlum og fá þá til liðs við samsæri þagnarinnar.
Almenningur má alls ekki fá vitneskju um að blaðamenn stunda glæpi til að afla frétta. Fjölmiðlakerfi þagnarinnar er ekki rekið í þágu almannahagsmuna heldur fárra innvígðra með óhreint mjöl í pokahorninu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. febrúar 2023
Bloggari skrifar fréttir
Ef ekki væri fyrir tilfallandi bloggara segði fátt af byrlun Páls skipstjóra, stuldi á síma og aðför að einkalífi hans. Margverðlaunaðir blaðamenn koma við sögu, fyrst sem gerendur en síðar sem þöggunaryfirvald fjölmiðla. Þrír fréttamenn RÚV urðu að taka pokann sinn og Stundin og Kjarninn að sameinast.
Fyrsta bloggfréttin um Pál skipstjóra var skrifuð 2. nóvember 2021. Ellefu dögum síðar birtist önnur færsla þar sem farið var yfir málið, eins og það stóð þá um haustið. Síðan er fjallað um sakamálið eftir efnum og ástæðum, á meðan fjölmiðlar keppast við að þegja.
Þórður Snær ritstjóra Kjarnans, nú Heimildarinnar, var allt annað en sáttur við að bloggari segði fréttir sem verðlaunablaðamann vildu ekki að birtust. Þórður Snær skrifar leiðara 18. nóvember 2021 með fyrirsögninni ,,Glæpir í höfði Páls Vilhjálmssonar." Gefum ritstjóranum orðið:
Staðreyndir eru ekki teygjanlegt hugtak. Það má einfaldlega ekki segja hvað sem er, um hvern sem er, hvar sem bara vegna þess að einhver raðar röngum ályktunum saman í fjarstæðukennda atburðarás. Nauðsynlegt er að finna staðhæfingum sínum stað í raunveruleikanum.
Þar eiga staðhæfingar Páls Vilhjálmssonar engan samastað.
Þetta skrifar Þórður Snær 18. nóvember 2021. Þrem mánuðum síðar, þann 14. febrúar 2022, er upplýst að fjórir blaðamenn hafi stöðu sakbornings í lögreglurannsókn á byrlun Páls skipstjóra, stuldi á síma hans og broti á friðhelgi einkalífs. Þórður Snær er á meðal sakborninga.
Margur blaðamaðurinn hefur fengið verðlaun fyrir minna en að sjá þrjá mánuði fram í tímann. Þórður Snær fær taugaáfall þegar hann sér handverk sem kemur margfalt betur heim við staðreyndir en íslensk verðlaunablaðamennska. Eina úrræði ritstjórans er að stefna bloggara, - fyrir að skrifa fréttir.
Sannleikurinn er sá að blaðamenn RÚV og Heimildarinnar (áður Stundarinnar og Kjarnans) iðkuðu glæpi og kölluðu blaðamennsku. Aðför blaðamanna að lífi, heilsu og einkalífi Páls skipstjóra er sú ljótasta í íslenskri fjölmiðlasögu.
Á meðan fjölmiðlar þögðu skrifaði bloggari fréttir sem eiga erindi til almennings. Tilraun Þórðar Snæs verðlaunablaðamanns til þöggunar mun mistakast.
![]() |
Páll hafi ritað ummæli í góðri trú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 27. febrúar 2023
Ný gögn í byrlunarmáli Páls skipstjóra
Í lögreglurannsókn á aðild blaðamanna að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar vorið 2021 eru væntanleg ný gögn sem gerbreyta stöðu málsins. Hingað til hefur rannsókn lögreglunnar beinst að aðkomu blaðamanna að málinu eftir að skipstjóranum var byrlað. Nýr vitnisburður, og gögn sem styðja þá frásögn, sýna fram á að blaðamennirnir hafi tekið þátt í að skipuleggja byrlunina, verið með í ráðum þegar í upphafi.
Tölvupóstar sem staðfesta aðild blaðamanna að undirbúningi tilræðisins eru ekki lengur til. Þeim var eytt. Lögreglan freistar þess að fá afrit af tölvupóstunum frá erlendu tæknifyrirtæki sem hýsir vefþjóna er tölvupóstarnir fóru um.
Kona nákomin Páli skipstjóra byrlaði honum 3. maí 2021 á Akureyri. Líkur eru á að það hafi verið seinni tilraun til byrlunar. Sú fyrri var helgina á undan. Þá helgi gisti skipstjórinn í Reykjavík eftir að hafa komið heim úr róðri. Byrlunin mistókst þar sem Páll afþakkaði drykkinn sem innihélt eitrið.
Á föstudegi fyrir þessa helgi var tilkynnt að Aðalsteinn Kjartansson fréttamaður á RÚV flytti sig um set á Stundina, sem systir hans, Ingibjörg Dögg, ritstýrir. Næsti yfirmaður Aðalsteins á RÚV var Þóra Arnórsdóttir. Sjaldgæft er að starfsmaður á opinberri stofnun skipti um vinnustað án fyrirvara, ráði sig í nýtt starf sama dag og hann hættir. En það bráðlá á að Aðalsteinn færi yfir á Stundina til að vinna úr stolnum gögnum er kæmu á RÚV. Það átti bara eftir að byrla skipstjóranum og stela síma hans þegar Aðalsteinn flutti blaðamennsku sína af RÚV yfir á Stundina.
Ef rétt er að tilraunin til að eitra fyrir Páli skipstjóra um helgina hafi mistekist er líklegt að töluverð samskipti hafi verið á milli blaðamanna og konunnar sem byrlaði. Ný áætlun hefur verið sett saman. Ef einhver þessara samskipta eru til á texta, t.d. í tölvupóstum, er líklegt að sú sönnun haldi fyrir dómi. Annars er um að ræða kringumstæðurök fyrir aðild blaðamanna að skipulagningu tilræðisins auk vitnisburðar. Kringumstæðurökin eru sterk, tölvupóstur gerir málið naglfast.
Páll var meðvitundarlaus 4. til 6. maí og var fluttur rænulaus frá Akureyri á gjörgæslu í Reykjavík. Á þeim tíma var síma hans stolið og hann afritaður. Til að afrita símann þurfti áður að kaupa nýjan síma - sem undirstrikar að unnið var samkvæmt skipulagi. Eftir stuld og afritun var símanum skilað á sjúkrabeð Páls. Skipulagið gerði ráð fyrir að skipstjórinn væri grunlaus um að sími hans hafi verið afritaður.
Er skipstjórinn komst til meðvitundar vöknuðu með honum grunsemdir að einhver hefði átt við símtækið á meðan hann var á gjörgæslu. Reynt hafði verið að komast inn á samfélagsmiðla sem hann notar og inn í heimabanka hans með símtækinu. Hann kærði málið til lögreglu 14. maí.
Blaðamennirnir birtu fyrstu fréttir úr síma Páls 21. maí. Aðalsteinn skrifaði í Stundina en Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson í Kjarnann. Fréttir beggja fjölmiðla birtust samtímis morguninn 21. maí. Aftur eru augljós merki um miðlægt skipulag. Engin frétt birtist á RÚV. Miðstöð samsærisins var á Efstaleiti. Þar var unnið úr gögnunum og fréttir útbúnar í Stundina og Kjarnann, sem nú hafa sameinast í einn miðil, Heimildina.
Verkskiptingin milli RÚV annars vegar og hins vegar Kjarnans og Stundarinnar gekk út á að RÚV kæmi í kjölfarið og endursegði fréttirnar en þó fyrst og fremst krefðist viðbragða stjórnmálamanna og annarra. Með síbylju fréttaflutnings var Pál skipstjóra gerður að sérstakri deild í Samherja, þar sem hann starfar við sjómennsku. Ímynduð deild RSK-miðla (RÚV, Stundin og Kjarninn) fékk heitið skæruliðadeildin. En skipstjórinn var engin deild. Hann aftur gagnrýndi RSK-miðla og varð fyrir það skotmark blaðamannanna.
Staðsetningarbúnaður í síma Páls uppfærðist ekki þar sem skipstjórinn slökkti á símanum eftir að hann varð þess áskynja að einhverjir höfðu tekið hann ófrjálsri hendi. Blaðamennirnir, á hinn bóginn, töldu óhætt að birta frétt rúmum tveim vikum eftir þjófnaðinn enda almenna reglan að upplýsingar um staðsetningu símatækja eyðast innan hálfs mánaðar. En það gerist aðeins ef símtækið er í notkun.
Staðsetningarbúnaður í síma Páls sýnir símtækið á Efstaleiti þann tíma sem skipstjórinn var á gjörgæslu. Aðeins steinsnar er frá Landspítalanum yfir á Efstaleiti þar sem RÚV er til húsa. Smitrakningarforrit, sem einnig var í símanum, geymir upplýsingar um þau símtæki sem voru nálæg er sími Páls var afritaður. Fleiri en einn blaðamaður höndlaði með stolna símann.
Lögreglan fékk hlerunarheimildir eftir að Páll kærði. Lögreglan með skrár yfir símtöl á milli gerandanna dagana fyrir tilræðið. Fái lögreglan tölvupósta sem fóru á milli aðila dagana fyrir tilræðið er komin borðleggjandi sönnun fyrir þátttöku blaðamanna í atlögu að lífi og heilsu skipstjórans.
Áður en nýju gögnin komu til álita stóð til að ákæra blaðamennina fyrir brot á friðhelgi og stafrænt kynferðisofbeldi. Blaðamennirnir sendu á milli sín og e.t.v. til annarra persónulegt efni skipstjórans. Fram hefur komið að þeir hótuðu honum frekari meingjörðum ef hann drægi ekki tilbaka kæruna frá 14. maí 2021.
Verði sýnt fram á að blaðamennirnir eigi aðild að tilræðinu sjálfu þyngjast sakargiftir.
Blaðamennirnir hafa ekki gert opinberlega grein fyrir sinni aðild. Þeir aftur stefna fyrir dómstóla þeim sem fjalla um málið, eins og tilfallandi bloggara.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 26. febrúar 2023
Kína tekur forystu í Úkraínu
Í Úkraínustríðinu falla öll vötn til Peking. Macron pantar viðtal hjá Xi Jinping forseta Kína og fær áheyrn í byrjun apríl. Í mars sækir Xi Jingping Pútín heim í Moskvu. Macron mun hitta forseta Kína eftir Pútín. Forgangsröð Kínverja er skýr, fyrst Rússar síðan vestrið.
Selenskí forseti Úkraínu vill einnig áheyrn hjá forseta Kína, segir það ,,smikilvægt fyrir alþjóðaöryggi." Forsetinn í Kænugarði ímyndar sér að hann spili í efstu deild alþjóðastjórnmála. Hann stýrir utandeildarliði sem keppir i lánsbúningum. Þrjú ríki munu ráða úrslitum Úkraínustríðsins: Bandaríkin, Rússland og Kína. Frakkland og Þýskaland verða með áheyrnaraðild.
Vesturlönd eru logandi hrædd um að Kína útvegi Rússum hergögn, sem gerðu vont ástand verra. Kína er óopinber bakhjarl Rússa. Vestrið óttast að stórveldið í austri stígi fram í formlegu bandalagi með Rússlandi.
Kínverjar léku millileik í liðinni viku. Þeir kynntu friðaráætlun til að ljúka Úkraínustríðinu. Áætlunin gerir ekki ráð fyrir að Rússar skili herteknu landi, sem þegar hefur verið innlimað í rússneska ríkið. Aftur gerir áætlunin ráð fyrir að vesturlönd hætti að moka vopnum á austurvígstöðvarnar. Séð frá vestrænum sjónarhóli er friðaráætlunin löðrungur. Kínverjar telja sig hafa efni á ósvífninni.
Ef vesturlönd væru í sterkri stöðu myndu þau skella hurðinni á Kínverja og hóta efnahags- og viðskiptaþvingunum. En vestrið sér að stríðið í Úkraínu er tapað. Opin spurning er hversu hratt Rússar sækja fram. Stjórnarherinn er ekki í neinum færum að gera annað en tefja rússnesku sóknina.
Af þeirri ástæðu er hlustað á Xi Jingping og friðartilögur sem taka mið af rússneskum öryggishagsmunum og greiða fyrir innlimun á fimmtungi Úkraínu í Rússland.
Umræðan á vesturlöndum er að breytast. Til skamms tíma hét það að brátt sneri stjórnarherinn í Kænugarði vörn í sókn og ynni tilbaka tapað landssvæði. Ekki lengur.
Breska útgáfan Telegraph hamrar jafnt og þétt á þeim boðskap að ekki undir nokkrum kringumstæðum megi leyfa rússneskan sigur á sléttum Garðaríkis. Í leiðara útgáfunnar i gær kvað við annan tón. Vestrið er ekki með áætlun um hvernig skuli ljúka Úkraínustríðinu, Kína tekur frumkvæðið, segir í leiðaranum. Vestrið þarf langtímaáætlun, kvartar leiðarinn.
Langtímaáætlunin var að Úkraína ynni á vígvellinum. Síðan átti að knésetja Rússland. Sú áætlun er farin í vaskinn. Óformlegt bandalag Rússlands og Kína er með frumkvæðið. Vesturlönd eru á undanhaldi.
Líklegt framhald næstu vikur er að vestrænir ráðamenn tala meira um að ljúka verði Úkraínustríðinu en minna um að Pútín megi ekki sigra. Klukkan glymur Kænugarði.
![]() |
Macron mun heimsækja Kína í apríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 25. febrúar 2023
Pútín hefur þegar sigrað
Úkraína er ekki Nató-ríki. Austur-Úkraína, Donbass, auk Suður-Úkraínu og Kherson-hérað hálft í suðvestri eru hluti af Rússlandi.
Úrsúla von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir Pútín hafi mistekist að ná einu einasta markmiði sínu. Í reynd er forseti Rússlands þegar búinn að ná helstu markmiðum sínum.
Vestræna áætlunin gekk út á að úkraínski herinn, byggður upp í sjö ár og þjálfaður af Nató-foringjum, skyldi veita Rússaher þá ráðningu að hann hypjaði sig til Moskvu og gerði þar stjórnarbyltingu. Í framhaldi yrði Rússland bútað i sundur með vestrænni reglustiku, líkt og Afríka á 19. öld.
Úrsúla lætur eins og áætlun hafi gengið eftir. Veruleikinn er annar. Úkraína er ónýtt ríki og mun ekki bera sitt barr um langa framtíð. Í friðarsamningum, sem verða á dagskrá, líklega í ár en kannski ekki fyrr en 2024, verða öryggishagsmunir Rússlands virtir, sem þeir voru ekki áður. Úkraína verður stórlega skert og gengur ekki í Nató.
Bandaríkin og ESB eiga vopn og fjármagn en skortir baráttuþrek. Á vígvellinum ræður baráttuþrekið úrslitum að öðru jöfnu. Á sléttum Garðaríkis hallar á Úkraínu í mannafla og vopnum. Engir Nató-hermenn verða sendir á austurvígstöðvarnar. Almenningur á vesturlöndum er afhuga og elíturnar þora ekki blóðfórnum án stuðnings frá kjósendum.
Deilan sem hófst vorið 2008, þegar Bandaríkin buðu Úkraínu Nató-aðild, setti tilvist tveggja ríkja á vogarskálarnar. Annað hvort hlaut Úkraína að beygja sig í duftið eða Rússland. Vesturlönd veðjuðu á að efnahagslegt og pólitískt vald myndi knýja Rússa til uppgjafar án stríðsátaka.
Eftir stjórnarbyltinguna í Kænugarði veturinn 2014 tóku Rússar Krímskaga. Það lá fyrir að Rússar ætluðu ekki að leggja upp laupana. Vesturlönd hefðu betur látið þar við sitja og nálgast Rússland með samningum en ekki hótunum.
Stríð er þeirrar náttúru að það býr til eitt ríki en tortímir öðru. Þar sem vesturlönd höfðu þau tök á Úkraínu að landinu mætti etja á foraðið án áhættu fyrir vestrið var kylfa látin ráða kasti. Úkraína skyldi skapa 1917-ástand í Rússlandi þar sem rússneska þjóðin varpaði af sér oki Pútín og félaga, líkt og þegar keisarastjórninni var steypt fyrir rúmri öld.
Ímynduð atburðarás var byggð á heimskublandinni óskhyggju. Í augum Rússa er Pútín bjargvættur móðurlandsins eftir niðurlægingu Yeltsín-áranna í lok síðustu aldar. Rússland var gjaldþrota, auðmenn með vestrænum stuðningi stálu náttúruauðlindum og ríkiseignum. Pútín skóp stjórnfestu og velmegun í 20 ár áður en hann lét sverfa til stáls í Úkraínu. Engar líkur voru á að rússneska þjóðin sneri baki við bjargvættinum.
Úkraína væri betur í sveit sett ef friðarsamkomulag frá 2015, kennt við Minsk, hafði verið virt. En það stóð aldrei til. Af hálfu Bandaríkjanna og ESB var Úkraína ekki neitt annað en verkfæri til að brjóta upp Rússland.
Pútín hefur þegar sigrað. Það má bara ekki viðurkenna það. Nema í tilfallandi bloggi.
![]() |
Pútín mistekist að ná einu einasta markmiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Föstudagur, 24. febrúar 2023
Sólveig Anna boðar launamisrétti
Sólveig Anna formaður Eflingar kynnir vinnustaðasamninga. Miðlægir samningar stuðla að launajafnrétti. Vinnustaðasamningar taka mið af afkomu einstakra fyrirtækja og eftir atvikum starfsgreina.
Áður hefur formaður Eflingar krafist að launþegar á landsbyggðinni beri minna úr býtum en vinnandi hendur á höfuðborgarsvæðinu. Efling hefur keyrt auglýsingaherferð sem hallmælir nýgerðum kjarasamningum Starfsgreinasambandsins.
Sjái kjarafélög á hverjum vinnustað um kjarasamninga verða verkalýðsfélög í mesta lagi með ráðgjafahlutverk. ASÍ verður óþarft.
Fyrirtæki eru misjafnlega aflögufær. Veitingamenn lepja dauðann úr skel um þessar mundir en hóteleigendur eru betur staddir. Uppskrift Sólveigar Önnu veit á nær óbreytt laun í veitingageiranum en hærri laun á hótelum.
Vinnustaðasamningar leiða sjálfkrafa til misréttis á vinnumarkaði. Lágmarkslaun verða ólík eftir hvaða atvinnugrein á í hlut og í sumum tilvikum hvaða fyrirtæki er um að ræða.
Ísland er löngum heimsmeistari í launajafnrétti. Sósíalistinn Sólveig Anna vill kollvarpa jafnlaunakerfinu. Sennilega í nafni mannúðar, - eins og sósíalista er háttur þegar þeir hrinda í framkvæmd hugmyndafræðinni.
Meginkosturinn við vinnustaðasamninga er að einstaklingar eins og Sólveig Anna komast ekki lengur í þá aðstöðu að taka þjóðfélagið í gíslingu í þágu pólitískra og persónulegra hagsmuna.
![]() |
Segir fyrirtæki hafa viljað semja beint við Eflingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)