Blaðamenn hótuðu Páli skipstjóra og vinkonu hans

Í síma Páls skipstjóra Steingrímssonar var myndband af honum og konu sem hann átti vingott við eftir skilnað. Síma Páls var stolið fyrir ári að undirlagi RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðlum. Blaðamenn afrituðu öll gögn úr símanum. Skipstjórinn var meðvitundarlaus vegna byrlunar þegar símanum var stolið.

Páll kærði stuldinn 14. maí sl. ár. Eftir að lögreglurannsókn hófst gripu blaðamenn RSK-miðla til þess ráðs að hóta dreifingu á myndskeiði er sýndu atlot hans og ónafngreindrar konu.

Samkvæmt gögnum sem þegar hafa birst, vegna málarekstrar blaðamanna gegn lögreglu, verða blaðamennirnir ákærðir fyrir brot á friðhelgi einkalífs og að hóta birtingu á efni af kynferðislegum toga. Tilgangur hótunar blaðamannanna var að kúga Pál skipstjóra að falla frá kæru á símastuldi.

Að minnsta kosti fjórir blaðamenn RSK-miðla eru með stöðu grunaðra í lögreglurannsókn en líklega eru þeir fleiri. Þeir neita að mæta til yfirheyrslu. Það sem meira er: þeir þegja þunnu hljóði í fjölmiðlum og á samfélagsmiðum. Það er af sem áður var.

Gögn sem birt voru fyrir héraðsdómi 23. febrúar sýna að lögreglan er með tölvupósta og símtöl blaðamanna RSK-miðla að leggja á ráðin um hvernig og hvenær yrði látið til skarar skríða gegn Páli og vinkonu hans. Blaðamenn og fjölmiðlar sem skipuleggja allsherjarárás á einkalíf fólks til að komast sjálfir undan réttvísinni er nýlunda, ekki aðeins á Íslandi heldur í sögu vestrænnar blaðamennsku.

Um áramótin birtist frétt í Stundinni, sem unnin var upp úr gögnum Páls. Tilgangur fréttarinnar var að vekja athygli skipstjórans á því að RSK-miðlar sætu á upplýsingum sem þeir myndu nota sæi skipstjórinn sig ekki um hönd og afturkallaði kæruna frá 14. maí.

En með atferli sínu grófu blaðamennirnir eigin gröf. Lögreglan var komin á sporið og fylgdist með aðgerðum þeirra að kúga Pál til að falla frá kærunni.

Blaðamennirnir, fjórir eða sex, og fjölmiðlar þeirra kaupa lögfræðiþjónustu í gríð og erg til að komast hjá skýrslutöku lögreglu. Þeir vita sem er að eftir skýrslutökuna verður þeim birt opinber ákæra og málið fer fyrir dómstóla. Í þeim málarekstri koma fram efnisatriði sem RÚV, Stundin og Kjarninn vilja ekki að vitnist. Blaðamenn og fjölmiðlar lifa á orðsporinu. Ef trúverðugleikinn fer í ruslflokk er úti um afkomuna.

Almenningur stendur í þeirri trú að blaðamennska og glæpaiðja sé ekki sama starfsgreinin. Dómsmálið yfir blaðamönnum RÚV, Stundarinnar og Kjarnans mun veita innsýn í óþekkta starfshætti fjölmiðla. Ekki verður það falleg sjón.


mbl.is Boðinn friður gegn því að draga í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

https://www.dv.is/frettir/2022/5/4/pall-med-hardordan-pistil-eg-er-bara-venjulegur-madur-sem-hef-ordid-ad-thola-harda-atlogu-ad-heilsu-minni-og-aeru/

Guðmundur Böðvarsson, 5.5.2022 kl. 08:42

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

RÚV virðist líta á sig sem fríríki í ríkinu og er að breytast í skrímsli. Þóra Arnórsdóttir er búinn að áfrýja til Landsréttar og ef hún tapar þar þá er það væntanlega hæstiréttur og svo Evrópudómstóll. Allt verður gert til að þurfa ekki að koma fyrir dómstóla og segja sannleikann. En ef hún væri saklaus af þessum ásökunum þá væri það örugglega ekkert mál fyrir hana að mæta fyrir dóm og segja sína sögu! 

Sigurður I B Guðmundsson, 5.5.2022 kl. 09:34

3 Smámynd: Halldór Jónsson

 Ian Fleming gæti hafa skrifað þennan farsa ef hann væri ekki sannleikur og lyginni líkastur. En þetta er alvöru glæpamál og morðtilraun en ekki grín.

Halldór Jónsson, 5.5.2022 kl. 13:27

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vegna fyrstu málsgreinar þinnar Sigurður I. B. gæti starfsmönnum sem unnið hafa lengi á RÚV fundist fyrirtækið eins og sjálf fósturjörðin sem öllu skal upp unna. Próvaði mig í þeirri stöðu þótt eg hefði ekkert gert nema hilma yfir  

Helga Kristjánsdóttir, 6.5.2022 kl. 00:22

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

mundi sannleikurinn vinna,á öðru er ekki stætt. 

Helga Kristjánsdóttir, 6.5.2022 kl. 00:26

6 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Væri ekki eðlilegt Helga að Þóra væri t.d. leyst frá störfum meðan rannsókn fer fram. Það þurfa margir að gera. Eru blaðamenn (fréttamenn) eitthvað öðru vísi fólk en þú eða ég?

Sigurður I B Guðmundsson, 6.5.2022 kl. 09:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband