Mánudagur, 3. apríl 2023
Blaðamenn sem óvinir lýðræðis
,,Öflug og vönduð blaðamennska, þar sem tjáningarfrelsið er í fyrirrúmi, er forsenda lýðræðis," er fyrsta setningin í nýjum siðareglum Blaðamannafélags Íslands. Þrír blaðamenn, Þórður Snær, Arnar Þór og Aðalsteinn Kjartansson, allir á Heimildinni, hafa ýmist stefnt tilfallandi bloggara eða hóta stefnu vegna umfjöllunar á lögreglumáli þar sem blaðamennirnir eru sakborningar. Ekki sýnir það virðingu fyrir tjáningarfrelsi.
Blaðamennirnir vita að bloggari er með heimildir fyrir umfjöllun sinni. Lögmaður Aðalsteins skrifar í hótunarbréfi til bloggara: ,,Af lestri vefsíðu þinnar er ljóst að þú hefur undir höndum rannsóknargögn lögreglu um málið sem lögreglan á Norðurlandi eystra er með til rannsóknar."
Blaðamenn hafa sem sakborningar aðgang að rannsóknargögnum. En þeir skrifa ekkert heldur þegja blaðamenn og vilja að allir aðrir þegi. Bloggari skrifar um byrlunar- og símastuldsmálið og fær á sig stefnu fyrir að tjá sig.
Hvers vegna fjalla blaðamenn ekki sjálfir um málið? Sakborningarnir vita manna best hvernig þeir komust yfir síma Páls skipstjóra Steingrímssonar. Það þýðir ekki að bera fyrir sig vernd heimildamanna. Lögreglan segir í febrúar í fyrra að hún viti hver heimildamaðurinn er, andlega veika konan sem byrlaði skipstjóranum.
Blaðamennirnir vissu að lögbrot var framið. Arnar Þór og Þórður Snær skrifuðu þegar þeir birtu fyrstu fréttina úr síma skipstjórans að afbrot var undanfari en tóku fram að þeir sjálfir hefðu ,,engin lögbrot framið." Er það ekki hlutverk blaðamanna upplýsa afbrot? Hvers vegna ganga blaðamenn RSK-miðla ekki fram fyrir skjöldu og greina almenningi frá vitneskju sinni um tilræðið gegn skipstjóranum, stuldi á síma hans og meðferðina á einkagögnum?
Í nýjum siðareglum segir að almenningur eigi rétt á ,,að fá sannar upplýsingar." Hvert á almenningur að leita ef blaðamenn þegja sem fastast um sakamál þar þeir sjálfir eru sakborningar? Nú, auðvitað til þeirra sem fjalla um málið, s.s. tilfallandi bloggara. Ekki er um auðugan garð að gresja hjá öðrum blaðamönnum og fjölmiðlum. Þeir meira og minna þegja í þágu félaga sinna og vina - sakborninganna.
Með framferði sínu grafa blaðamenn eigin gröf. Blaðamenn og fjölmiðlar sem þegja um mikilsverð málefni þjóna ekki hagsmunum almennings. Blaðamenn sem krefjast þöggunar og höggva að tjáningarfrelsinu eru, samkvæmt eigin skilgreiningu, óvinir lýðræðisins.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 2. apríl 2023
Þakkir
Tilfallandi bloggari stendur í þakkarskuld við lesendur. Fyrir viku skrifaði hann blogg í tilefni af dómi héraðsdóms Reykjavíkur að bloggari skyldi greiða tveim blaðamönnum Heimildarinnar 2,5 milljónir fyrir að skrifa um byrlunar- og símastuldsmál Páls skipstjóra og aðild RSK-miðla.
Nokkrir lesendur höfðu haft samband og óskað eftir að styðja bloggara að áfrýja dómi héraðsdóms. Af því tilefni var opnaður fjárvörslureikningur hjá KRST lögmönnum til að þangað mætti beina fjárstuðningi.
Undirtektirnar voru slíkar að það söfnuðust tveir þriðju fjárhæðarinnar sem bloggari stendur frammi fyrir að greiða. Tæplega hundrað manns lögðu sitt af mörkum.
Launamanni er dýrt spaug að andæfa RSK-miðlum og meðhlaupurum þeirra. En þegar lesendur leggjast jafn kröftuglega á árarnar og raun ber vitni er ekki um annað að ræða en að halda áfram siglingunni þótt gefi á bátinn.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn. Hann er ómetanlegur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 1. apríl 2023
Fjárkúgun Aðalsteins: ein milljón, annars málssókn
Einn af sakborningunum í byrlunar- og símastuldsmálinu, Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Heimildinni, áður Stundinni, krefur tilfallandi bloggara um eina milljón króna.
Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður skrifar kröfubréfið sem er dagsett 27. mars sl. Gefinn er tíu daga frestur á milljóninni og afsökunarbeiðni. Annars verður tilfallandi bloggara stefnt fyrir ærumeiðingar.
Aðalsteinn er þriðji sakborningurinn sem sækir að bloggara fyrir að fjalla um aðild blaðamanna að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Þórður Snær og Arnar Þór fengu bloggara dæmdan til að greiða sér 2,5 milljónir króna fyrir síðustu helgi. Eftir helgi skrifar lögmaður Aðalsteins og vill milljón. Þeir eru fundvísir á breiðu bökin, sakborningarnir.
Blaðamennirnir þrír vilja ekki að skrifað sé um aðild þeirra að ljótasta máli íslenskrar fjölmiðlasögu. Blaðamenn notfærðu sér andlega veika konu til að byrla og stela gögnum í byrjun maí fyrir tveim árum. Páll skipstjóri kærði verknaðinn til lögreglu 14. maí 2021.
Viku seinna birtu Aðalsteinn á Stundinni og Þórður Snær og Arnar Freyr á Kjarnanum samræmdar fréttir upp úr gögnum skipstjórans. Þeir vissu að fréttirnar voru fengnar með glæpsamlegu athæfi, byrlun og stuldi. ,,Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið," skrifuðu Þórður Snær og Arnar Þór en slepptu framhaldinu: andlega veik kona var fengin til verksins. Allir með snefil af sómakennd hefðu strax hætt umfjöllun og birtingu efnis og farið með vitneskju sína til lögreglu þegar ljóst var að alvarlegt lögbrot var framið. Blaðamenn RSK-miðla forhertust í þeim ásetningi að komast upp með glæp.
Bloggari sagði fyrst frá rannsókn lögreglu 2. nóvember 2021. Tilfallandi taldi að málið yrði brotið til mergjar af fjölmiðlum landsins sem myndu freista þess að upplýsa sérkennilegt sakamál sem blaðamenn virtust eiga aðild að. En nei, þögnin ein réð ríkjum í heimi fjölmiðla á ísa köldu landi. Það er frétt þegar maður bítur hund en það er ekki frétt þegar blaðamenn eiga aðild að byrlun og stuldi. Blaðamennska skal veita siðlausum friðhelgi.
Rúmum tveim vikum síðar svöruðu Þórður Snær á Kjarnanum og Aðalsteinn á Stundinni með samræmdum hætti sama daginn - siðlausu tvílembingarnir þora ekki að standa einir, alltaf tveir eða fleiri saman. Siðlaus haltur leiðir blindan hrotta. Aðalsteinn skrifaði undir fyrirsögninni Svar við ásökun um glæp. Fyrirsögn Þórðar Snæs var Glæpir í höfði Páls Vilhjálmssonar. Víðóma verðlaunasiðleysið valdi bloggara hin verstu orð.
Væri bloggari lítill hræddur héri að fóta sig í opinberri umræðu hefði hann glúpnað og skriðið ofan í holu. Samræmd breiðsíða frá verðlaunablaðamönnum um að tilfallandi dómgreind væri álíka og Eddu Falak ylli lítt reyndum ónotum. En tilfallandi er eldri en tvævetra, hafði heimildir og vissi siðlausu blaðamennina ljúga eins og þeir eru langir til.
RSK-miðlar eru vanir að komast upp með lygi. Þeir stjórna umræðunni og ákveða hvað skal heita frétt og hvað ekki. Með dagskrárvaldið að vopni spígspora þeir um allar koppagrundir og úthluta sekt og sýknu; jarða mann og annan undir holskeflu samræmds fréttaflutnings.
Spurningin sem bloggari stóð frammi fyrir var þessi: á að láta drýldna ofstopamenn stjórna umræðunni? Miðaldra hvítur karlmaður hlaut að svara nei, eineltishrottarnir færast í aukana ef þeim er ekki veitt viðnám. Bloggskrif héldu áfram, fjölmiðlalömbin þögðu.
Rannsókn lögreglu leiddi til þess að fjórir blaðamenn, þremenningarnir og Þóra Arnórsdóttir á RÚV, fengu stöðu sakborninga 14. febrúar 2022. Þeir mættu ekki til yfirheyrslu fyrr en um haustið. Sakborningarnir sprikluðu í opinberri umræðu og töldu tjáningarfrelsið i hættu ef blaðamönnum yrði gert skylt að gefa skýrslu. Ást þeirra siðlausu á tjáningarfrelsinu er svo fölskvalaus að þeir stefna bloggara fyrir að tjá sig.
Miðstöð glæpsins gegn Páli skipstjóra var RúV, sem fyrrum lögreglustjóri, Stefán Eiríksson, stjórnar. Hvorki heyrðist hósti né stuna frá Glæpaleiti um innanhússrannsókn eða athugun á aðild fréttamanna að glæp. Nokkuð mannfall var þó tilkynnt. Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri lét sviplega af störfum haustið 2021, Helgi Seljan þá um áramótin og loks var sakborningnum Þóru Arnórsdóttur fleytt yfir á aðra ríkisstofnun, Landsvirkjun, í febrúar síðast liðinum. Ári eftir að hún fékk stöðu grunaðrar í glæparannsókn.
Enn þegja fjölmiðlar. Heiðarleg undantekning er frétt Andrésar Magnússonar í Morgunblaðinu um fimmta sakborninginn, Inga Frey Vilhjálmsson, sem einkum er þekktur fyrir að vera helmingur dúósins bræður í glæpum.
Um nýliðin áramót var lögreglurannsóknin langt komin. Nýjar heimildir breyttu atburðarásinni. Þær heimildir gáfu til kynna að blaðamenn, einn eða fleiri, voru með í ráðum áður en Páli skipstjóra var byrlað 3. maí 2021. Áður bentu kringumstæðurök einkum til aðildar blaðamanna en nú komu til skjalanna handfastari gögn. Meðal þessara gagna eru sími sem notaður var til afritunar á síma Páls skipstjóra og símanúmer á þann síma, skráð á RÚV.
Hvorki hafa RSK-blaðamenn gert grein fyrir aðild sinni að málinu né hafa aðrir fjölmiðlar þýfgað starfsfélaga sína og krafist svara. Tilfallandi bloggari er svotil einn um að flytja fréttir af málinu.
RSK-blaðamenn stefna bloggara fyrir að flytja fréttir sem þeir að öðru leyti geta haldið frá almenningi. Það er mergurinn málsins. Meðvirkni með siðleysi einkennir fjölmiðlaþögnina.
Í kröfubréfi Aðalsteins eru kostirnir skýrir. Ein milljón og afsökunarbeiðni annars verður bloggara stefnt fyrir dóm. Blaðamenn kunnugir byrlun og þjófnaði víla auðvitað ekki fyrir sér fjárkúgun. Milljón króna spurningin er hvort tilfallandi kaupi sig frá frekari vandræðum og éti orð sín í ofanálag.
Kyngja og þegja. Svona eins og fjölmiðlar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 31. mars 2023
Selenskí um Bakmút, frið og Pútín
Orustan um Bakmút í Austur-Úkraínu er sjö mánaða gömul. Úkraínumenn eru til varnar en Rússar sækja. Daglegur deyja um 200 til 400 hermenn í umsátrinu síðustu vikur. Selenskí forseti Úkraínu ræddi nýverið við fréttamenn AP-fréttastofunnar um stöðuna í Bakmút, friðarmöguleika og andskota sinn, Pútín forseta Rússlands.
Ef við töpum Bakmút, segir Úkraínuforseti, eykst þrýstingur innanlands á okkur að semja við Rússa. Fólk er tekið að þreytast á stríðinu.
Pútín mun gera mikið úr sigri í Bakmút á alþjóðavettvangi. Hann finnur blóðbragðið og færast í aukana, segir Selenskí.
Bandaríkin vita að hætti þau stuðningi við okkur munum við ekki sigra, er haft eftir forsetanum.
Það liggur í samhengi viðtalsins, þótt ekki sé vitnað beint í forsetann, að falli Bakmút verði versni staða Úkraínu á alþjóðvettvangi, aðstoðin gæti orðið torsóttari. Tap verði dýrkeyptara á pólitískum vettvangi en hernaðarlegum. Blóðfórnir í Bakmút eru Úkraínu dýrari en Rússum sem búa að meiri liðsafla. En á meðan borgin fellur ekki má alltaf halda í vonina.
Gagnárás Úkraínumanna við Bakmút hefur verið sögð yfirvofandi síðustu tvær vikur. Enn bólar ekki á henni. Beðið er eftir að jörð þorni til þungaflutninga, er sagt.
Viðtal Selenskí við AP sýnir ekki sigurvissan forseta.
Úkraína er í vörn, að ekki sé sögð nauðvörn, á vígvellinum og á alþjóðavísu. Jú, þeir eru margir vestrænu stjórnmálamennirnir sem sækja Selenskí heim í Kænugarð, t.a.m. íslenskir. Vestræna blokkin er kannski ekki jafn traust og hún er tungulipur en hefur þó skilað fjármagni og vopnum til að berjast við ofureflið.
Í viðtalinu viðurkennir Selenskí óbeint að úrslitavaldið liggi hvorki hjá vesturlöndum né Rússlandi heldur Kína. Við vorum í góðu sambandi við Kína fyrir stríð, segir Selenskí, og forseti Kína mætti gjarnan heimsækja mig. En frá upphafi átaka eru lítil samskipti.
Xi Jinping forseti Kína heimsótti aftur Pútín í Moskvu fyrr í mánuðinum. Vel fór á með þeim þótt tvennum sögum fari af hve mikinn stuðning Rússlandi fái frá grönnum sínum í austri. Kína er vinurinn álengdar.
Pútín á enga bandamenn, segir Selenski undir lok viðtalsins. Það verða smásigrar hér og smásigrar þar sem munu skipta sköpum um stríðsgæfuna.
Bakmút er smásigur sem gæti orðið stór. Fyrir Úkraínu ... eða Rússland.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 30. mars 2023
Siða-Sunna styrkir stöðu Jóns Gunnarssonar
Eini þingmaðurinn í lýðveldissögunni til að fá dóm fyrir að brjóta siðareglur alþingis, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fylkir liði gegn Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra.
Jón gat ekki valið betri tíma til að fá vinstripíratískt upphlaup gegn sér. Til stóð að honum yrði skipta honum út úr ríkisstjórn fyrir fyrsta þingmann Sunnlendinga.
Ef Bjarni Ben. formaður Sjálfstæðisflokksins skiptir Jóni út eftir árás Siða-Sunnu lítur út fyrir að mútuþægir geti vaðið á skítugum skónum inn i Valhöll og skipað mönnum að sitja og standa í þágu útlendinga.
Vantraust Siða-Sunnu á Jón er stuðningsyfirlýsing með öfugum formerkjum.
![]() |
Grafalvarlegt brot gegn þinginu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 29. mars 2023
Bræður í glæpum: ekkert vanhæfi
Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður á Heimildinni er sakborningur í byrlunar- og símastuldsmáli þar sem Arna McClure er brotaþoli ásamt Páli skipstjóra Steingrímssyni. Bróðir Inga Freys, Finnur Þór, er saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, og fer með s.k. Namibíumál þar sem Arna er með réttarstöðu sakbornings.
Arna fór fyrir héraðsdóm með kröfu um að stöðu hennar sem sakbornings verði aflétt. Rökin voru m.a. að ekkert í gögnum Namibíumálsins styðji réttarstöðu Örnu. Rannsóknin hófst 2019 með málatilbúnaði Jóhannesar uppljóstrara Stefánssonar og RSK-miðla - með Inga Frey innanborðs.
Héraðsdómur synjaði kröfu Örnu og hún áfrýjaði til landsréttar sem í gær staðfesti úrskurð héraðsdóms. Arna skal áfram sakborningur.
Í niðurstöðu landsréttar um tengsl bræðranna segir:
Sú rannsókn [á aðild Inga Freys að byrlunar- og símastuldsmálinu] snýr að öðrum atvikum og sakarefnum en rannsókn sóknaraðila [Finns Þórs] í máli þessu [Namibíumálinu].
Hér er tvennu ólíku slegið saman, rannsóknum og málsaðilum. Vanhæfi Finns Þórs snýst um að bróðir hans er sakborningur í refsimáli þar sem Arna er brotaþoli en ekki hvort málin séu skyld að öðru leyti. Á meðan Arna er sakborningur í Namibíumálinu batnar staða Inga Freys í byrlunar- og símastuldsmálinu.
Sakborningur, samkvæmt skilgreiningu, er grunaður um glæp. Meingjörð gagnvart brotaþola, sem jafnframt er sakborningur, er ekki jafn alvarleg og meingjörð gegn alsaklausum. Þetta er ekki lögfræði heldur siðfræði 101. Siðfræði er undirstaða laga, en ekki öfugt.
Hér er tilgáta um ástæður niðurstöðu landsréttar. Dómararnir þrír vilja ekki undir nokkrum kringumstæðum taka fram fyrir hendur ákæruvaldsins á meðan rannsókn stendur.
Embætti héraðssaksóknara sleppur með skrekkinn í þessari umferð. Kröfumál, líkt og Arna höfðaði, eru ekki ekki sami hluturinn og ákærumál. Það mun ekki reyna á hæfi Finns Þórs í dómsmáli Namibíumálsins. Hann er ekki með nein gögn til að undirbyggja ákæru. Síðast hreyfði hann sig í málinu fyrir tæpu hálfu ári með örvæntingarfullu bréfi til Namibíu.
Skatturinn fór með þann hluta Namibíumálsins er snýr að fjárreiðum. Ekki fann Skatturinn nein ummerki um mútugjafir og felldi niður rannsóknina. Einu gögnin, ef gögn skyldi kalla, sem Finnur Þór býr að, er vitnisburður Jóhannesar uppljóstrara.
RSK-miðlar plöntuðu Jóhannesarsögu í norsku útgáfuna Aftenposten-Innsikt með hjálp leigupenna. Eftir að norska ritstjórnin fór yfir vitnisburðinn baðst hún afsökunar að hafa borið út slúður Jóhannesar og RSK-miðla.
,,Það hefði átt að koma fram í greininni," segir Aftenposten-Innsikt, ,,að Jóhannes er einn til frásagnar um að hafa stundað mútur."
Einn til frásagnar þýðir að engin gögn eru um mútur í Namibíu. Ef ein arða af rökstuðningi fyndist yrði henni óðara slegið upp á RSK-miðlum. Heimildin (Stundin og Kjarninn) eru svo magnvana eftir dauðaleitina að 13 manna ritstjórn getur ekki hóstað upp fleiri en fimm fréttum á dag, - ásamt auðvitað yfirlýsingu um ,,missögn" Eddu Falak.
Finnur Þór hefur vald til að úrskurða Örnu sakborning án annars rökstuðnings en að rannsókn standi enn yfir. Ingi Freyr bróðir nýtur góðs af.
ps
Tilfallandi bloggari á það til að fá stefnu fyrir að segja málsaðila eiga málsaðild. Svo talað sé án tvímæla, og Villi Vill, þriðji bróðirinn, fari ekki að skrifa kröfubréf, er það eindregin og afgerandi tilfallandi sannfæring að hvorki er Finnur Þór vanhæfur sem saksóknari að rannsaka mál þar sem bróðir hans á hagsmuni að gæta né er Ingi Freyr vanhæfur sem blaðamaður að skrifa um rannsókn bróa saksóknara. Fjölskylduréttlætið, það blífi.
![]() |
Landsréttur hafnaði kröfu Örnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 28. mars 2023
EES og innlimun Íslands í ESB
EES-samningurinn er hægt en örugglega að snúast upp í verkfæri til að innlima Íslands í Evrópusambandið. Á sínum tíma var samningurinn seldur Íslendingum sem vörn gegn ESB-aðild. ,,Allt fyrir ekkert," hét það.
Á alþingi liggur fyrir frumvarp utanríkisráðherra. Stutt og laggott hljómar það svona
Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum.
Í reynd er frumvarpið stórfellt valdaframsal alþingis. Lög Evrópusambandsins renna inn í íslenska löggjöf sjálfkrafa í gegnum EES-samninginn. Stefán Már Stefánsson, prófessor vekur athygli á að Evrópusambandið stundar ,,útvíkkun" EES-samningnum. Annað orð er innlimun á íslensku fullveldi í stjórnarskrifstofur Brussel.
Í greinargerð er viðurkennt að pólitískar hótanir eru ástæða frumvarpsins. Þar segir
ESA hefur kynnt að fyrir liggi að verði ekki bætt úr innleiðingu á bókun 35 muni stofnunin taka næsta skref og höfða mál fyrir EFTA-dómstólnum með kröfu um staðfestingu dómstólsins á því að Ísland hafi brotið gegn skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum.
í beinu framhaldi kemur afhjúpandi setning
Með frumvarpinu er frumkvæði og forræði stjórnvalda á málinu tryggt.
Uppgjöf tryggir ,,frumkvæði og forræði" Íslendinga. Hér talar íslenska stjórnarráðið eins og útibú Brussel. Frumvarpið er stórfellt valdaframsal frá Íslandi til meginlands Evrópu en íslenskir embættismenn tala um að Ísland nái ,,frumkvæði og forræði".
Það er aum ríkisstjórn sem gætir ekki hagsmuna þjóðarinnar betur en svo að íslenskumælandi brusselistar framselja fullveldið og kalla það framgang íslenskra hagsmuna.
![]() |
Algjörlega breyttar forsendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 27. mars 2023
Biðst Þórður Snær afsökunar?
Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, fullyrti að Samherji hefði greitt mútur í Namibíu. Orðrétt skrifaði ritstjórinn ,,Samherji hefur nú verið opinberað fyrir að hafa greitt mútur til að komast yfir kvóta í Namibíu".
Tilvitnunin er tekin úr inngangi fréttaskýringar Þórðar Snæs um miðjan nóvember 2019. Samherji hefur ekki sætt ákæru fyrir mútur, hvorki á Íslandi né í Namibíu. Ítarleg skattrannsókn fór fram vegna áskana Þórðar Snæs og RSK-miðla. Rannsóknin var felld niður enda fannst ekkert saknæmt.
Sú spurning vaknar hvort Þórður Snær ætli að draga orð sín tilbaka og biðja Samherja afsökunar.
Spurningin er áleitin sökum þess að Þórður Snær og blaðamaður á ritstjórn hans stefndu bloggara fyrir að segja þá eiga aðild, beina eða óbeina, að refsimáli þar sem tvímenningarnir eru sakborningar. Þegar Þórður Snær skrifaði fréttaskýringuna var enginn Samherjamaður sakborningur.
Þórður Snær taldi hart að sér vegið með því að segja hann eiga aðild að refsimáli þar sem hann er sakborningur. Haft er eftir Þórði Snæ, eftir að hann fékk bloggara dæmdan:
Ég er ánægður að sjá að réttarkerfið virkar eins og það á að virka. Það blasti við okkur að þarna voru settar fram staðhæfingar og staðreyndir sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Ég og Arnar Þór Ingólfsson vorum sakaðir um alvarleg hegningarlagabrot og það má ekki segja hvað sem er um hvern sem er, hvenær sem er, hvar sem er.
Staðhæfingar og staðreyndir bloggara byggja á réttarstöðu Þórðar Snæs og Arnars Þórs. Báðir eru sakborningar. Ergó, þeir eiga aðild að refsimálinu þar sem þeir eru til rannsóknar.
Þórður Snær setti fram fullyrðingu, um að Samherji greiddi mútur, sem á sér ,,enga stoð í veruleikanum," svo notað sé orðfæri hans sjálfs.
Þórður Snær er óopinber talsmaður RSK-miðla sem fara með drjúgan hluta dagskrárvalds opinberrar umræðu hér á landi. Blaðamannafélag Íslands er bakhjarl RSK-miðla. Fjölmiðlabandalagið leggur línurnar um hvað leyfist og hvað ekki.
Mun ritstjórinn biðjast afsökunar, nú þegar hann er uppvís að halda ekki máli á eigin siðferðiskvarða? Ef ritstjórinn biður Samherja ekki afsökunar hlýtur hann að biðja bloggara afsökunar fyrir að stefna honum fyrir dóm vegna ummæla sem eru sýnu mildari og betur rökstudd en þau sem Þórður Snær viðhafði.
Eða ætlar Þórður Snær að skáka í því skjólinu að RSK-blaðamenn eru hafnir yfir siði, lög og rétt og eru í ofanálag með héraðsdóm Reykjavíkur í vasanum til að dæma bloggara fyrir að segja sannleikann? Á meðan sannleikurinn er múlbundinn komast menn upp með glæpi. Til dæmis að byrla, stela gögnum, misnota andlega veika og brjóta á friðhelgi fólks.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 26. mars 2023
Áfrýjun til landsréttar, málskostnaður
Tilfallandi bloggari var fyrir helgi dæmdur til að greiða tveim blaðamönnum RSK-miðla um 2,5 m.kr. vegna bloggskrifa um aðild RSK-miðla að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma. ,,...það má ekki segja hvað sem er um hvern sem er," sagði annar blaðamannanna, Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, við dómsuppsögu á föstudag.
Tjáningarfrelsið er sem sagt fyrir fáeina útvalda. Þeir sem andæfa ráðandi frásögn fjölmiðla og vekja athygli á lögleysunni hljóta verra af - til dæmis málssókn. Dómnum frá föstudag verður áfrýjað enda tekur engu tali að ekki megi segja á opinberum vettvangi að málsaðilar eigi aðild, beina eða óbeina.
RSK-miðlar, RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) eru fjármagnaðir af ríkinu. RÚV er á fjárlögum og Heimildin fær fjölmiðlastyrk úr ríkissjóði. Tilfallandi bloggari er launamaður.
Lesendur hafa haft samband og spurt hvernig mætti leggja tilfallandi athugasemdum lið með fjárframlagi vegna málskostnaðar.
kRST lögmenn ehf. hafa verið svo vinsamlegir að opna fjárvörslureikning til að halda utan um málskostnaðinn. Þeir sem vilja leggja málinu lið er bent á reikninginn sem skráður er hér að neðan - með fyrirfram þökkum frá tilfallandi bloggara.
KRST lögmenn ehf.
Kennitala
711204-2960
Reikningsnúmer
0513-14-640046
![]() |
Páll vill draga þjófsnauta fyrir Landsrétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 25. mars 2023
Lausung í löngum texta
Sakborningur í refsimáli á aðild að málinu. Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson eru sakborningar í yfirstandandi lögreglurannsókn er snýst um byrlun og stuld á síma Páls skipstjóra Steingrímssonar. Dómari við héraðsdóm Reykjavíkur skrifar 26 blaðsíðna dóm um að málsaðilar eigi ekki málsaðild. Verðlaunadómur um verðlaunablaðamenn.
Í dómi héraðsdóms, þar sem tilfallandi bloggari er dæmdur fyrir ummæli um ,,beina eða óbeina aðild" vísar dómarinn ítrekað í,,staðreyndir málsins" og ályktar frjálslega um að Þórður Snær og Arnar Þór eigi ekki aðild að máli þar sem þeir eru sakborningar.
,,Staðreyndir málsins", sem dómari fabúlerar um, eru í gögnum lögreglu, sem dómarinn hefur ekki aðgang að, en eru grundvöllurinn að þeirri staðreynd að Þórður Snær og Arnar Þór eru sakborningar.
Bloggari ályktaði að þar sem Þórður Snær og Arnar Þór eru sakborningar í lögreglurannsókn hljóti þeir að eiga ,,beina eða óbeina aðild" að málinu sem er til rannsóknar, þ.e. byrlun og gagnastuldi. Annars væru þeir ekki sakborningar. Lögregla úrskurðar að einhver sé sakborningur á grundvelli gagna sem tengja viðkomandi við refsiverða háttsemi. Á íslensku heitir það aðild.
Vörn Þórðar Snæs og Arnars Þórs er að þeir hafi ekki komið nálægt byrlun og stuldi, aðeins birt fréttir úr stolna símanum. En það er líka aðild. Þeir sem njóta góðs af þýfi eru þjófsnautar.
Samkvæmt dómnum er ærumeiðandi að segja sakborning í refsimáli eiga aðild að málinu. Sannleikurinn er ærumeiðandi og skal ómerkja. Leiðin framhjá sannleikanum liggur í löngum texta. Gildir bæði í blaðamennsku og dómaskrifum.
Úrskurður dómarans, í hnotskurn, er eftirfarandi: Þórður Snær og Arnar Þór eru sakborningar í refsimáli, en þeir eiga ekki aðild að málinu, hvorki beina né óbeina.
Einu sinni var dómari sem komast að þeirri niðurstöðu að lög bönnuðu ekki að hengja bakara fyrir smið. Héraðsdómur Reykjavíkur gerir betur: sakborningar eru ekki málsaðilar. Hvað kemur næst? Að ákærðir séu ekki ákærðir?
Dómarinn fór í smiðju Þórðar Snæs sem skrifaði alræmdan leiðara 18. nóvember 2021, ,,Glæpur í höfði Páls Vilhjálmssonar." Þremur mánuðum síðar var Þórður Snær orðinn sakborningur í lögreglurannsókn á byrlun og gagnastuldi. Páll Vilhjálmsson skrifar og veldur raðbilun á dómgreind.
Þórður Snær birti frétt á Heimildinni kl. 7:30 í gærmorgun um að dómur í málinu verði kveðinn upp síðar sama dag. Þórður Snær var mættur í dómssal að hlýða á dómsuppkvaðningu og hafði kallað til félaga sína úr blaðamannastétt að fagna með sér. Hvernig vissi Þórður Snær niðurstöðuna fyrirfram? Samhengið er langur texti, léleg dómgreind og lágt siðferði.
![]() |
Má ekki segja hvað sem er |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)