Logi útilokaður í eitt ár - tjáningarfrelsið

Logi Bergmann gerði fyrir 12 árum ráðningarsamning við 365-miðla sem sjónvarpsmaður. Á þeim tíma var hörð samkeppni milli RÚV og Stöðvar 2 um starfsfólk. Í samningnum var ákvæði sem takmarkaði möguleika Loga að fara til samkeppnisaðila.

Logi færði sig yfir í útvarp og pistlaskrif. Hann gerir fyrir nokkrum dögum ráðningarsamning við Árvakur. En þá bregður svo við að vinnuveitandi hans, 365-miðlar, krefjast lögbanns á störf Loga hjá Árvakri.

Logi starfar við að tjá sig í ræðu og riti. Lögbannið snertir augljóslega meginreglur um tjáningarfrelsið.

En það er engin umræða um tjáningarfrelsi Loga. Vinstrimenn og fjölmiðlar þeirra eru samt í góðri æfingu hafandi hellt sér yfir lögbann Glitnis á fréttaflutningi af gögnum bankans.

Vinstrimenn og fjölmiðlar þeirra telja tjáningarfrelsi einstaklingsins léttvægt, eyða ekki orðum á það. Hvað veldur?


mbl.is „Hef meiri áhyggjur af gengi United en lögbanninu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Hefur ekkert með tjáningarfrelsi að gera. 

Aðeins samningur sem hann kvittaði undir sjálfur og óstuddur.

Blaðamaðurinn ætti nú að þekkja muninn.

Jón Ingi Cæsarsson, 19.10.2017 kl. 12:03

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eru starfsmenn flokkaðir sem innanstokksmunir þegar fyrirtæki ganga kaupum og sölu?

Ragnhildur Kolka, 19.10.2017 kl. 15:14

3 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Sæll

Mikill rökfræðingur er Jón Ingi. Það hefur ekkert með tjáningarfrelsi að gera ðð nafngreindur maður megi ekki tjá sig í fjölmiðum í eitt ár. - Það var og.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 19.10.2017 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband