Múslímar, trúin og mannslífin

Múslímar eru ekki kynþáttur heldur trúarsamfélag. Múslímar skilgreina sig sem trúaða en alla aðra vantrúaða. Helgirit þeirra, Kóraninn, segir berum orðum (58:14-21) að vantrúaðir fái bæði refsingu guðs á jörðu og séu dæmdir til helvítisvistar í eilífiðinni.

Múslímar eru vel meðvitaðir um að kennisetningar þeirra eru ósamrýmanlegar vestrænum gildum. En í stað þess að taka upp vestræna siði og háttu leitast þeir við að búa sér til menningarkima í vestrænum ríkjum, til að halda lífi í menningu sinni.

Í Noregi fara múslímar fram á að stofna barnaskóla. Norðmenn segja nei, múslímabörn eiga að fara í norska skóla til að aðlagast samfélaginu. Múslímar hóta á móti að senda börnin sín til útlanda enda vilja þeir ekki aðlagast.

Fæstir múslímar eru hryðjuverkamenn, ekki fremur en að flestir Þjóðverjar hafi verið nasistar á dögum Hitlers. En þar sem múslímar eru næst fjölmennustu trúarbrögð heims, telja 1,6 milljarða, þarf ekki nema örlítið hlutfall múslíma að taka upp vopn og fylgja boðskap Kóransins um stríð gegn vantrúuðum (2:191 og 9:5 og 9:40-1 í Kóraninum) til að úr verði blóðbað saklausra.

Eins og dæmin sanna. Múslímum, mörgum hverjum, finnst vestræn mannslíf léttvæg, þetta eru mannslíf vantrúaðra.

Önnur algeng útleið múslíma, til að afsaka ábyrgð trúarinnar á hryðjuverkum, er að setja saman samsæriskenningar. Trúarleiðtogi þeirra á Íslandi reyndi þetta og setti inn myndband um að árásin á Lundúnabrú hafi verið vestrænt samsæri gegn múslímum.

Salmann Tamimi, formaður Félags múslíma á Íslandi, segir færslu trúarleiðtogans ,,vandræðalega." En Tamimmi er sjálfur hugfanginn af hugmyndinni um heilagt stríð og óskar vantrúuðum helvítisvistar.

Niðurstaða: á meðan múslímar líta á orð spámannsins sem opinberun vilja guðs eru þeir ógn við vestræn gildi og vestræn mannslíf.


mbl.is „Mjög vandræðalegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Algjörlega sammála og engu við þetta að bæta.

Theódór Norðkvist, 10.6.2017 kl. 11:19

2 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Algjörlega rétt. Múslímar eiga hvergi á Vesturlöndum að fá að reka skóla eða leikskóla. Þar innræta þeir börnunum þetta rugl.

Sveinn R. Pálsson, 10.6.2017 kl. 11:37

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Sæll Páll!

Hvað myndir þú ráðleggja mér að kjósa í næstu Alþingiskosningum                til að sporna gegn aukinni útbreiðslu múslimasiða hér á landi?

Jón Þórhallsson, 10.6.2017 kl. 11:38

4 identicon

Sæll aftur Páll

Það er greinilegt að þú ferð með nákvæmlega sömu áróðurs- og lyga rulluna hans Robert Spencer Zíonista varðandi þessar suruh- ur eða vers 2.191, 9.5, 9,40,  en hérna hann Róbert karlinn passar sig á því að nota EKKI viðurkennda og samþykkta útgáfu af Kóraninum, nú og auk þess þá þýðir orðið jihad barátta. En hvað varðar þessi vers þá ætti fólk að lesa þau í samhengi.

 „(2:190) Fight in the way of Allah200 against those who fight against you but do not transgress,201 for Allah does not love transgressors.“

„[9:5] But when the sacred months expire6 slay those who associate others with Allah in His Divinity wherever you find them; seize them, and besiege them, and lie in wait for them. But if they repent and establish the Prayer and pay Zakah, leave them alone.7 Surely Allah is All-Forgiving, Ever-Merciful.“

„[9:39] If you do not march forth, Allah will chastise you grievously40 and will replace you by another people,41 while you will in no way be able to harm Him. Allah has power over everything.“

Þetta er á vefsíðunni „Towards Understanding the Quran With kind permission: Islamic Foundation UK

Í öllu þessu Múslímahatri er ekki komið nóg eða þarf að magna upp meira hatur? Það er greinilegt að allt þetta Anti- Íslam -áróðurstrúboð Róbert Spencer, Pamellu Geller, Bill Warner og Zíonista er farið að skila sér, eða þar sem að Múslímar eru og hafa verið missa vinnu og leiguhúsnæði víða í Evrópu.    

Við könnumst við þessar aðferðir með að klína öllum hryðjuverkum uppá Múslíma, þegar Múslímar viðurkenna EKKI Al-Qaeda, Al-Nusra og ISIS, svo og eru á móti allri hryðjuverkastarfsemi. Það er greinilegt að menn sækjast efir því að magna upp og virkja Múslímahatrið, en í öllu þessu Múslímahatri er ekki orðin hætta á því, að fólk taki uppá því að drepa Múslíma vilt og galið, eða hvernig endar þetta í öllu þessu Múslímahatri?

Ef þetta Zíonista  Anti- Íslam áróðurs-lið er farnir að líkjast einhverjum, þá væri það kannski hérna honum Genrikh Yagoda eða Lazar Kagan. En þér að segja þá hef ég trú á Interfaith dialoge og Ecumenical vínáttu milli trúarbragða.

KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.6.2017 kl. 14:35

5 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Ég nota Oxford world classics útgáfuna af Kóraninum, sjá

https://www.amazon.com/Quran-Oxford-Worlds-Classics/dp/0199535957

Páll Vilhjálmsson, 10.6.2017 kl. 17:23

6 Smámynd: Merry

Þú , Þorsteinn Sch Thorsteinsson , Sýna alltaf ást þína fyrir íslam og múslima og hatrið þitt fyrir Ísrael og Gyðinga, Hreinskilnislega , það er sannarlega mjög leiðinlegt.

Merry, 10.6.2017 kl. 17:36

7 Smámynd: Theódór Norðkvist

Merry, Þorsteinn er búinn að vera svo lengi með hausinn ofan í Íslamskólpræsinu og drekka í sig svo margar öfgaíslamskar samsæriskenninga- og Gyðingahaturssíður, að hann er sennilega kominn með heilaskemmdir.

Maðurinn er næg ástæða til að grátbiðja vefstóra blog.is að forrita inn möguleika á vefsíðuna að fela innlegg ákveðinna notenda. Hrikalegt að þurfa að synda í gegnum þetta skólp til að finna vitrænar athugasemdir.

Theódór Norðkvist, 10.6.2017 kl. 18:11

8 identicon

Sæll aftur Páll

Þessi Oxford útgáfa af Kóraninum er alls ekki viðurkennd eða hvað þá samþykkt af Múslimum. En eins og þú veist þá er ekki allt glæsilegt frá Oxford, eins og t.d. Oxford Biblían hans C.I. Scofield sem mjög umdeild útg. svo og vantar í mörg versin miðað við King James Version (KJV). 

KV.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.6.2017 kl. 18:16

9 identicon

Sæl Merry

Ég er ekki Múslimi, en ég hef áhuga á Interfaith dialoge og Ecumenical vínáttu milli trúarbragða, nú og ég er Anti- Zíonsti, en hérna Zíonismi er ekki trú, heldur pólitísk rasista hernaðarstefna er gengur út á það að komast yfir allt landsvæði Palestínumanna. Nú og ég er á móti öllu her- og landnámi Zíonista.

KV.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.6.2017 kl. 18:26

10 identicon

Theódór Norðkvist,

Nei, ég er ekki að skoða þessar síður hérna "öfgaíslamskar samsæriskenninga-" og/eða einhverjar síður, heldur er ég í því að lesa bækur um hvernig er hægt lækna ruglaða Kristna- Zíonista, bókstafstrúarmenn, svo og einstaklinga eins og þig sem eru með svona stiff neck narrominded individual thinking space out hugsunarhátt.

KV.  

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.6.2017 kl. 18:46

11 Smámynd: Hörður Þormar

Þorsteinn Sch. Thorsreinsson.

Ég ráðlegg þér eindregið til að lesa bækur egypska rithöfundarins Hamed Abdel-Samad um Íslam, Múhameð spámann og Kóraninn.

Ef þú skilur þýsku, þá ráðlegg ég þér líka til að kynna þér málflutning ísraelska Arabans og sálfræðingsins,  Ahmad Mansour.

Hörður Þormar, 11.6.2017 kl. 13:58

12 Smámynd: Merry

Og meðan þú ert að lesa Þorsteinn - lestu hvað Sir Winston Churchill skrev um múslimar.

Merry, 11.6.2017 kl. 19:19

13 Smámynd: Steinarr Kr.

Að segjast vera anti sionisti er felubúningur fyrir anti semetista.

Steinarr Kr. , 12.6.2017 kl. 12:00

14 identicon

Steinarr Kr. ´NEI þetta anti semetista- kort er hætt að virka, þú?  Sjá hérna myndbandið Playing the 'Anti-Semitism' Card  og "Anti-Semitism!!" -- EXPOSED


Myndaniðurstaða fyrir inventid antysemitism

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 12.6.2017 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband