Traustið byrja heima, Sigurður Ingi

Eftir hrun urðu þjóðfélagsöfl á Íslandi áberandi sem ólu á vantrausti. Sigur Samfylkingar og Vinstri grænna í kosningunum 2009 var afleiðing af hruni og vantrausti.

Við kosningarnar 2013 tókst hófsömum stjórnmálaöflum, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, að ná meirihluta á alþingi. Þjóðfélagsöflin sem ólu á vantrausti, vinstriflokkarnir meðtaldir, héldu þó áfram sinni iðju og notuðu smá mál og stór til að kynda undir ólgu og efna til mótmæla.

Við þessar kringumstæður verða þeir hófsömu og yfirveguðu að standa vaktina og láta ekki undan óreiðuöflunum. Það ætti ekki að efna til óvinafagnaðar þótt óreiðuöflin sameinist um að knésetja leiðtoga sem talar fyrir stöðugleika og sígandi lukku.

Traustið byrjar heima.


mbl.is Tortryggni eykst þegar traustið hverfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Fylgi Framsóknarflokksins hrundi ekki af ástæðulausu. Hvað er til ráða fyrir Framsókn? Ég vitna í Mbl.is:

"Báðar kann­an­ir sýna Sig­urð Inga njóta meiri vin­sælda þegar kjós­end­ur allra flokka voru spurðir. Þannig sýn­ir könn­un stuðnings­mann­anna að rúm 40% væru lík­legri til að kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn í kom­andi alþing­is­kosn­ing­um með Sig­urð Inga í for­mann­sæt­inu, en aðeins 8,6% töldu lík­legt að þeir kysu flokk­inn væri Sig­mund­ur Davíð formaður. Í könn­un Viðskipta­blaðsins töldu 47%  þeirra sem svöruðu Sig­urð Inga bet­ur til þesss fall­inn að vera næsta formann Fram­sókn­ar­flokks­ins, en 12% nefndu Sig­mund Davíð."

Skilaboðin eru skýr.

Wilhelm Emilsson, 29.9.2016 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband