Múslímamenning og mannréttindi kvenna eru andstæður

,,Ég vil kynlíf með þér,"...,,falleg brjóst"...,,ég drep þig". Tilvitnuð orð er að finna á minnispunktum á bréfum, skrifuð á arabísku og þýsku, sem handteknir múslímskir karlmenn í Köln voru með á sér. Þeir voru handteknir vegna hópárása á þýskar konur á nýársnótt.

Múslímsku karlmennirnir koma frá miðausturlöndum og taka með sér kvenfjandsamlega menningu, þar sem litið er á konuna sem eign karlmannsins. Með því að hleypa þeim í stórum hópum inn í vestræn samfélög er boðið upp á ofbeldi sem fjölmiðlar hafa lengi þaggað yfir.

Stíflan brast í vikunni og nú streyma fram fréttir í fjölmiðlum um ofbeldiskennda framkomu múslíma gegn konum í mörgum Evrópulöndum.

Rót vandans er trúarmenning múslíma. Menning verður ekki ,,lagfærð" eða ,,leiðrétt" með fræðslu eða aðlögun á nokkrum vikum eða misserum.

 

 


mbl.is Árásir í Svíþjóð á nýársnótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

MENNING  þessara manna verður aldrei lagfærð.

 Það hentar þeim ekki að missa vald.

 Menning annara á að lúta þeim- þeir fara ekki að kögum- nema sínum.

 kv.

Erla Magna Alexandersdóttir, 8.1.2016 kl. 17:38

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

afsakið- ritvillu- átti við þeir fara aðeins eftir sínum LÖGUM.

Erla Magna Alexandersdóttir, 8.1.2016 kl. 17:39

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

ESB gerist nú fjötur um fót,

er fjendum það býður að vera,

sem veitast að ófárri snoturri snót

og snúa' hana niður bera.

  

Jón Valur Jensson, 8.1.2016 kl. 21:24

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

og snúa´hana niður bera.

Jón Valur Jensson, 8.1.2016 kl. 22:07

5 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Ég held að sumir hefðu gott af að kynna sér menningu 1.600 milljón trúaðra pínkupons betur. Kannski að ræða við nokkrar kúgaðar skvísur þeirra á meðal. Nefni engin nöfn.

Guðjón E. Hreinberg, 9.1.2016 kl. 08:49

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Að sjálfsögðu er hægt að siðvæða menningu múslima. Geri ráð fyrir að ekki séu allir múslimar með sömu sýn á konur eins og þessir ofbeldismenn. En þetta er samt sem áður vandamál sem verður að fást við. En þessar árásir virðast hafa verið skipulagðar. Þær gerast , ekki bara í þýskalandi heldur einnig í Svíþjóð og Finnlandi. Hver tilgangurinn sé er vandséð. Þetta hlýtur að koma illa við innflytjendur. Kannski er þessi hópur á móti því að fá fleiri flóttamenn inn í landið þar sem þeir hafa þegar komið sér fyrir og það rýrir á einhvern hátt réttindi þeirra? Ég á svolítið erfitt með að trúa því að þessir menn hafi verið keyptir af þjóðernissinnum til að koma óorði á innflytjendur. 

Jósef Smári Ásmundsson, 9.1.2016 kl. 09:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband