Einn bannaður í Úkraínu, annar í Rússlandi

Franski leikarinn Géerard Deperdieu er bannaður í Úkraínu vegna stuðnings við Rússa. Í Rússlandi sjálfu eru bækur sagnfræðingsins Anthony Beevor bannaðar í skólum sökum þess að hann styður Rússa ekki nógu mikið (les: Beevor segir frá nauðgunum rússneskra hermanna á þýskum konum í lok seinna stríðs.).

Austur-Evrópa er enn á því menningarstigi að banna eitt og annað sem ekki fellur að opinberri stefnu.

Vesturlönd banna ekki menningu, aðeins viðskipti. Og það er óendanlega merkilegra. Eða þannig.


mbl.is Slökkt á Depardieu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

"Vesturlönd banna ekki menningu, aðeins viðskipti."

Ertu alveg viss um það, að bann Vesturlanda nái aðeins yfir viðskipti? Mér vitandi hafa Vesturlönd bannað mörgum rússneskum stjórnmála- og embættismönnum að ferðast til ýmist V-Evrópu eða USA. Það er ekki viðskiptalegt, heldur hreint pólítískt.

Hvað varðar notkun á menningu í pólítískum tilgangi þá er ég viss um að ein ástæðan fyrir því að Conchita fékk svo mörg atkvæði frá v-evrópskum þjóðum var vegna andúðar Rússa á honum/henni. Þar að auki er sniðganga (boycot) gagnvart Ólympíuleikunum þegar þeir hafa verið haldnir í Rússlandi (Moskvu 1980, Sochi 2014). Að vísu er sniðganga ekki bann, en slagar hátt upp í það.

Og hvað margar a-evrópskar kvikmyndir voru sýndar í Bandaríkjunum á McCarthy-tímabilinu? Eða gefnar út þýddar bækur eftir sovézka höfunda? Heyri ég núll? Fyrsta, annað og þriðja... Þetta var allt bannað þá.

Aztec, 9.8.2015 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband