Elliði fær haturspóst

Elliði Vignisson skrifaði rökstudda stuðningsyfirlýsingu við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Í kjölfarið fær hann haturspóst. Elliði birtir sýnishorn en þar er hótað að hann verði fyrir skipulögðu aðkasti og ,,tekinn niður".

Nafnkunnur penni benti á að ég ætti að hafa vit á því að halda mig til hlés ef ég myndi ekki vilja „....verða undir þeirri sömu öldu og kom Sjálfstæðisflokknum út úr þinghúsinu í hruninu

Hverjir standa fyrir skipulögðum hatursherferðum?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Hér eru væntanlega sömu aðilar að verki sem herja á Hönnu Birnu án saka, í þeim tilgangi að knésetja pólitíska andstæðinga sína.  Þetta virðast vera þau meðöl sem vinstrimenn helst nota þegar þeir komast í málefnaleg þrot.

Þetta er ljótur leikur málefnafátækra manna og kvenna, en vopn þeirra mun að lokum snúast í höndum þeirra og fella þau sjálf, vopnin munu opinbera hvílíkan mann þetta fólk hefur að geyma.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.8.2014 kl. 11:18

2 Smámynd: Elle_

Andlega fátækt fólk beitir hótunum.  Rökþrota fólk sem kann ekkert nema ofbeldi.  Vonandi fer Elliði með þetta miklu lengra.  Það er kominn tími til að taka á svona ofbeldi í þessu landi.

Elle_, 15.8.2014 kl. 05:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband