Landsbankinn bakhjarl auðmanna í stríði

Útrásarauðmenn eru í stríði gegn slitastjórn Glitnis sem lögsækir Jón Ásgeir, Pálma í Fons, Hannes Smára og fleiri í New York. Helsta vopn auðmanna er Baugsmiðlar sem síðustu daga færast í aukana í árásum á slitastjórn Glitnis. Landsbankinn heldur móðurfélagi Baugsmiðla, 365-miðlum, á floti með sérstökum samningi við Jón Ásgeir.

Eignarhaldi Jóns Ásgeirs á fjölmiðlum fylgir misnotkun enda er tilgangurinn með eignarhaldinu beinlínis að hafa áhrif á opinbera umræðu.

Landsbankinn er nær alfarið í eigu ríkisins og ætlað að vera hornsteinn í endurreisn fjármálastofnana. Horsteinn lagður í kviksyndi spillingar útrásarauðmanna mun vitanlega sökkva fyrr heldur en seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Útgerðar menn eru í stríði við ríki og almenning í landinu.

Helsta vopn LÍÚ er Morgunblaðið, sem stöðugt færist í aukana í stríð við almenning.

Notendur kvótans  eru helstu styrktaraðilar morgunblaðsins, og nota til þess auð sem Framsóknarflokkurinnhefur að mestu fært þeim á silfurfati.

Eignahaldi útgerðarmanna á morgunblaðinu fylgir misnotkun, enda tilgangurinn með eignarhaldinu að hafa áhrif á opinbera umræðu.

Notendur kvótans og þar með peningana sækja auð sinn fyrst og fremst í vasa almennings  sem á í raun allan óveiddan fisk, og fiskveiðar eru hornsteinn í endurreisn þjóðfélagsins.

kvótakerfið er hornsteinn í spillingu þjóðfélagsins, og er kerfi sem vitanlega mun sökkva fyrr en seinna.

Þórhallur (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 07:41

2 identicon

Sammála Páli og Þórhalli.  Hvort tveggja er jafn rotið.  Almenningur ætti að hafa vit á að skipa sér ekki í aðra hvora fylkinguna.

Þórður (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 08:17

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

hehe Þórhallur góður. Svona getur nú áróðurinn snúist í höndum manna eins og Páls Vilhjálmssonar. Hins vegar er ég alveig sammála bæði Páli og Þórhalli

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 13.10.2010 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband