Tveir kennarar tjá sig, annar missir atvinnuna

Fyrir ári varđ framhaldsskólakennari uppvís ađ hafa í kennslustund jafnađ Sigmundi Davíđ formanni Miđflokksins viđ Hitler og Mussólíni. Samkvćmt glćru kennarans eru ţremenningarnir ,,merkir ţjóđernissinnar." Morgunblađiđ sló málinu upp, Vísir einnig.

Síđan gerđist ekkert meira. Máliđ fjarađi út.

Helgi Helgason kennari viđ Menntaskólann á Laugarvatni skrifađi um helgina ófagra fćrslu á Facebook um Bashar Murad er keppti í söngvakeppni RÚV. Starfsferill Helga kennara fjarađi út á ţremur dögum.

Kennarinn í Versló líkti Sigmundi Davíđ viđ tvo helstu óţokka sögunnar í kennslustund. Helgi tjáđi sig á Facebook utan kennslu. Ólíku er saman ađ jafna. Agavald skolastjórnenda er yfir kennurum ađ störfum, ekki yfir frjálsum borgurum utan vinnu. Stjórnarskráin tryggir, eđa á ađ tryggja, rétt manna til ađ tjá hug sinn.

Ef gefiđ er ađ tjáning beggja kennaranna hafi veriđ óviđurkvćmileg og smekklaus má spyrja hvers vegna ađeins annar varđ fyrir alvarlegum eftirmálum, - missti vinnuna.

Nćrtćk skýring er ađ kennarinn í Versló fékk ekki yfir sig holskeflu vinstrimanna, handhafa pólitísks rétttrúnađar. Helgi fćr yfir sig brimskaflinn.

Pólitískur rétttrúnađur, stundum kallađur vók, tekur sér vald til ađ skilgreina hvađ má segja og hvađ ekki í opinberri umrćđu. Frekja og ofstćki einkennir handhafa valdsins. Engin málsmeđferđ er á álitamálum, ađeins einhliđa fordćming. Reiđibylgja rís á félags- og fjölmiđlum. Ásökun jafngildir sekt. Slátrun strax í kjölfariđ.

Tilfallandi hefur daglega bloggađ í tuttugu ár. Ţađ er ađeins á síđustu 3-4 árum sem hann hefur ţurft ađ óttast um atvinnu sína og afkomu vegna bloggskrifa. Tilfallandi athugasemdir eru áţekkar og löngum áđur, sjónarmiđ á dćgurmál og landsins gagn og nauđsynjar. Pólitískur rétttrúnađur hefur aftur gert sig gildandi í samfélaginu svo um munar. Frjáls umrćđa frjálsra borgara lćtur á sjá. 


mbl.is Kennari lćtur af störfum í kjölfar rasískra ummćla
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sigmundur Davíđ er rétt eins og Bjarni Ben međ skotskífu á sér fyrir vinstri menn. Líklegasta skýringin er ađ skólinn á Laugarvatni hafi meiri vinstri halla en Versló. Ţví fyrir utan ađ vera međ skotmörk sín á hreinu ţá eru vinstri menn refsiglađari en miđju- og hćgri menn.

Ragnhildur Kolka, 6.3.2024 kl. 14:22

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband