Íslenskar mútugjafir í Egyptalandi

Íslenskir aðgerðasinnar múta embættismönnum í Egyptalandi til að kaupa sérvalda Palestínuaraba yfir landamærin við Gasa. Í viðtali á mbl.is viðurkenna aðgerðasinnar að bera fé á embættismenn:

það kost­ar í kring­um 5000 doll­ara fyr­ir ein­stak­ling að koma í gegn­um landa­mær­in með flutn­ingi

Fimm þúsund dollarar eru tæpar 700 þúsund krónur. Hér er ekki um að ræða greiðslu fyrir skjöl og flutninga heldur er verið að bera fé á opinbera starfsmenn er sjá um landamæragæslu á milli Egyptalands og Gasa. Það er lögbrot samkvæmt íslenskum lögum að múta. Morgunblaðið, eini fjölmiðillin sem fjallar um málið, segir:

Mútugreiðslur hér á landi sem annars staðar eru bannaðar með lögum og Ísland hefur einnig alþjóðlegar skuldbindingar hvað það varðar. Viðurlög eru sektir eða allt að fimm ára fangelsi. Það gæti því komið aðgerðasinnunum illa, því lögin eru afdráttarlaus, óháð því hvort einhverjum þyki málstaðurinn góður eða slæmur.

Mútugjafir Íslendinga í Egyptalandi eru fullframdar, játning liggur fyrir. Það hlýtur að hafa afleiðingar. Varla eru lög um bann við að bera fé á fólk upp á punt.

Á alþingi segir Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son félagsmálaráðherra að ekki standi til að íslensk stjórnvöld reiði af hendi mútufé í Egyptalandi. Morgunblaðið er eini fréttamiðillinn sem segir tíðindin.

Stéttafélög hafa gefið í samskot til að kaupa ólöglega fyrirgreiðslu í þróunarríki, þar sem opinberir starfsmenn freistast að brjóta lög fyrir reiðufé. Efling gaf eina milljón. Er það hlutverk íslenskra stéttafélaga að grafa undan lögum og siðferði í fátæku Afríkuríki? 

Sumir íslenskir fjölmiðlar, t.d. Heimildin og RÚV, búa yfir sérhæfðri þekkingu um mútugreiðslur, sem kunnugt er. Má búast við raðfréttum sem upplýsa um íslenskar mútur í Egyptalandi? Verður gerð krafa um að embætti héraðssaksóknara láti málið til sína taka, efni til rannsóknar? Geta spilltar íslenskar forréttindakonur valsað um þróunarríki og mútað fátæklingum til að fá sínu framgengt, óháð lögum og reglum?


mbl.is Íslensk stjórnvöld myndu ekki greiða mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Nu er tækifærið fyrir Heimildina og RUV að sýna um hvað raunveruleg blaðamennska snýst. Það, eða hvort þessir miðlar eru bara ótýndir pólitískt aðgerðarinnar. Að tilgangur þeirra sé að rústa sjávarútgerdinni sem er hæsti þrøskuldurinn fyrir ESB að klífa. 

Ragnhildur Kolka, 13.2.2024 kl. 10:20

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Í gær sögðu þær í Silfrinu að þetta hafi verið fyrir skjalagerð - væntanlega þá fölsuð skilríki til handa þessum börnum sem væntanlega eru þá í raun 23 ára Hamas liðar

Grímur Kjartansson, 13.2.2024 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband