Góða fólkið flytur inn hælismúslíma

Einkarekinn innflutningur á hælisleitendum stendur yfir frá Egyptalandi. Þrjár konur hafa tekið að sér að flytja til Íslands flugvélafarma af múslímskum hælisleitendum. Í nágrenni Egyptalands eru þrjú átakasvæði: Gasa-ströndin, Sýrland og Jemen. Milljónir múslíma eru til í að komast á beit hjá íslenskum skattgreiðendum. 

Góða fólkið segist bjarga börnum. Út á það gengur hælisiðnaðurinn. Þegar eitt barn er komið með hæli þarf það að fá foreldrana, ömmur og afa, frændur og skyldfólk. Í desember var sagt frá einum múslíma er fékk landvist. Í nafni fjölskyldusameiningar skyldi 21 venslamenni koma til Íslands. Góða fólkið stendur fyrir innflutningi ættbálka múslíma hingað til lands. Með tíu börnum kæmu 200 manns. Með 50 börnum þúsund manns. Það er heilt byggðarlag. 

Múslímar eru þekktir á vesturlöndum fyrir að aðlagast ekki vestrænum siðum og háttum. Tilfallandi bloggaði:

Ráðuneyti útlendinga í Danmörku heldur tölfræði um uppruna þeirra sem komast í kast við lögin og fá dóma. Samkvæmt tölfræðinni eru múslímar 2,5 til 3,5 sinnum líklegri til að stunda glæpi en Meðal-Daninn. Um tölfræðilega staðreynd þarf ekki að deila.

Margsannað er múslímar aðlagast seint og illa vestrænum samfélögum, sem veita þeim viðtöku. Trúarmenning múslíma er í meginatriðum önnur en vestræn veraldarhyggja með kristnar rætur. Jafnrétti kynjanna er íslam framandi hugmynd, svo dæmi sé tekið.

Önnur og þriðja kynslóð múslíma í Danmörku eru enn við sama heygarðshornið og fyrsta kynslóðin og bætir heldur í. Í skýrslu danskra yfirvalda heitir það:

Glæpatíðni afkomenda flóttamanna frá múslímalöndum [MENAPT-lönd] er enn hærri en hjá fyrstu kynslóðinni.

Ekki aðeins eru múslímar hneigðari til glæpa mann fram af manni. Ofbeldisglæpir framdir af múslímum eru hlutfallslega fjórum sinnum algengari en hjá öðrum þjóðfélagshópum.

Einkarekinn innflutningur á hælisleitendum mun ekki fegra eða bæta mannlíf á Fróni. Enda er leikurinn ekki til þess gerður. Þvert á móti.


mbl.is Bjóðast til að aðstoða íslensk stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

"Það viðgengst viss ruddaskapur þegar kemur að mannúðarheiminum. Keppni í þjáningu, keppni milli staða: ég þjáist meira en þú, þannig að ég þarfnast meiri athygli, þannig að mig vantar meiri pening,"
eða stöðu flóttamanns á undan öllum hinum t.d. frá Súdan
Yfirmaður hjálparsamtaka sameinuðu þjóðanna

Grímur Kjartansson, 8.2.2024 kl. 09:34

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Hverjir hafa farið með utanríkismálin. það hlýtur að vera á þeirra ábyrgð að málaflokkurinn er kominn yfir 20 milljarða.

Jósef Smári Ásmundsson, 8.2.2024 kl. 10:39

3 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Folliw the money. IOM stendur líka að stórstraumi fólks yfir suður landamæri BNA og á bakvið allt er Soros júníor. Tilgangurinn að eyðileggja þjóðríkið. 

Angar WEF teygja sig víða. 

Ragnhildur Kolka, 8.2.2024 kl. 11:27

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ískyggileg þróun.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 8.2.2024 kl. 12:32

5 Smámynd: Lárus Ingi Guðmundsson

NEYÐAR SJOÐUR ,,, 33 milljarða nátttúruhamfarasjóður nánast tómur - biggilofts.blog.is

Framsetning frá háflu r´kisinss er skrítin, það vatar smá atriðin. 

Tekið var úr sjóðnum til þess að mæta launa hækkunum hverra ???

Tekið var úr sjoðnum fyrir hælisleitindur, það vantar smá atriðin. 

Sundur liðunina vantar, í hvaða vasa fóru peningarnir ??

Framsettningin er alstaðar þannig að það vantar alltaf sundurliðunina. 

Eins og eðlilegt er með allt bókhald er tengist sjóðum almennt, þegar að fjallað er um fjármál opinberlega i sambandi við opinbera sjóði.  

kv

lig

Lárus Ingi Guðmundsson, 8.2.2024 kl. 13:24

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hættu að kalla þessa úrkynjuðu skúrka "Góða Fólkið."

Ásgrímur Hartmannsson, 8.2.2024 kl. 16:07

7 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sammála Ásgrími.

Þetta eru þjóðníðingar.

Sigurður Kristján Hjaltested, 8.2.2024 kl. 18:02

8 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hvar hefur þú verið Jósef Smári Ásmundsson,

Í hvert skipti sem breyta hefur einhverju í lögum varðandi hælisleitendur
Þá hafa Píratar, Helga Vala, Sigmar og fleiri tekið Alþingi í gíslingu og teppt afgreiðslu allra mála

Grímur Kjartansson, 8.2.2024 kl. 19:15

9 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Grímur . Þetta fólk er í minnihluta á Alþingi. Hvar hefur þú verið?

Jósef Smári Ásmundsson, 8.2.2024 kl. 19:53

10 Smámynd: Grímur Kjartansson

Jósef Smári Ásmundsson,   hvet þig til að horfa á beinar útsendingar frá Alþinig

Grímur Kjartansson, 8.2.2024 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband