Múslímar og innflutningur glæpa

Ráðuneyti útlendinga í Danmörku heldur tölfræði um uppruna þeirra sem komast í kast við lögin og fá dóma. Samkvæmt tölfræðinni eru múslímar 2,5 til 3,5 sinnum líklegri til að stunda glæpi en Meðal-Daninn. Um tölfræðilega staðreynd þarf ekki að deila.

Margsannað er múslímar aðlagast seint og illa vestrænum samfélögum, sem veita þeim viðtöku. Trúarmenning múslíma er í meginatriðum önnur en vestræn veraldarhyggja með kristnar rætur. Jafnrétti kynjanna er íslam framandi hugmynd, svo dæmi sé tekið.

Önnur og þriðja kynslóð múslíma í Danmörku eru enn við sama heygarðshornið og fyrsta kynslóðin og bætir heldur í. Í skýrslu danskra yfirvalda heitir það:

Glæpatíðni afkomenda flóttamanna frá múslímalöndum [MENAPT-lönd] er enn hærri en hjá fyrstu kynslóðinni.

Ekki aðeins eru múslímar hneigaðari til glæpa mann fram af manni. Ofbeldisglæpir framdir af múslímum eru hlutfallslega fjórum sinnum algengari en hjá öðrum þjóðfélagshópum. Allt ber að sama brunni. Múslímar eiga kynslóðavís í erfiðleikum að falla í vestræna kramið.

Á heimastjórnarsvæði Hamas, á Gasa-ströndinni, er stríðsástand, eins og alkunna er. Þá eru fréttir um að mörg hundruð þúsund Afganir séu á faraldsfæti vegna ákvarðana Tyrklands, Íran og Pakistan að vísa landflótta Afgönum til síns heima. Ófrið og upplausn notar flóttamannaiðnaðurinn, sem eru skipulögð glæpasamtök að stórum hluta, til að koma skjólstæðingum sínum á vestræna velferðarjötu.

Fyrr en varir munu tugir ef ekki hundruð múslíma knýja dyra á Fróni. Útlendingamál eru hér í varanlegum lamasessi. Engin pólitísk samstaða er um málaflokkinn. Fólki er veitt dvalarleyfi með nánast engum takmörkunum og án eftirlits. Dvalarleyfin fá sjálfvirka endurnýjun þegar þau renna út. Engin viðmið eru til um hve mörgum skuli veita landvist. Þetta er uppskrift að félagslegum hamförum.

Áður en það er um seinan ættu íslenskir pólitíkusar að kynna sér dönsku tölfræðina. Ein leið til að eyðileggja samfélag er innflutningur á glæpum. Við ættum ekki að velja þá leið.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er beinlínis unnið markvist að eyðileggingu íslensks samfélags. En það eru fleiri en múslimar sem okkur stendur ógn af. Erlendar glæpaklikur hafa komið sér hér fyrir. Ekki er langt síðan fangelsin hér voru full af Litháum og enn styttra síðan uppgjör albanskra glæpaklika leiddi til manndráp. Það er því full ástæða fyrir yfirvöld að fara að girða sig í brók og setja upp einhverjar girðingar hér á landamærum eins og fjölmörg lönd í Evrópu  hafa nú þegar gert. En við erum víst enn að finna upp hjólið. 

Ragnhildur Kolka, 14.12.2023 kl. 11:00

2 Smámynd: Dominus Sanctus.

Íslenska ríkið virðist ekki vera á flæðiskeri statt;

2 milljarðar til múslimanna: 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/12/14/tveir_milljardar_til_palestinu_fra_2011/

Dominus Sanctus., 14.12.2023 kl. 13:53

3 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Mér sýnist Bjarni Ben. ætla að setja lokahnykkinn í að gera Ísland að landi glæpamanna. Nú á að flytja inn fjölda Filista (Palestínumanna) frá Filisteu (Gaza), en það er fólkið sem fagnaði gífurlega 7.október s.l. eftir hin grimmilegu voðaverk Hamasliði í Ísrael þar sem börn voru steikt lifandi, hálshöggvin, aflimið, konum nauðgar á hrottalegan hátt áður en þær voru drepnar og svona má lengi telja. Hinn vestræni heimur hatast nú út í Ísrael fyrir að vilja koma í veg fyrir að slík voðaverk endurtaki sig og koma fram hefndum á ódæðismönnunum sem skýla sér á bak við konur og börn.

Tveir milljarðar af peningum okkar hefur ríkisstjórn Íslands sent Hamas í gegnum SÞ sem þykjast vera að vinna gott verk en eru vita gagnslaus samtök, ekki eingöngu þegar kemur að mannúðarmálum heldur á öllum sviðum þeirrar stofnunar sem má muna sinn fífil fegurri.

Tómas Ibsen Halldórsson, 14.12.2023 kl. 17:13

4 Smámynd: Guðmundur Karl Þorleifsson

Það er ótrúlegt hvernig sjórnmálamenn á Íslandi eru með mikin haugulshátt þegar kemur að vernda Ísland, Íslendinga og íslenska menningu, þá er í lagi að fórna öllu á altari djöfulsins!   Það er löngu komin tími til að Kristnir menn og þeir er vilja ekki sjá endalaus voðaverk af innflytjendum, samanber samræðið við unglingsstúlku fyrir norðan sem nú er í fréttum og dómstólar hafa ekki dug í að dæma þannig að þetta lið vogi sér ekki í að halda slíkri hegðan áfram, girði sig í brók og mótmæli Íslensku réttaríki og krefjist dóma sem tekið verði eftir á hinu alþjóðasvetvangi.   Burtu með allt Múslimskt fólk, það er hættulegt þeim er búa í þeim löndum þar sem slíkt fólk hefur stigið niður fæti.

  Þessar tölulegu staðreyndir er ekki bara áminning fyrir landsmenn heldur einnig fyrir alþingismenn og dómsvaldið í þessu landi.  Nú er tímiin til að setja lög sem halda og farið yrði eftir.

Guðmundur Karl Þorleifsson, 14.12.2023 kl. 19:42

5 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Eins og við höfum sáð til munum við og uppskera.

Reiði Guðs hangir yfir okkur Íslendingum.

Þeirri þjóð sem myrðir börnin sín, ófædd, svo þúsundum skiptir, mun Guð eyða, geri hún ekki iðrun og láti af óhæfuverkum sínum.

Líklega hefur hinn Almáttki, réttláti Guð, ákveðið að nota Öfga-múslíma til að ganga milli bols og höfuðs á okkur.

Það verður þrúgur reiðinnar.

Gerum iðrun því Guðs ríki er í nánd.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 14.12.2023 kl. 20:07

6 Smámynd: Grímur Kjartansson

Four suspected members of Hamas arrested in Europe over alleged terrorism plot - CNN

Grímur Kjartansson, 14.12.2023 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband