Eggjastokkar, eistu og börn

Kynfræðslu í grunnskólum hefur verið útvistað til félagasamtaka með undarlega hugmyndafræði, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Fréttin fjallar um kynfræðslu í 6. bekk grunnskóla. Þar segir m.a.

„Hvort hefst kynþroskinn fyrr hjá þeim sem hafa eggjastokka eða þeim sem hafa eistu “, er eitt kennslubókadæmið. Svarið við því er að það hefjist fyrr hjá „þeim sem hafa eggjastokka“.

Hér væri einfaldara að segja: kynþroski hefst fyrr hjá stúlkum en drengjum. En nú má ekki tala um drengi og stúlkur í grunnskólum. Eistuhafi og eggjastokkaeigandi skal það heita.

Nú kynni einhver að halda að nýlenskan sé til að vernda börnin frá upplýsingum sem þau kunna ekki að fara með, að áherslan sé á líffæri en ekki kyn per se. En svo er alls ekki.

Grunnskólar í Reykjavík halda upp á ,,viku 6" í sjöttu viku ársins. Samkvæmt Fréttinni, sem fjallaði um málið fyrir tveim mánuðum, virðist skipulega unnið að brjóta niður eðlislæga blygðunarsemi barna. Í Fréttinni segir:

Heimilisfræðikennsla var líka samþætt kynfræðslu og voru dæmi þess að bökuð typpa- og píkubrauð eða kynfæri búin til úr leir í listgreinum með tilheyrandi flissi og gleði.

Myndin sem blasir við er sú að kyn séu ekki til en brýnt sé að halda kynlífi að grunnskólabörnum. Jafnvel í kennslu um heimilisfræði.

Til skamms tíma var börnum kennt að gjalda varhug við áleitni að líkama þeirra. Núna er boðskapurinn sá að líkaminn sé aðeins aðskiljanleg líffæri sem megi leika sér með. Náttúrlegar forvarnir, blygðunarsemi, eru skipulega brotnar niður.

Barnagirnd dulbúin sem uppeldi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Dögg Sverrisdóttir

Mér er óskiljanlegt hvernig þetta komst inn í námsbækur og námsefni grunnskólanna. Foreldrar hafa heldur ekki verið nógu vakandi. Pistill eins og þessi er ómetanlegur inn í umræðuna.

Samtökin 78 og þeir sem aðhyllast transhugmyndafræðina hafa óheftan aðgang að fjölmiðlum, m.a. Ruv sjónvarpi allra landsmanna, en öðrum vísað frá. Hef reynt að gera málaflokknum skil á blogginu mínu í von um að einhver lesi og fræðist.

Aukaverkanir hormónablokkandi lyfja eru gífurlegar á börn - formannslif.blog.is

Helga Dögg Sverrisdóttir, 20.4.2023 kl. 08:28

2 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

VIBBI.

Guðmundur Böðvarsson, 20.4.2023 kl. 09:30

3 Smámynd: rhansen

hefur folk ekki tekið eftir pistlum undanfarið fra SÞ að hætta eiga aðgera nokkar athugasemdir þó fullorðnir menn hafai kynmök við stúlkur á barnsaldri ?   það er ógeðið komið og hefur verið lengi i undirbuningi eins og flestur viðbjóðurinn sem það er farin að koma !

rhansen, 20.4.2023 kl. 10:14

4 Smámynd: Richard Þorlákur Úlfarsson

Ef barn telur sig vera hund, þá er lausnin ekki að kaupa hundaól og pumpa hundahormónum í barnið.

Lausnin hlýtur að liggja í því að sannfæra barnið um að það sé ekki hundur.

Richard Þorlákur Úlfarsson, 20.4.2023 kl. 10:19

5 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Er þetta ekki Íslenska þjóðin nú?

25 Þeir hafa skipt á sannleika Guðs og lyginni og göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu. Amen.

26 Þess vegna hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg, 27 og eins hafa líka karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn frömdu skömm með karlmönnum og tóku út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.

28 Þar eð þeir hirtu ekki um að varðveita þekkinguna á Guði, ofurseldi Guð þá ósæmilegu hugarfari, svo að þeir gjörðu það sem ekki er tilhlýðilegt.

29 Fylltir alls konar rangsleitni, vonsku, ágirnd, illsku, fullir öfundar, manndrápa, deilu, sviksemi, illmennsku. Þeir eru rógberar, 30 bakmálugir, guðshatarar, smánarar, hrokafullir, gortarar, hrekkvísir, foreldrum óhlýðnir, 31 óskynsamir, óáreiðanlegir, kærleikslausir, miskunnarlausir.

32 þeir eru menn, sem þekkja réttdæmi Guðs og vita að þeir er slíkt fremja eru dauðasekir. Samt fremja þeir þetta og gjöra að auki góðan róm að slíkri breytni hjá öðrum. Róm. 1.

3 Þú (Guð) hataðir hina fornu íbúa þíns heilaga lands (Ísraels,Íslands) 4 sakir viðurstyggilegra verka þeirra.

Þeir iðkuðu forneskju og særingar, 5 miskunnarlaus barnamorð (fóstureyðingar) og neyttu mannakjöts, innyfla og blóðs í blótveislum.

6 Þessum foreldrum, sem myrtu hjálparlaus börn sín, ákvaðst þú að tortíma með hendi feðra vorra 7 til þess að landið, sem er þér dýrmætast alls, byggðist maklegum landnemum, börnum Guðs. Speki Salómons 12. Kafli.

Hér er komin ástæðan fyrir því að Guð almáttugur er upptekinn við að skipta um þjóð í landi okkar með flóttamannastraumi.

Jesús segir um síðustu tíma:

10 Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata. 11 Fram munu koma margir falsspámenn og leiða marga í villu.

12 Og vegna þess að lögleysi magnast, mun kærleikur flestra kólna.

13 En sá sem staðfastur er allt til enda, mun hólpinn verða.

14 Og þetta fagnaðarerindi um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina öllum þjóðum til vitnisburðar. Og þá mun endirinn koma. Matt. 24.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 20.4.2023 kl. 10:33

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Guðmundur Böðvarsson er lýsandi dæmi um rökræðuna.

Er rökþrota og þá eru þetta viðbrögðin.

Samnefnari fyrir þá sem þola ekki umræðuna.

Sigurður Kristján Hjaltested, 20.4.2023 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband