Byrlari, blaðamenn og drullusokkurinn Seljan

Eftir að sími Páls skipstjóra komst í þjófahendur aðfaranótt 4. maí 2021 voru send sms-skilaboð til vinar skipstjórans.

Á meðan Páll skipstjóri var meðvitundarlaus á gjörgæslu kom tilboð úr síma hans um partí með skipstjóranum.

Viðtakandinn var mátulega tilkippilegur. Þá kom þetta svar úr síma skipstjórans:

Tökum bara ekki Seljan á þetta, þann drullusokk.

Annað tveggja sendi byrlarinn þessi skilaboð úr síma skipstjórans eða blaðamenn RSK-miðla. Aðrir koma ekki til greina. Meðvitundarlaus í öndunarvél var skipstjórinn ekki í standi að senda sms-skilaboð um menn sem honum annars kunna að vera hugleiknir.

Tilgangur byrlara/blaðamanns að þykjast Páll skipstjóri var bersýnilega sá að veiða upplýsingar frá viðtakanda sem grunlaus hélt sig vera í samskiptum við eiganda símans. Það þarf einbeittan brotavilja og töluvert samviskuleysi - nú, eða andleg veikindi - til að taka á sig persónu manns sem liggur meðvitundarlaus milli heims og helju.

Hvort það var byrlarinn, sem þóttist Páll skipstjóri og hæddist að Seljan, eða blaðamennirnir sjálfir er opin spurning.

Lögregluskýrslur eiga það til að upplýsa innræti fólks.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband